Morgunblaðið - 01.12.2018, Side 26

Morgunblaðið - 01.12.2018, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Ídag sezt Ís-land á bekkmeð fullvalda þjóðum heimsins,“ sagði í grein á for- síðu Morgunblaðs- ins 1. desember fyrir 100 árum. „Þessi dagur er mikill dagur sögu þjóðar vorrar. Þessi dag- ur er runninn af þeirri baráttu, sem háð hefur verið í þessu landi allt að því í heila öld. Hún hefur þroskað oss, baráttan, um leið og hún hefur fært oss að markinu. Saga hennar verð- ur ekki sögð í dag. Hún lifir í hjörtum þjóðarinnar,“ sagði Sigurður Eggerz, fjármála- ráðherra og staðgengill for- sætisráðherra í fjarveru Jóns Magnússonar, í hátíðarræðu sinni 1. desember 1918 og bætti við að nú byrjaði „ný saga hins viðurkennda íslenska ríkis“. Hana skrifuðu ekki að- eins stjórnmálamennirnir, þótt þeir réðu miklu, heldur einnig „bóndinn, sem stendur við orf- ið og ræktar jörð sína“, „dag- launamaðurinn, sem veltir steininum úr götunni“ og „sjó- maðurinn, sem situr við ára- keipinn“: „Allir, sem inna lífs- starf sitt af hendi með alúð og samviskusemi, auka veg hins íslenska ríkis. Og sú er skylda vor allra.“ Óhætt er að segja að Íslend- ingar hafi hlýtt kallinu. Gengið hefur á ýmsu frá því að „ný saga hins viðurkennda íslenska ríkis hófst“. Í kjölfar fullveldis fylgdi sjálfstæði frá Dönum tæpum 26 árum síðar. Í huga margra hlaust ekki endanlegt fullveldi og sjálfstæði fyrr en Danir skiluðu handritunum árið 1971. Ákvarðanir um að færa út landhelgina voru einnig mikil- væg skref í að marka Íslandi sess í samfélagi þjóðanna þótt það kostaði átök við Breta. Árið 1918 var Ísland eitt fá- tækasta land Evrópu og hefðu fáir trúað því að einum hundr- að árum síðar yrði hagur þess með því sem best gerðist í heiminum. Margir töldu að Ís- lendingar myndu ekki geta staðið á eigin fótum. Reikn- ingsdæmið væri einfalt. En það var öðru nær og má segja að velmegunin hér landi gangi þvert á öll lögmál. Uppbygg- ingin hefur ekki alltaf verið auðveld og aldrei sjálfsögð. Tilveran var erfið á tímum kreppunnar miklu, heimsstyrj- öldinni síðari fylgdu hremm- ingar en einnig mikill upp- gangur og nútímavæðing. Meira að segja tímar óðaverð- bólgu voru skeið uppbyggingar og aukinnar velmegunar. Það var ekki síst vegna áhersl- unnar á að halda atvinnuleysi í lágmarki þótt það kostaði rýrnun krónu. Á einni öld hefur, hvað sem líður göllum og gagnrýni í dagsins önn, verið byggt upp á Ís- landi heilbrigðis- kerfi, menntakerfi allt frá leikskólum til háskóla og sam- göngur í fremstu röð. Landið tekur þátt í alþjóðlegu sam- starfi. Hér er rekin utanríkis- þjónusta með sendiráð víða um lönd. Íslensk tunga og menning voru snar þáttur og undirstaða sjálfstæðisbaráttunnar og hafa einnig verið lykilatriði í mótun fullveldis og sjálfstæðis. Ís- lensk menning fer víða um þessar mundir, hvort sem horft er til bókmennta, myndlistar, leikhúss, kvikmynda eða tón- listar. Margir hafa áhyggjur af stöðu íslenskunnar um þessar mundir og má ekki gera lítið úr nauðsyn þess að hlúa að tung- unni og efla þannig að áfram verði hún ekki aðeins gjald- geng heldur sjálfsögð í sam- skiptum hér á landi kynslóð fram af kynslóð. Tungan er hluti af sjálfsmynd þjóðarinnar og nauðsynlegur tengiliður við fortíðina og menningararfinn. Um leið má ekki gleyma því hversu þróttmikil tungan er og öflug. Nægir að horfa til út- gáfu hér á landi. Fjölda fjöl- miðla er haldið úti jafnt á neti sem prenti. Nokkur hundruð bókartitlar eru gefnir út á ári hverju. Fullveldið var lykilskref í sjálfstæðisbaráttu þjóðar- innar. Fullveldið er ekki sjálf- sagður hlutur, eins og sagan hefur sýnt. Það þurfti að hafa fyrir því að fá fullveldi og það kostar líka fyrirhöfn að halda því. Hingað til hefur það geng- ið vel. Ísland hefur nýtt full- veldið til að taka þátt í alþjóð- legu samstarfi og undirgangast skuldbindingar. Um leið hefur þess verið gætt að þær skuld- bindingar leiði ekki til afsals sjálfsákvörðunarréttarins eða skerði þjóðarhag – eða komið