Morgunblaðið - 13.11.2018, Side 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2018
www.volkswagen.is HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · hekla.is · umboðsmenn um land allt:
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ
FJÖLHÆFASTA FJÖLSKYLDA LANDSINS?
Glæsilegur og vel útbúinn pallbíll með
3.0 lítra, 258 hestafla, V6 dísilvél,
580 Nm togi, sjálfvirkum vélarhitara,
bakkmyndavél, fjarlægðarskynjara að
framan og aftan, regn- og birtuskynjara,
Xenon/led aðalljósum og 18” álfelgum.
Volkswagen Amarok
verð frá 8.290.000 kr.
Hannaður með þarfir iðnaðar-
manna að leiðarljósi og með
átta þrepa sjálfskiptingu fyrir
allar útgáfur. Fjöldi útfærslna
á hleðslurými, farþegarými og
aðstoðarkerfi.
Volkswagen Crafter
verð frá 6.270.000 kr.
Einn vinsælasti atvinnubíll
á Íslandi undanfarin ár.
Áreiðanlegur, öruggur og
fæst í tveimur lengdum,
fjórhjóladrifinn og í fjölda
útfærslna.
Volkswagen Caddy
verð frá2.720.000 kr.
Transporter hefur fylgt
kynslóðum af fólki sem hefur
þurft á traustum og áreiðan-
legum vinnuþjarki. Fullkomin
stöðugleikastýring, spólvörn
og sjö þrepa sjálfskipting.
Volkswagen Transporter
verð frá 4.390.000 kr.
Guðrún Erlingsdóttur
ge@mbl.is
Hlátrasköll og kliður mætablaðamanni þegar hannmætir í Menningarhúsiðí Árbæ. Mánudags-
prjónahópurinn er á sínu þriðja
starfsári og gleðin og ánægjan í
hópnum er svo mikil að þær tóku
sér ekki frí í sumar að sögn Vilborg-
ar Eddu Lárusdóttur og Sigurlínu
Guðmundsdóttur, þátttakenda í
prjónahópnum. Þær segjast aðstoða
hver aðra og leiðbeina. Það sé mikill
samhugur í hópnum og vinátta.
„Ef eitthvað bjátar á þá er
langbest að koma í prjónaklúbbinn.
Það er ekki nauðsynlegt að kunna
að prjóna. Við höfum fylgst að í
gegnum súrt og sætt og erum eins-
konar sjálfshjálparhópur,“ segir Vil-
borg, Sigurlína tekur undir og bætir
við að það sé vel tekið á móti konum
sem koma í hópinn og allar boðnar
velkomnar. Það sé ekki síst starfs-
fólkinu að þakka, sem sé alveg ynd-
islegt.
Konurnar í prjónaklúbbnum
komi með bakkelsi og borðin svigni
undan kræsingunum en menningar-
húsið leggi til kaffi.
Hópurinn greiðir litla upphæð í
sjóð sem er notaður til þess að fara
á handverkssýningar, á Akranes,
austur fyrir fjall og í súkku-
laðifræðslu. Frá því að fyrsti hóp-
urinn, þriðjudagshópurinn, byrjaði
fyrir átta árum hefur enginn karl-
maður óskað eftir því að fá inn-
göngu í prjónahópana.
Í mánudagshópnum eru konur
sem búsettar eru í Árbæ og konur
sem búsettar eru annars staðar á
höfuðborgarsvæðinu. Ein úr prjóna-
hópnum sagðist hafa búið í Árbæ í
30 ár og væri núna fyrst að kynnast
konum í hverfinu en það eru að-
aðallega heldri konur sem sækja
prjónaklúbbana.
„Menningarhúsið er lifandi og
það breytti miklu þegar það kom.
Ég hef búið hér í 51 ár og Árbær
var í fyrstu eins og svefnbær. Ein-
ungis ungar mæður og eldri borg-
arar sem voru heima og lítið við að
vera,“ segir Vilborg.
„Starfsemin í menningarhúsinu
er frábær og eins og heyrist þá er
hér líf og fjör. Bæði í prjónaklúbbn-
um og svo hlaupa börnin hér um og
mega láta í sér heyra þrátt fyrir að
við séum hér á bókasafninu,“ Sig-
urlína ítrekar hvað viðmót starfs-
manna bókasafnsins skipti miklu
máli.
Gleði og vinátta í prjónaklúbbum
Í Menningarhúsinu í
Árbæ hittist sami hópur
kvenna á hverjum mánu-
degi kl. 13. Þar sinna
konurnar hannyrðum í
vinkvennahópi. Prjóna-
hópar eru einnig þriðju-
daga og miðvikudaga.
Morgunblaðið/Eggert
Prjónakonur Sigurlína Guðmundsdóttir og Vilborg Edda Lárusdóttir.
Listaverk Þátttakandi í mánudagsprjónahópnum heklar af
stakri snilld úr rauðu, væntanlega af því að jólin nálgast.
Fallegt Sigrún Sighvatsdóttir með fallega peysu sem hún hef-
ur prjónað í prjónaklúbbnum ásamt fleiri hannyrðum.
Gleði Jastrid Guðmundsóttir og Hildur Hermannsdóttir
prjóna. Jastrid er frá Færeyjum og prjónar á færeyskan hátt.
Erla Frederiksen mætir í prjóna-
kaffi alla þriðjudaga og hefur
gert í átta ár. Þriðjudagshópurinn
var fyrsti prjónahópurinn sem
stofnaður var fyrir átta árum.
„Í langan tíma var auglýstur
prjónahópur á bókasafninu og í
nokkur skipti mætti María H.
Kristinsdóttir ein. Ég ákvað að
mæta einn daginn en enginn ann-
ar mætti og til stóð að fella niður
prjónakaffið. Ég var í sundleikfimi
með fullt af konum og ákvað að
auglýsa prjónakaffið þar. Eftir
það fjölgaði jafnt og þétt í hópn-
um og fyrir rest gátum við ekki
tekið við fleiri meðlimum. Síðar
var mánudagshópurinn stofnaður
og nú er kominn miðvikudags-
hópur,“ segir Erla sem bætir við
að þriðjudagshópurinn sam-
anstandi af konum sem flestar
búa í Árbænum eða hafi flutt
þaðan. Erla segist bíða eftir
þriðjudögum til þess að komast í
jákvæðan og skemmtilegan hóp
kvenna og ekki skemmi starfs-
fólkið fyrir sem taki vel á móti
öllum, það sé ómetanlegt. Auk
þess að eiga góðar stundir sam-
an fer hópurinn í ferðalag á vorin
og gleðji starfsfólkið fyrir jólin.
Bíður eftir því að komast í
prjónahópinn á þriðjudögum
FÉLAGSSTARF Í MENNINGARHÚSI ÁRBÆJAR
Morgunblaðið/Eggert
Drífandi Erla Frederiksen tók til sinna ráða þegar ekki tókst að manna prjónakaffi í
Menningarhúsi Árbæjar. Átta árum síðar hittast konurnar enn.