Morgunblaðið - 01.12.2018, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2018
Seljavegur 2 | Sími: 511-3340 | Fax: 511-3341 | www.reyap.is | reyap@reyap.is
Apótekið þitt
í gamla Héðinshúsinu við Seljaveg 2
Afgreiðslutími:
9-18:30 virka daga
10-16:00 laugardaga
Reykjavíkur Apótek býður upp á allar tegundir lyfja. Mikið og fjölbreytt úrval af
heilsuvörum, bað- og ilmvörum, gjafavörum auk ýmissa annarra góðra kosta.
Reykjavíkur Apótek er sjálfstætt starfandi apótek sem leggur áherslu á
persónulega þjónustu og hagstætt verð.
• Öryrkjar og eldri borgarar njóta sérkjara hjá okkur
• Frí heimsendingarþjónusta
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Viðræðuhópur ríkis og sveitarfélaga á
höfuðborgarsvæðinu hefur skilað til-
lögum um uppbyggingu samgangna á
höfuðborgarsvæðinu til ársins 2033.
Þær voru ræddar á ríkisstjórnarfundi
og á fundi sveitarfélaganna í gær.
Samkvæmt tillögunum verður
fyrsti áfangi Borgarlínu byggður upp
á tveimur leggjum; annars vegar frá
Hlemmi í Ártún og hins vegar frá
Lækjartorgi til Hamraborgar.
Á leiðinni í Ártún verður farið um
Suðurlandsbraut og yfir fyrirhugaða
brú yfir Elliðaá. Á leiðinni í Hamra-
borg verður farið í gegnum Vatns-
mýrina og yfir brú yfir Fossvog.
Áætlað er að verja 8,2 milljörðum í
Ártúnsleiðina 2019-23 og 8,1 milljarði
í Hamraborgarleiðina sömu ár. Sam-
tals eru þetta 16,3 milljarðar. Verja á
42 milljörðum til Borgarlínu til 2033.
Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, for-
maður skipulags- og samgönguráðs
Reykjavíkurborgar, segir að ekki
liggi fyrir endanleg kostnaðarskipting
milli ríkis og sveitarfélaga. Hún segir
tillögurnar miklar gleðifréttir. Verið
sé að brjóta blað í samgöngumálum á
höfuðborgarsvæðinu.
„Við erum að fara af stað með öfl-
uga uppbyggingu almenningssam-
gangna sem á að fylgja fyrirhugaðri
fólksfjölgun. Það er í fyrsta sinn sem
við mætum aukinni fólksfjölgun með
öðrum hætti en einkabílnum,“ segir
Sigurborg Ósk. Undirbúningur verk-
efnisins fari á fulla ferð á næsta ári.
Við fjölmenna vinnustaði
Hún rifjar upp að borgarstjórn hafi
samþykkt áðurnefnda fyrstu tvo leggi
Borgarlínu. Annars vegar muni leiðin
í Hamraborg fara fram hjá mörgum
fjölmennustu vinnustöðum landsins;
Landspítalanum, Háskóla Íslands og
Háskólanum í Reykjavík. Til þess
þurfi leiðin að liggja yfir brúna yfir
Tjörnina við Skothúsveg og eftir
syðsta hluta Suðurgötu, eða sömu leið
og Strætó aki um nú.
Hins vegar muni leiðin í Ártún fara
fram hjá fyrirhuguðum þéttingar-
svæðum, þar með talið Heklureit á
Laugavegi og fyrirhuguðu íbúðar-
hverfi á Ártúnshöfða. Borgin hyggist
innheimta innviðagjöld vegna sölu
byggingarréttar meðfram þessum
hluta Borgarlínunnar. Hversu miklu
þau muni skila muni skýrast á síðari
stigum. Þau geti numið milljörðum.
Leiðin í Ártún gæti kallað á brúar-
smíði yfir Sæbraut og svo áfram yfir
Elliðavog. Sigurborg Ósk segir að-
spurð ekki búið að ákveða hvort smíð-
aðar verði ein eða fleiri brýr.
Þá eigi eftir að ákveða tíðni ferða
Borgarlínu á fyrstu leggjum.
Áætla megi að árið 2022 verði upp-
bygging fyrsta áfanga mögulega
komin það langt að hægt verði að
hefja akstur á hluta leggjanna.
Afgreiða áætlunina fyrir jól
Sigurður Ingi Jóhannsson sam-
gönguráðherra segir tillögurnar nú
koma til kasta umhverfis- og sam-
göngunefndar sem muni ljúka sam-
gönguáætlun fyrir jól. Sú vinna verði
unnin í samstarfi við ráðuneytið.
Annað snúi að sveitarfélögunum.
