Morgunblaðið - 13.11.2018, Qupperneq 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2018
mála héldust þær þó stöðugar í
tveimur löndum; Frakklandi og Jap-
an, en Brautigan var undir töluverð-
um áhrifum af japanskri bókmennta-
hefð. Þegar hann stytti sér aldur árið
1984, ári áður en hann hefði orðið
fimmtugur, var þegar orðið erfitt að
nálgast margar bóka hans í heima-
landinu; tæpum áratug síðar þegar
rýnir var búsettur vestanhafs og var
að safna bókum Brautigans var það
hægara sagt en gert að grafa eintök
af sumum þeirra upp á fornsölum.
Síðar hefur áhugi á verkum hans
aukist að nýju og sögurnar verið end-
urútgefnar, eins og vera ber. Enda
var Brautigan einn allra merkilegasti
og mikilvægasti rithöfundur Banda-
ríkjanna á sínum tíma; var fram-
úrskarandi frumlegur, vann á athygl-
isverðan og ljóðrænan hátt með
prósaformið – myndhverfingar hans
og líkingar eru einstakar, og svo eru
sögur hans einstaklega skemmti-
legar og oft á tíðum bráðfyndnar.
Í Hefnd grasflatarinnar eru 62
sögur, sumar aðeins nokkrar línur,
þær lengstu um sex blaðsíður en
flestar ein til þrjár. Á kápu er vitnað
til orða Gyrðis sem segir þessa bók
hafa átt sinn þátt „í að breyta hug-
myndum manna um hvað smásaga
væri – eða gæti verið“. Margar sagn-
anna lúta engum hefðbundnum hug-
myndum um smásagnaform; hér eru
alls kyns athugasemdir, upplifanir og
hugleiðingar, auk nokkurra frásagna
sem vísa á sinn hátt til hefðbundnari
sagnaritunar. En sterk og einstök
rödd sögumannsins, og óvenjuleg og
frumleg sýn hans á heiminn – auk
fyrrnefndra myndhverfinga og lík-
inga sem einkenna bæði ljóð og prósa
höfundarins, móta frásagnirnar og
skapa úr þeim þessa sterku heild.
Söguheimurinn og rödd sögu-
manns eru vissulega mótuð af því
tímaskeiði sem kennt er við blóma-
börn og frjálsræði – stúlkur, líkamar
þeirra og kynlíf eru sögumanni
gjarnan hugleikin og myndu margir
vilja kenna afstöðu hans í þeim efn-
um við karlrembu og hlutgervingu
kvenna, en þetta er líka rödd annars
og liðins tíma hvað það varðar.
Eins og þýðandinn Þórður Sævar
bendir á í ágætum eftirmála var
Brautigan sérlega lipur stílisti og „ef
hann væri gangtegund væri hann
valhopp. Í bókum hans svífur eitt-
hvert sérkennilegt áreynsluleysi yfir
vötnum“. Þá bendir hann á að textar
höfundarins séu gegnsýrðir af lág-
stemmdri og talmálslegri ljóðrænu,
sem lýsir sér meðal annars í „ein-
staklega frumlegum og hugvits-
samlegum líkingum“. Þýðandanum
tekst vel að fanga þennan sérstaka
stíl og heim sagnanna, og að vera
frumtextanum trúr um leið.
Hefnd grasflatarinnar er safn
sagna, texta og hugleiðinga frá átta
ára tímabili. Þetta eru missterkir
textar, sumir nánast skissur – alltaf
forvitnilegar þó, en hér eru jafnframt
meistaralegar smásögur eftir einn
merkasta og áhugaverðasta rithöf-
und Bandaríkjanna á seinni hluta síð-
ustu aldar.
Sagnameistari „Sterk og einstök rödd sögumannsins, og óvenjuleg og
frumleg sýn hans á heiminn … móta frásagnirnar og skapa úr þeim þessa
sterku heild,“ segir rýnir um smásagnasafnið eftir Richard Brautigan.
ur hægt finna lausn á því að nýta
húsið betur á hátíðinni í framtíðinni.
Hinn breski Blood Orange fór á svið
þar klukkan eitt eftir miðnætti og
þrátt fyrir að vera flottur náði ég
ekki alveg að tengja við tónlistina.
