Morgunblaðið - 01.12.2018, Page 31
UMRÆÐAN 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2018
Canada Gose hefur framleitt hágæða útivistar-
fatnað í Kanada fyrir erfiðustu aðstæður síðan
1957 og er nú leiðandi á því sviði á heimsvísu.
CanadaGoose fæst í
Nordic Store Lækjargötu
Allar Canada Goose dúnúlpur eru framleiddar
úr bestu fáanlegu hráefnum á vistvænan hátt
og þeim fylgir lífstíðarábyrgð.
Okkar verð er sambærilegt eða
betra en í flestum öðrum löndum.
Lækjargötu 2 www.nordicstore.is
Opið kl . 9 -22 alla daga
Mens
Expedition Parka
129.990 kr.
Ladies
Expedition Parka
129.990 kr.
Nordic Store er viðurkenndur söluaðili
Canada Goose á Íslandi. Í verslun okkar í
Lækjargötu 2 er mesta úrval af Canada
Goose vörum fyrir herra og dömur á landinu.
Um miðja þessa öld
verða liðin þúsund ár
frá því að fyrsti
kristni biskupinn tók
til starfa á Íslandi.
Viðhorf fólks var og er
mismunandi hvað
varðar biskupa og
ágæti þeirra. Þeir hafa
líka verið margir og
misjafnir í gegnum
tíðina.
Sigurbjörn Ein-
arsson (1911-2008) naut talsverðs
trausts. Hann var vinsæll og þótti
vandvirkur í störfum, til vegsauka
fyrir kirkjuna og samfélagið sem
hann þjónaði. Hann kom víða við í
verkum sínum. Þekkt eru ummæli
þáverandi forseta Íslands, Ólafs
Ragnars Grímssonar, send með
samúðarkveðju við útför hans 2008:
„Sigurbjörn biskup er eitt mesta
sálmaskáld íslensku þjóðarinnar á
síðari tímum.“
Hér verður einkum fjallað um
annan biskup; Lárentíus Kálfsson
(1267-1331). Sagt er frá honum í
nokkrum ritum, svo sem Larentíus
sögu biskups í Biskupssögum III
(1998). Það er bæði ítarlegt og
ævagamalt, en þó til í nýlegri út-
gáfu. Síðan í Íslenskri kirkjusögu
(2012) Torfa Stefánssonar Hjaltal-
ín. Þar er svo að orði komist um
þennan mann: „Lárentíus þessi
virðist hafa verið einn íslenskur
Job á miðöldum. Slíkar voru þær
raunir sem á hann voru lagðar. Að
sama skapi voru laun dyggðanna
mikil.“ Einnig í Nokkrum fyrir-
lestrum (1921) eftir Þorvald Guð-
mundsson. Séra Friðrik Frið-
riksson prófarkalas
hluta þessa rits, en
fyrirlesturinn nefndist
Lárentíus biskup og
var fluttur hjá KFUM
1915.
Forysta og ný-
breytni athuguð
Áður en lengra er
haldið er rétt að segja
frá því að lausleg út-
tekt var gerð á sögu
beggja þessara bisk-
upa varðandi ákveðin
mál. Með því var ætl-
unin að varpa betra ljósi á þá sem
leiðtoga, með því m.a. að áætla vin-
sældir og hins vegar nýsköpunar-
starf þeirra eða nýjungar í kristi-
legu starfi. Þetta ætti ekki að
skyggja neitt á merka minningu
þeirra, heldur kynna betur starf
þeirra.
Úttektin virkaði þannig að settar
voru fram tvær staðhæfingar; var
biskup framúrskarandi í störfum
og var hann frumkvöðull. Fyrir-
liggjandi upplýsingar um þá voru
notaðar til að meta það. Margt
mælir með því að Sigurbjörn hafi
verið framúrskarandi og tekið und-
ir það hér. Sjónvarpið var svo vett-
vangur fyrir frumkvöðlastarf hans
síðla á 20. öld. Margir minnast ár-
legrar messu þar sem hann predik-
aði. Sem nýsköpunarvinnu má svo
flokka ritun margra vandaðra bóka,
kveðskap og þýðingar.