Meðal annars þurfi að gera breyting-
ar á skipulagstexta varðandi fyrir-
huguð sérrými undir Borgarlínu og
uppbyggingu hjóla- og göngustíga.
Spurður hvort ekki verði aftur snú-
ið varðandi fyrstu tvo leggi Borgar-
línu segir ráðherrann þessi áform um
almenningssamgöngur vera komin á
samgönguáætlun.
„Það yrði þá ætlun þingsins, sem
við í framkvæmdavaldinu vinnum
eftir, að fara í þessa vegferð,“ segir
Sigurður Ingi, sem reiknar aðspurður
með að framkvæmdir geti hafist árið
2020 og svo af fullum krafti 2021.
Síðarnefnda árið verði stórt í upp-
byggingu samgöngumannvirkja á
svæðinu, sem og næstu ár þar á eftir.
„Aðalmálið er að ná samkomulagi
milli ríkis og sveitarfélaganna um
fjárhagslega aðkomu að verkefninu
og binda lausa hnúta. Hluti af því er
að heimila innheimtu gjalda til þess að
fjármagna hluta af verkefninu, líkt og
nefndin leggur til.“
Sigurður Ingi segir það næsta
verkefni að ljúka umgjörðinni í kring-
um fyrirhugaða Sundabraut.
Spurður hvort Sundabraut verði
sérverkefni byggt af einkaaðilum, og
fjármagnað með veggjöldum, svarar
Sigurður Ingi játandi. „Ég held að all-
ir sjái það fyrir sér,“ segir hann.
Hluti af verkefninu fram undan sé
að ramma inn skipulagið og hvernig
Sundabraut mun tengjast vegakerf-
inu. Þar sé horft til þess hvar Borgar-
línan liggi á leiðinni í Ártún. Þá eigi
eftir að ákveða hvers konar mann-
virki Sundabraut verði. Rætt hefur
verið um göng og hengibrú. Spurður
hvort kostnaður við Sundabraut verði
yfir 10 milljörðum rifjar hann upp að
rætt hafi verið um tugi milljarða.
R EY K JAV Í K
S E LTJA R N A R N ES
H A F N A R FJ Ö R Ð U R
GA R Ð A BÆ R
K Ó PAVO GU R
M OS F E L LS BÆ R
Heimild: Samgönguráðuneytið og Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu
Te
ik
ni
ng
/
Yr
ki
a
rk
ite
kt
ar
Te
ik
ni
ng
:/
AR
KÍ
S
a
rk
ite
kt
ar
Fyrsti áfangi Borgarlínu
Krossmýrartorg í fyrirhugaðri Vogabyggð
við Ártúnshöfða
Te
ik
ni
ng
/A
lta
Fyrirhuguð brú yfir Fossvog yfir í Kársnes
Te
ik
ni
ng
/A
LA
RK
a
rk
ite
kt
ar
Arnarhlíð í fyrirhugaðri Hlíðarendabyggð
Fyrirhugaður
Heklureitur við
LaugavegÁætlað er að framkvæmdir verði
komnar á fullt skrið árið 2021
Tillögur stýrihóps miða
við að 1. áfangi verði
kominn í gagnið árið 2030
Á fyrri stigum var rætt um að borgarlínan yrði
jafnvel á teinum. Nú er horft til vagna á hjólum. 42 milljarðar króna er heildarfjárfesting
1. áfanga Borgarlínu
Tímabil framkvæmda
(milljónir króna)
1. tímabil
2019-2023
2. tímabil*
2024-2028
3. tímabil
2029-2033
ÁRTÚN–HLEMMUR um Voga, Suðurlandsbraut og Laugaveg 8.200
HAMRABORG–HLEMMUR um Fossvogsbrú, BSÍ og miðborg 8.100
MJÓDD–BSÍ um Voga og Miklubraut 5.800 2.200
FJÖRÐUR–MIKLABRAUT um Hamraborg og Kringlumýrarbraut 6.200 2.700
ÁRTÚN–SPÖNG 5.000
HAMRABORG–LINDIR um Smárann 3.400
Samtals um 42 milljarðar 16.300 15.400 9.900
1. tímabil framkvæmda:
HAMRABORG–HLEMMUR og
ÁRTÚN–HLEMMUR alls 13 km
*Tímasetningar
stokkaframkvæmda
ráða mestu um
atvikaröð á leiðum
eftir Miklubraut og
Hafnarfjarðarvegi
Yfir 40 milljarðar í Borgarlínu
Formaður samgönguráðs Reykjavíkur segir mögulegt að fyrsti áfangi verði tilbúinn að hluta 2022
Samgönguráðherra boðar miklar vegaframkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu frá og með árinu 2021
Sigurborg Ósk
Haraldsdóttir
Sigurður Ingi
Jóhannsson