Enda var hápunkti kvöldsins þegar
náð.
Nú eru armbönd fyrir næstu hátíð
komin í sölu og vonandi verða heima-
menn duglegri við að mæta þá.
Airwaves er nefnilega frábær hátíð
sem ekki er hægt að taka sem sjálf-
sögðum hlut.
Ljósmynd/Sigurður Ástgeirsson
Hamfarir Davíð Berndsen fór hamförum á sviðinu, eins og sjá má.
» Það var eins og JimMorrison færi með
aðalhlutverkið sem
slæmi strákurinn í ein-
hverri stórfurðulegri
eitís B-mynd. Herða-
púðar, skræpóttir leð-
urjakkar (þeir voru
nokkrir), berar bumbur
og karatetaktar.
Ljósmynd/Alexandra Howard
Flottur Blood Orange var flottur en greinarhöfundur náði þó ekki að tengja við tónlistina.
Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið)
Lau 17/11 kl. 14:00 Auka Sun 9/12 kl. 14:00 Auka Sun 20/1 kl. 16:00 33.sýn
Lau 17/11 kl. 17:00 Auka Sun 9/12 kl. 17:00 25. s Sun 27/1 kl. 13:00 34.sýn
Sun 18/11 kl. 13:00 20. s Lau 29/12 kl. 13:00 Auka Sun 27/1 kl. 16:00 35.sýn
Sun 18/11 kl. 16:00 21. s Lau 29/12 kl. 16:00 Auka Sun 3/2 kl. 13:00 36.sýn
Lau 24/11 kl. 17:00 Auka Sun 30/12 kl. 13:00 26. s Sun 3/2 kl. 16:00 37.sýn
Sun 25/11 kl. 14:00 Auka Sun 30/12 kl. 16:00 27. s Sun 10/2 kl. 13:00 38.sýn
Sun 25/11 kl. 17:00 22. s Sun 6/1 kl. 13:00 28.sýn Sun 10/2 kl. 16:00 39.sýn
Lau 1/12 kl. 14:00 Auka Sun 6/1 kl. 16:00 29.sýn Sun 17/2 kl. 13:00 40.sýn
Lau 1/12 kl. 17:00 23. s Sun 13/1 kl. 13:00 30.sýn Sun 17/2 kl. 16:00 41.sýn
Sun 2/12 kl. 14:00 Auka Sun 13/1 kl. 16:00 31.sýn Sun 24/2 kl. 13:00 42.sýn
Sun 2/12 kl. 17:00 24. s Sun 20/1 kl. 13:00 32.sýn Sun 24/2 kl. 16:00 43.sýn
Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna!
Samþykki (Stóra sviðið)
Fim 15/11 kl. 19:30 5.s Fös 23/11 kl. 19:30 7. s Fös 30/11 kl. 19:30 9.s
Fös 16/11 kl. 19:30 6.s Fim 29/11 kl. 19:30 8.s Fös 7/12 kl. 19:30 10.sýn
Kraftmikið, splunkunýtt verk sem sló í gegn í Breska þjóðleikhúsinu.