í veg fyrir að það gerðist. Morgunblaðinu í dag fylgir veglegt blað undir yfirskrift- inni Fullveldi Íslands. Í grein- um og viðtölum í blaðinu kem- ur glöggt fram að umræðunni um fullveldið er hvergi nærri lokið. Nýjasti kaflinn í þeirri rimmu snýst um þriðja orku- pakkann, sem snýst um að taka á sig skuldbindingar sem eru ekki bara óþarfar heldur óæskilegar. Saga hundrað ára fullveldis, sú saga sem Sigurður Eggerz talaði um að nú yrði hafist handa við að móta fyrir einni öld, hefur reynst farsæl, ekki síst vegna þess að bóndinn, daglaunamaðurinn og sjómað- urinn lögðu sitt af mörkum og vörðuðu veginn af stórhug. Sú saga vísar veginn inn í framtíð- ina. „Í dag sezt Ísland á bekk með fullvalda þjóðum heimsins“} 100 ára fullveldi Þ að er mér mjög erfitt að skrifa þennan pistil og ég held að útskýr- ingin á því af hverju svo er sé mikilvæg. Í stað þess að skrifa því pistilinn ætla ég að skrifa af hverju mér finnst erfitt að skrifa þennan pistil. Til að byrja með birtist þessi pistill á 100 ára afmæli fullveldis Íslands. Augljóslega ætti ég að nota tækifærið til þess að tala um sjálfstæði harðgerðra íbúa á eyju í miðju Atlantshafinu við norðurheimskautsbaug. Það er margt hægt að tala um og mörgu hægt að hrósa. Það væri hægt að tala um áskorunina sem liggur fyrir framan okkur að klára að ganga frá nýrri stjórnarskrá, okkar eigin stjórnarskrá sem kæmi loksins í staðinn fyrir þá sem við fengum að láni til þess að redda okkur þangað til við gætum samið okkar eigin. En það er erfitt að tala ekki um atburði liðinna daga. Á tímum núvitundar er bara ekki svo auðvelt að bægja þeim atburðum frá og halda áfram. Á morgun segir sá lati og svo gerist ekkert. Það er nefnilega málið, það er svo oft sem ekkert er gert á Íslandi. Stundum kemur það okkur vel en oft kemur það okkur mjög illa. Efnahagshrunið til dæmis, það var ekkert gert í ítrekuðum ábendingum. Okkur gengur vel þegar við stingum ekki verkefnunum undir stól heldur gerum eitt- hvað í þeim. Við bjuggum til nýja stjórnarskrá. Það tókst loksins. Hún var afhent Alþingi til úrvinnslu sem gerði svo ekkert við hana. Þrátt fyrir að hún fengi stuðning í þjóðar- atkvæðagreiðslu. Það var meira að segja búið að setja upp bráðabirgðaákvæði í stjórnarskrá þannig að hægt væri að samþykkja nýja stjórnarskrá án þess að boða til þingkosninga. Það var allt tilbúið, en ekkert var gert. Það kaldhæðnislega við allt þetta er að ef þjóðaratkvæðagreiðslan 1. desember 1918 hefði verið háð sömu skil- yrðum og sett voru í bráðabirgðaákvæðinu, þá hefðum við ekki orðið fullvalda þjóð. Það var nefnilega svo slæm kosningaþátttaka, bara 44% þeirra sem voru með atkvæðisrétt greiddu atkvæði. Margir voru nefnilega heima út af spænsku veikinni. Ég vildi að ég gæti bara gleymt því sem gerðist í vikunni og skrifað falleg orð um 100 ára fullveldisafmæli Íslands. Það sem gerðist var hins vegar ekki eitthvað sem má gleymast og ég held að það besta sem ég geti gert til þess að minnast þess að við erum fullvalda, með sjálfsákvörðunarrétt, sé að vekja athygli á ábyrgðinni sem því fylgir. Við getum sem þjóð tekið saman ákvarð- anir um hvert skal stefna. Við getum sem einstaklingar tekið ákvörðun um hvert við stefnum. Stundum verður árekstur á milli stefnu þjóðar og stefnu einstaklinga. Árekstur sem lýsir sér í spillingu. Í hrossakaupum og sjálftöku þeirra sem við treystum til þess að vinna fyrir okkur. En lítum á björtu hliðarnar, við erum búin að vera fullvalda í 100 ár. Til hamingju Ísland. Björn Leví Gunnarsson Pistill Til hamingju Ísland Höfundur er þingmaður Pírata. bjornlevi@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Meginhluti þess lax semframleiddur er hér álandi er fluttur heill ogkældur til meginlands Evrópu eða Ameríku þar sem hann er unninn og sendur áfram til við- skiptavina. „Laxeldi á Íslandi er at- vinnuvegur í þróun. Ekki er hægt að gera allt í einu,“ segir Guðmundur Stefánsson, framkvæmdastjóri Novo Food, sem rekur dreifingar- stöð fyrir