Morgunblaðið - 01.12.2018, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2018
Lesið vandlega upplýsingarnar á umbúðumog fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til
læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum umáhættuog aukaverkanir.
Sjá nánari upplýsingar um lyfið áwww.serlyfjaskra.is
Ibuprofen Bril
Reykjavíkurvegur 62 | Sími 527 0640 | 220Hafnarfjörður | www.wh.is
Á hreint brilliant verði!
Bólgueyðandi og verkjastillandi
400mg töflur - 30 stk og 50 stk
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Hluthafafundur Icelandair Group
samþykkti í gær heimild til stjórn-
ar félagsins um að hækka hlutafé
Icelandair um allt að 625 milljónir
króna að nafnverði. Eins og segir í
tilkynningu frá félaginu er mark-
mið hlutafjárhækkunarinnar það
að styrkja fjárhagslega getu þess
til vaxtar.
Einnig var á dagskrá fundarins
að ræða kaup Icelandair á WOW,
en þeir dagskrárliðir voru felldir
niður eftir að hætt var við þau við-
skipti í fyrradag.
Verður hlutafjárútboðið tvískipt,
lokað og almennt. Það lokaða verð-
ur haldið eigi síðar en 14. desem-
ber nk. en almenna útboðið í mars
á næsta ári.
Hægt að ná
umtalsverðum vexti
Á hluthafafundinum var farið
nánar yfir vaxtartækifærin sem
liggja til grundvallar hlutafjár-
aukningunni. Kom fram að hægt
væri að ná umtalsverðum innri
vexti í núverandi starfsemi án
verulegrar fjárfestingar. Breyt-
ingar á leiðarkerfi, lengri líftími
núverandi flugflota, ásamt kaup-
um á nýjum flugvélum, skapaði
grundvöll fyrir innri vöxt. Þá telji
félagið að fyrir hendi séu tækifæri
til að breyta samsetningu þeirra
farþega sem félagið flytur og
fjölga ferðamönnum sem sækja
Ísland heim. Telur félagið að það
geti aukið framboð flugsæta um
35% og þannig fjölgað ferðamönn-
um til Íslands um 350 þúsund á
næsta ári.
Útboðsgengi í hlutafjárútboðinu
hefur ekki verið ákveðið sam-
kvæmt tilkynningu félagsins, en
stjórninni var falið að ákvarða út-
boðsgengið og greiðslukjör hlut-
anna. Í tilkynningunni segir einnig
að stefna skuli að því að hlutirnir,
að hluta eða öllu leyti, verði boðnir
þeim aðilum til kaups sem eru
hluthafar í félaginu í dagslok þann
dag sem útboðsgengið er ákveðið.
Útboðið verður tvískipt eins og
fyrr sagði, lokað og almennt.
Verða hlutirnir í lokaða útboðinu
boðnir til kaups með þeim hætti að
hluthöfum, og eftir atvikum öðr-
um, eins og það er orðað í tilkynn-
ingunni, verður boðið að skrá sig
fyrir nýjum hlutum að nafnvirði
499 milljónir króna. „Skulu
áskriftir háðar því skilyrði að hver
einstakur áskrifandi kaupi hlutafé
fyrir að jafnvirði minnst 100.000
evrur. Skulu hinir nýju hlutir seld-
ir á föstu gengi sem stjórn
ákveður í síðasta lagi þremur dög-
um fyrir útboðsdag og skal greiða
fyrir hlutina í reiðufé. Stjórn fé-
lagsins skal ákveða upphaf
áskriftartímabils, en áskriftum að
nýjum hlutum skal lokið fyrir 14.
desember 2018 og skal áskriftar-
verðið innt af hendi eigi síðar en
31. desember 2018.“
Útilokar frá almennu útboði
Þá segir í tilkynningunni að
þátttaka í útboðinu útiloki hluthafa
frá þátttöku í almennu útboði,
nema að því marki sem ekki berist
fullnægjandi áskriftir í því útboði.
Kostnaður félagsins vegna
hlutafjárhækkunarinnar í lokaða
útboðinu og skráningar hennar er
áætlaður 100 milljónir króna.
Almenna útboðið verður að
nafnverði 126 milljónir króna og
þar verður hluthöfum, og öðrum
eftir atvikum, boðið að skrá sig.
Munu hluthafar hafa forgang að
þessum hluta hlutafjáraukningar-
innar, en þó þannig að hluthafar
sem taka þátt í lokaða útboðinu
skulu teljast hafa fallið frá for-
gangsrétti sínum til þátttöku í al-
menna útboðinu, eins og það er út-
skýrt í tilkynningunni. „Skulu
hinir nýju hlutir seldir að hámarki
á sama gengi og boðið verður í
lokaða útboðinu.“
Kostnaður félagsins vegna al-
menna útboðsins og skráningar er
áætlaður 50 milljónir króna.
