Morgunblaðið - 01.12.2018, Page 25
FRÉTTIR 25Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2018
Ljósin tendruð á Hamborgartrénu.
Miðbakki, Reykjavíkurhöfn.
Ljósin á Hamborgartrénu verða tendruð kl. 17:00 laugardaginn
1. desember en tréð er staðsett á Miðbakka Reykjavíkurhafnar.
Það eru góðir vinir frá Hamborg sem senda jólatréð til Reykja-
víkurhafnar. Þessi hefð hefur verið milli aðila allt frá árinu 1965.
Við athöfnina munu fulltrúar frá Hamborg flytja stutt ávarp um
leið og þeir afhenda gjöfina. Kristín Soffía Jónsdóttir, formaður
Faxaflóahafna sf., þakkar fyrir jólatréð fyrir hönd Faxaflóahafna.
Herbert Beck sendiherra Þýskalands á Íslandi, ávarpar gesti við
tréð ásamt Dr. Sverrir Schopka, fulltrúa Þýsk-Íslenska félagsins í
Þýskalandi. Að athöfn lokinni er gestum boðið í heitt súkkulaði
og viðeigandi bakkelsi í Hafnarhúsinu, ásamt því að jólasveinar
munu kíkja í heimsókn. Félagar úr Lúðrasveit Hafnarfjarðar leika
jólalög.
Þessi fallegi siður, að senda jólatré til Reykjavíkurhafnar, er
tileinkaður íslenskum togarasjómönnum sem sigldu á Hamborg
með fisk strax eftir seinni heimstyrjöldina. Þess er sérstaklega
minnst að sjómennirnir gáfu svöngu og ráðlausu fólki á hafnar-
svæðinu fiskisúpu á meðan verið var að landa úr togaranum.
Á hverju ári síðan árið 1965 hefur Eimskipafélag Íslands flutt
tréð endurgjaldslaust til Reykjavíkur og í ár eru það Íslandsvina-
félögin í Hamborg og Köln sem styrkja þetta framtak. Faxaflóa-
hafnir hafa staðið fyrir skipulagningu að móttöku trésins.
Anleuchten des Weihnachtsbaumes aus
Hamburg amMiðbakki, Reykjavik-Hafen.
Am Samstag, den 01. Dezember 2018, um 17:00 Uhr wird
pünktlich zur Weihnachtszeit der Weihnachtsbaum aus Hamburg
in Reykjavík angeleuchtet. Der Baum ist ein Zeichen der Dank-
barkeit für die Hilfspakete isländischer Seeleute an bedürftige
Menschen in Hamburg nach dem Zweiten Weltkrieg. Der erste
Baum kam 1965!
Sprecher der Delegation aus Hamburg werden eine kurze
Ansprache halten, während sie die Tanne offiziell übergeben.
Kristín Soffía Jónsdóttir , Vorsitzender der Faxaflóahäfen wird
sich im Auftrag des Hafens für die Tanne bedanken. Darauf-
hin folgt eine kurze Ansprache von Herbert Beck, deutscher
Botschafter in Island, begleitet von Sverrir Schopka, Sprecher
der Deutsch-Isländischen Gesellschaft in Deutschland. Im
Anschluß werden die Gäste zu heißer Schokolade und Gebäck ins
Hafenhaus eingeladen. Mitglieder der Hafnarfjörður-Blaskapelle
spielen Weihnachtslieder.
Seit 1965 hat Eimskip den Transport der Tanne jedes Jahr
gesponsort und dieses Jahr hat ebenfalls Gesellschaft der
Freunde Islands, Hamburg, und Deutsch-Isländische
Gesellschaft, Köln, dieses Unterfangen unterstützt.
Die Faxaflóahäfen haben den Transport und den Empfang der
Tanne organisiert.
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Michael Cohen, fyrrverandi lögmað-
ur Donalds Trumps Bandaríkjafor-
seta, hefur játað sig sekan um að
hafa logið að Bandaríkjaþingi „af
hollustu“ við forsetann til að gera lít-
ið úr þætti hans í viðræðum við rúss-
nesk yfirvöld um áform um að reisa
háhýsi, Trump-turn, í Moskvu þegar
Trump var í framboði í forkosning-
um repúblikana árið 2016. Forsetinn
sagði að Cohen væri „veikgeðja mað-
ur“ og sakaði hann um að hafa logið
þessu í von um að játningin tryggði
honum mildari dóm.
Cohen kom fyrir alríkisdómara á
Manhattan í New York í fyrradag
vegna rannsóknar sérstaks saksókn-
ara, Roberts Muellers, á meintum
afskiptum Rússa af kosningunum í
Bandaríkjunum árið 2016. Rann-
sóknin beinist meðal annars að því
hvort Trump eða aðstoðarmenn hans
hafi verið í leynimakki við Rússa fyr-
ir kosningarnar.
Cohen játaði sig sekan um að hafa
lagt fram rangar, skriflegar yfirlýs-
ingar fyrir Bandaríkjaþing í fyrra,
meðal annars sagt ósatt um hversu
mikið samráð hann hafði við Trump
um byggingaráformin í Moskvu. „Ég
var með þessar yfirlýsingar til að
vera í samræmi við pólitískan boð-
skap einstaklings 1 og af hollustu við
einstakling 1,“ sagði Cohen. Áður
hafði hann tekið fram að „einstak-
lingur 1“ væri Trump forseti.