fisk og vinnslu í neytenda- pakkningar í hjarta fiskdreifingar í Frakklandi, Boulogne-sur-Mer. „Hér í Frakklandi er stærsti markaður fyrir lax í Evrópu. Hann er tvískiptur. Annars vegar er fersk- ur lax sem fer svipaða leið og þorsk- ur í fiskborð stórmarkaða eða í neyt- endapakkningum í hillur verslana. Hluti er fluttur frystur. Stór hluti af- urðanna fer í reykingu í Frakklandi eða annars staðar í Evrópu og endar í stórmörkuðum,“ segir Guðmundur. Fluttur óunninn á markað Tilraunir eru gerðar með flökun og aðra fullvinnslu á laxi hér á landi en meginhlutinn er fluttur út heill í kælikössum og unninn á meginlandi Evrópu, meðal annars í Frakklandi og Bretlandi. „Þetta snýst um kostn- að við vinnsluna, flutningskostnað og tolla. Hagstæðara er að fullvinna vöruna nær markaðnum. Það getur breyst með betri tækni við vinnslu og flutninga,“ segir Guðmundur þegar hann er spurður að því hvort íslensku fiskeldisfyrirtækin geti aukið virði afurða sinna með aukinni vinnslu hér heima. Bendir Guðmundur á að lax sé mest fluttur heill um heiminn. Ís- lenski laxinn fari inn í þá keðju. Það sé aftur á móti möguleiki að reyna að auka verðmæti afurðanna með því að selja sérstöðu íslenska laxins með tilliti til hreinleika og að hann er alinn á umhverfisvænan hátt. Á þetta hafi ekki mikið reynt ennþá vegna þess að framleiðslan á Íslandi hafi ekki verið mikil en þó liggi fyrir að margir viðskiptavinir séu reiðu- búnir að greiða meira fyrir þessa ímynd afurðanna á meðan aðrir líti aðeins á vöruna sem lax, sama hvað- an hún kemur. „Með aukinni fram- leiðslu á íslenskum laxi mun afhend- ingaröryggi aukast og það auðveldar markaðssetninguna. Mikilvægt er að laxeldisfyrirtækin á Íslandi standi saman að markaðssetningu á íslenskum laxi,“ segir Guðmundur. Novo Food er í samvinnu við ís- lensk laxeldisfyrirtæki. Arnarlax er helsti framleiðandinn enn sem kom- ið er. Guðmundur segir að fyrir- tækið hafi keypt nokkur hundruð tonn af laxi fyrir franska markaðinn á þessu ári. Hann segir að íslenski laxinn falli vel að flutningakerfi fyrirtækisins. Það hafi aðstöðu til að taka á móti laxinum og dreifa honum áfram. Hluti afurðanna fer í frekari vinnslu og neytendaumbúðir í nýrri verksmiðju fyrirtækisins. Vandræði vegna mótmæla Starfsmenn Novo Food og ann- arra fyrirtækja í fiskdreifingu í Frakklandi hafa staðið í ströngu að undanförnu vegna mótmæla gegn hækkun eldsneytisskatta. Lokanir vega hafa valdið miklu tjóni. Fersk- ur fiskur þolir ekki bið í flutningum og svo þegar vegirnir opnast á ný verður offramboð og selja þarf vör- urnar á lægra verði. Mikil vandræði voru vegna þessa í síðustu viku en rólegra yfir síðustu daga. Novo Food er í eigu Guðmund- ar og Sigurðar Péturssonar sem er framkvæmdastjóri hjá fiskeldis- fyrirtækinu Arctic Fish og fjöl- skyldna þeirra. Fyrirtækið tengist fiskeldinu á Íslandi einnig með eignarhlut í Arctic Fish. 70 starfs- menn eru hjá Novo Food í Frakk- landi. Fá hærra verð fyrir íslenskan eldislax Flugfiskur Fyrirtækin þurfa að hafa hraðar hendur til að koma fiskinum ferskum á markað. Hér fer fiskur um borð í vél á Keflavíkurflugvelli. Novo Food hefur byggt starfsemi sína á því að flytja inn fersk- an fisk frá Ís- landi og Norður- Evrópu og dreifa á franska markaðnum. Hafa afurðirnar farið á heild- sölumarkað og í fiskborð stór- markaða. Aukning er í sölu tilbúinna rétta og á ferskum fiski í neyt- endapakkningum sem fólk velur úr hillum stórmarkaða. Í því skyni að koma sér lengra inn á markaðinn keypti Novo Food ferskfiskpökkunarverksmiðju í Boulogne-sur-Mer síðastliðið vor. „Þetta hefur gengið vel. Við tókum við verksmiðjunni í byrj- un apríl og höfum verið að fjár- festa í nýjum tækjabúnaði og viðhalda samningum við þá við- skiptavini sem voru fyrir. Á næsta ári förum við síðan á fullt í það að finna nýja markaði og viðskiptavini,“ segir Guðmund- ur Stefánsson. Lengra inn á markaðinn KEYPTU VERKSMIÐJU Guðmundur Stefánsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.