Fly Me To The Moon (Kassinn)
Fös 16/11 kl. 19:30 17.s Fim 22/11 kl. 19:30 19.sýn Lau 1/12 kl. 19:30
Lau 17/11 kl. 19:30 18.s Fös 23/11 kl. 19:30 20.sýn Sun 2/12 kl. 19:30
Nýtt verk eftir höfund hins geysivinsæla leikrits Með fulla vasa af grjóti
Insomnia (Kassinn)
Mið 14/11 kl. 19:30 Frums Sun 25/11 kl. 19:30 4.sýn Sun 9/12 kl. 19:30 7.sýn
Fim 15/11 kl. 19:30 2.sýn Fim 29/11 kl. 19:30 5.sýn
Lau 24/11 kl. 19:30 3.sýn Fös 30/11 kl. 19:30 6.sýn
Brandarinn sem aldrei deyr
Leitin að jólunum (Leikhúsloft)
Lau 17/11 kl. 11:00 313.s Sun 2/12 kl. 12:30 323.s Lau 15/12 kl. 14:30 333.s
Lau 17/11 kl. 12:30 314.s Lau 8/12 kl. 11:00 324.s Sun 16/12 kl. 11:00 334.s
Lau 24/11 kl. 11:00 315.s Lau 8/12 kl. 13:00 325.s Sun 16/12 kl. 13:00 335.s
Lau 24/11 kl. 13:00 316.s Lau 8/12 kl. 14:30 326.s Sun 16/12 kl. 14:30 336.s
Lau 24/11 kl. 14:30 317.s Sun 9/12 kl. 11:00 327.s Lau 22/12 kl. 11:00 337.s
Sun 25/11 kl. 11:00 318.s Sun 9/12 kl. 12:30 328.s Lau 22/12 kl. 13:00 338.s
Sun 25/11 kl. 12:30 319.s Fös 14/12 kl. 17:30 329.s Lau 22/12 kl. 14:30 339.s
Lau 1/12 kl. 11:00 320.s Fös 14/12 kl. 19:00 330.s Sun 23/12 kl. 11:00 340.s
Lau 1/12 kl. 12:30 321.s Lau 15/12 kl. 11:00 331.s Sun 23/12 kl. 13:00 341.s
Sun 2/12 kl. 11:00 322.s Lau 15/12 kl. 13:00 332.s Sun 23/12 kl. 14:30 342.s
Grímuverðlaunasýningin Leitin að jólunum.
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 14/11 kl. 20:00 Mið 28/11 kl. 20:00 Mið 12/12 kl. 20:00
Mið 21/11 kl. 20:00 Mið 5/12 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Elly (Stóra sviðið)
Fim 15/11 kl. 20:00 aukas. Fös 23/11 kl. 20:00 173. s Sun 2/12 kl. 20:00 177. s
Lau 17/11 kl. 20:00 165. s Sun 25/11 kl. 20:00 174. s Fim 6/12 kl. 20:00 178. s
Sun 18/11 kl. 20:00 171. s Fim 29/11 kl. 20:00 175. s Fös 7/12 kl. 20:00 179. s
Fim 22/11 kl. 20:00 172. s Lau 1/12 kl. 20:00 176. s
Stjarna er fædd.
Allt sem er frábært (Litla sviðið)
Lau 17/11 kl. 20:00 20. s Fös 30/11 kl. 20:00 22. s
Fös 23/11 kl. 20:00 21. s Fös 7/12 kl. 20:00 23. s
Gleðileikur um depurð.
Kvenfólk (Nýja sviðið)
Fim 22/11 kl. 20:00 1. s Lau 1/12 kl. 20:00 6. s Sun 16/12 kl. 20:00 11. s
Fös 23/11 kl. 20:00 2. s Fös 7/12 kl. 20:00 7. s Fim 20/12 kl. 20:00 aukas.
Lau 24/11 kl. 20:00 3. s Lau 8/12 kl. 20:00 8. s Fös 21/12 kl. 20:00 aukas.
Sun 25/11 kl. 20:00 4. s Fim 13/12 kl. 20:00 9. s Fös 28/12 kl. 20:00 12. s
Fös 30/11 kl. 20:00 5. s Fös 14/12 kl. 20:00 10. s Lau 29/12 kl. 20:00 13. s
Drepfyndin sagnfræði með söngvum.
Tvískinnungur (Litla sviðið)
Fim 15/11 kl. 20:00 2. s Fim 22/11 kl. 20:00 4. s Lau 1/12 kl. 20:00 6. s
Sun 18/11 kl. 20:00 3. s Sun 25/11 kl. 20:00 5. s
Ást er einvígi.
Jólaflækja (Litla sviðið)
Lau 24/11 kl. 13:00 1. s Lau 1/12 kl. 13:00 3. s Lau 8/12 kl. 13:00 5. s
Sun 25/11 kl. 13:00 2. s Sun 2/12 kl. 13:00 4. s Sun 9/12 kl. 13:00 6. s
Litrík jólasýning fyrir þau yngstu.
Rocky Horror (Stóra sviðið)
Fös 16/11 kl. 20:00 67. s Lau 24/11 kl. 20:00 68. s Fös 30/11 kl. 20:00 69. s
Sýningum lýkur í nóvember.
BORGARLEIKHÚSIÐ
Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins
á borgarleikhus.is
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Veistu um góðan
rafvirkja?
FINNA.is