Hlutafjáraukning studd
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fólkið við stýrið Stjórn Icelandair Group fundaði með hluthöfum. Bogi Nils Bogason, starfandi forstjóri, sést hér lengst til vinstri, þá Úlfar Steindórsson
stjórnarformaður, Ómar Benediktsson varaformaður og meðstjórnendurnir Ásthildur M. Otharsdóttir, Guðmundur Hafsteinsson og Heiðrún Jónsdóttir.
Ætlað til að styrkja fjárhagslega getu Icelandair til vaxtar
● Á fyrstu 10 mánuðum ársins voru
fluttar út vörur fyrir 495,3 milljarða
króna en á sama tímabili nam inn-
flutningurinn 640,5 milljörðum. Halli á
vöruviðskiptum við útlönd nam því
145,2 milljörðum króna reiknað á fob
verðmæti. Á sama tíma fyrir ári voru
vöruviðskiptin óhagstæð um 141,9
milljarða króna á gengi þess árs.
Vöruviðskiptahallinn er því 3,3 millj-
örðum meiri á fyrstu tíu mánuðum
þessa árs en hann var yfir sama
tímabil í fyrra. Án skipa og flugvéla
nam hallinn 130,4 milljörðum, sam-
anborið við 130,7 milljarða á sama
tíma í fyrra.
Í októbermánuði voru fluttar út
vörur fyrir 61,1 milljarð króna og inn
fyrir 73,2 milljarð. Þau voru því óhag-
stæð um12,1 milljarð en hallinn nam
6,9 milljörðum í sama mánuði í fyrra.
Vöruskiptahallinn 145,2
ma. fyrstu 10 mánuðina
1. desember 2018
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 125.0 125.6 125.3
Sterlingspund 159.63 160.41 160.02
Kanadadalur 94.03 94.59 94.31
Dönsk króna 19.014 19.126 19.07
Norsk króna 14.568 14.654 14.611
Sænsk króna 13.777 13.857 13.817
Svissn. franki 125.45 126.15 125.8
Japanskt jen 1.1022 1.1086 1.1054
SDR 172.77 173.79 173.28
Evra 141.9 142.7 142.3
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 170.7651
Hrávöruverð
Gull 1226.45 ($/únsa)
Ál 1931.0 ($/tonn) LME
Hráolía 59.12 ($/fatið) Brent
● Fjármálaeftirlitið sendi lífeyris-
sjóðum dreifibréf í gærdag þar sem
þeir voru sérstaklega hvattir til að
gæta að netöryggi í starfsemi sinni.
Samhliða útsendingunni varar stofn-
unin önnur fjármálafyrirtæki við að
sífellt algengara sé að fyrirtæki og
aðilar á fjármálamarkaði séu skot-
mörk þeirra sem reyna að svíkja
fjármuni með tölvupósti. Þau svik
fari oft fram með þeim hætti að
sendir eru póstar í nafni innri aðila
þar sem óskað er eftir millifærslu á
ákveðinn reikning, eða að brotist er
inn í tölvupósthólf starfsmanns til að
breyta millifærsluupplýsingum sem
berast í tölvupósti.
Hvetur lífeyrissjóði til
að gæta að netöryggi
STUTT
Viðbrögð markaðarins við frétt-
um af viðræðum milli Indigo
Partners og eiganda WOW air
voru mjög misjöfn. Þannig lækk-
uðu bréf Icelandair Group um
8,63% í ríflega 550 milljóna
króna viðskiptum í Kauphöll. Að
HB Granda undanskildum, sem
lækkaði um 1%, þá hækkuðu öll
félög önnur í Kauphöll verulega.
Mest hækkuðu bréf Festar um
11% en félagið selur WOW air
eldsneyti. Þá hækkuðu Hagar um
7,56% en tilkynnt var um sam-
runa félagsins við Olís eftir lokun
markaða í fyrradag. Þá hækkaði
Skeljungur um 6%, Eik fast-
eignafélag um rúmlega 6,8% líkt
og Síminn. Arion banki, við-
skiptabanki WOW air, hækkaði
um 3,87%. Úrvalsvísitala Kaup-
hallarinnar hækkaði um 3,86% í
sviptingunum og er nú nærri
opnunargengi sínu í upphafi árs.
Gengi krónunnar styrktist
gagnvart helstu myntum í gær.
Þannig styrktist hún um ríflega
2% gagnvart evru, 1,9% gagn-
vart sterlingspundi og um tæp
1,5% gagnvart bandaríkjadal.
Icelandair nið-
ur um 8,6%
MIKLAR SVIPTINGAR