Cohen kom fyrir leyniþjónustu-
nefndir beggja deilda þingsins á
fundum fyrir luktum dyrum í októ-
ber vegna rannsókna nefndanna á
því hvort Rússar hefðu reynt að hafa
áhrif á kosningarnar 2016 í leynilegu
samstarfi við aðstoðarmenn Trumps.
Samkvæmt ákæru saksóknarans
sagði Cohen á fundunum með leyni-
þjónustunefndunum að viðræðurnar
um Trump-turninn í Moskvu hefðu
staðið frá september 2015 til janúar
2016 og þeim hefði lokið áður en for-
kosningar repúblikana hófust. Að
sögn The Wall Street Journal hefur
Cohen nú viðurkennt að viðræðurn-
ar hafi staðið til júní 2016 þegar hætt
hafi verið við áformin, um mánuði
eftir að ljóst varð að Trump yrði for-
setaefni repúblikana. Blaðið segir að
Trump hafi ítrekað sagt í kosninga-
baráttunni að hann hafi ekki átt í
neinum viðskiptum við Rússa og
ekki tengst Rússlandi á nokkurn
hátt.
Rudy Giuliani, lögmaður Trumps,
sagði að lögfræðingar hans rengdu
ekki yfirlýsingar Cohens um þátt
Trumps í viðræðunum um bygg-
ingaráformin í Moskvu. „Við sökum
ekki Michael vesalinginn um lygar,“
sagði Giuliani en bætti við að sannað
hefði verið að Cohen væri „mein-
særismaður“ og „raðlygari“.
Skaðar Trump en ekki lögbrot
Að sögn The Wall Street Journal
hefur meðal annars komið fram að
Felix Sater, gamall samstarfsmaður
Trumps í fasteignaviðskiptum, lagði
til við Cohen að Vladimír Pútín
Rússlandsforseti fengi þakíbúð í
Trump-turninum í Moskvu að gjöf til
að hægt yrði að hækka verðið á öðr-
um íbúðum í byggingunni. Sater
kvaðst telja að rússneskir auðkýfing-
ar myndu vilja greiða jafnvirði alls
30 milljarða króna hærra verð fyrir
aðrar íbúðir í háhýsinu ef Pútín fengi
þakíbúðina sem var metin á sem
svarar sex milljörðum króna.
Bandaríski lögfræðingurinn Alan
Dershowitz, bandamaður Trumps,
segir að játning Cohens bendi ekki
til þess að forsetinn hafi framið lög-
brot en geti skaðað hann pólitískt og
vakið efasemdir um að hann hafi
sagt almenningi allan sannleikann
um viðræðurnar um byggingar-
áformin í Moskvu.
Laug „af hollustu“ við Trump
Fyrrverandi lögmaður forsetans játar að hafa sagt þinginu ósatt til að gera lítið úr þætti Trumps í
viðræðum um háhýsi sem ráðgert var að reisa í Moskvu Forsetinn sakar lögmanninn um lygar
AFP
Ósannindi Michael Cohen, fyrrverandi lögmaður Trumps, á leið úr dómhúsi
í New York-borg eftir að hafa játað að hafa logið að Bandaríkjaþingi.
Brotist hefur verið inn í einn gagna-
grunna Marriott International-
hótelkeðjunnar þar sem geymdar
eru upplýsingar um 500 milljónir
viðskiptavina. Í gagnagrunninum
eru m.a. bókunarkerfi stórs hluta
keðjunnar. Í ljós hefur komið að
hakkari eða hakkarar hafa komist
inn í gagnagrunninn allt frá árinu
2014.
Marriott International keypti hót-
elasamsteypuna Starwood árið 2016
og úr varð stærsta hótelkeðja heims.
Í gagnagrunninum voru bókunar-
kerfi hótela Starwood, m.a. W Hot-
els, Sheraton, Le Méridien og Four
Points, en ekki Marriott-hótela, sem
nota annað bókunarkerfi.
Í frétt BBC um málið segir að
gögnin sem tölvuþrjótarnir komust
yfir innihaldi m.a. upplýsingar um
nafn, heimilisfang, símanúmer, net-
fang, vegabréfsnúmer, bankareikn-
inga, fæðingardag, kyn og fleira.
AFP
Gögnum stolið Marriott-hótel í San
Francisco í Bandaríkjunum.
Gögn um 500
milljónir
gesta í hættu
Theresa May,
forsætisráðherra
Bretlands, segir
að ekki komi til
greina að fallast
á aðild að EES-
samningnum í
gegnum Frí-
verslunarsamtök
Evrópu (EFTA)
sem varaáætlun
verði samningi hennar um útgöngu
Bretlands úr Evrópusambandinu
hafnað á breska þinginu. Nokkrir
þingmenn í Íhaldsflokknum og
Verkamannaflokknum höfðu hvatt
til þess að Bretar færu þá leið sem
Ísland, Noregur og Liechtenstein
hafa farið í samskiptum við ESB.
BRETLAND
Hafnar EES-leiðinni
Theresa May