Þá nánar um Lárentíus. Aðeins
verða nefnd valin lykilatriði á ferli
hans. Hann fæddist og ólst upp
fyrir norðan og lærði í Hólaskóla.
Þaðan lauk hann námi og fékk
prestvígslu aðeins 22 ára. Hann
naut virðingar þar og þótti vand-
aður í samskiptum og standa sig
vel í námi. Síðan varð hann skóla-
meistari Hólaskóla í nokkur ár áð-
ur en hann hélt til Noregs.
Þar gegndi Lárentíus ýmsum
embættum í rúman áratug. Þarna
kynntist hann merkiskonu og átti
með henni barn. Hún ól upp son-
inn, sem átti eftir að vera með hon-
um í fylgdarliði þegar hann var
orðinn biskup. Áður gekk Lár-
entíus í gegnum mesta erfiðleika-
tímabil ævi sinnar.
Hrakningar og yfirbót
Hann var sendur til Íslands til
að kanna stöðu mála kirkjustarfs
þar, sem slæmar fréttir höfðu bor-
ist af. Samviskusamleg viðleitni
hans í þeim málum mætti þá and-
stöðu þar. Hann fer svo aftur til
Noregs með óklárað verk en veit
samt að margt er að. Þessari skák
lýkur illa, því hann er svo ásak-
aður, borinn röngum sökum og
endar í fangelsi, þar sem honum er
misþyrmt.
Þegar hann er látinn laus fer
Lárentíus aftur til Íslands, þar sem
honum tekst að fá ráðningu sem
klausturkennari. Klaustrin voru þá
miklar menningarmiðstöðvar sem
buðu upp á margt auk menntunar.
Þau voru líka mikið þarfaþing fyrir
bágstadda, sem fengu þar umönn-
un við hæfi. Hann var kennari,
lengst af í Þingeyraklaustri, í rúm-
an áratug við góðan orðstír. Hann
var aftur mikils metinn m.a. fyrir
tilstuðlan fyrrverandi nemenda
sinna, sem reyndust áhrifaríkir, og
fjölskyldna þeirra.
Sumarið 1322 bárust Lárentíusi
tvö bréf frá þáverandi vígslubisk-
upi. Í öðru voru honum fyrirgefin
(meint) fyrri afbrot sín, v. klaustur-
vistar. Í hinu var hann skipaður
Hólabiskup. Ekki kom þar fram að
norskur fyrirrennari hans á Hólum
hafði rétt fyrir andlátsstund sina
þar ytra mælt eindregið með hon-
um í starfið við vígslubiskupinn.
Blómleg biskupstíð
Biskupstíð Lárentíusar ein-
kenndist af umbótum og var
kirkjustarfið betrumbætt verulega.
Vel er greint frá því í heimildum,
en ekki tíundað hér nema að litlu
leyti. Mikil framsókn var þá í
fræðslu presta o.fl. Hann kenndi
alla sína biskupstíð við Hólaskóla.
Stofnaður var þá svokallaður
„prestaspítali“ á Ólafsfirði, þar sem
aldraðir og heilsulitlir prestar gátu
eytt ævikvöldinu.
Umfangsmikið líknarstarf á veg-
um kirkjunnar á þessum tíma er
tilgreint í heimildum. Margt fólk í
jaðarhópum þess tíma, svo sem
fatlaðir og aldraðir, naut slíkrar að-
stoðar við framfærslu. Lárentíus
lést 1331 eftir að hafa verið biskup
í sjö ár og er hér metinn sem fram-
úrskarandi og líka frumkvöðull
vegna „prestaspítalans“ og nýjunga
í fræðslu- og líknarmálum. Hann
var þolgóður í þrengingum og
atorkusamur í starfi. Ekki er
ósennilegt að dæmisagan um mis-
kunnsama Samverjann (Lúk. 10.29-
37) hafi hvatt hann til góðra verka.
Enginn verður óbarinn biskup
Eftir Ævar Halldór
Kolbeinsson » Lárentíus barðist
trúarinnar góðu
baráttu. Hann var
Hólabiskup á 14. öld.
Ævar Halldór
Kolbeinsson
Höfundur er aldraður öryrki og einn
af aðdáendum lífsins.
skammti. Álit sérfræðinga Samein-
uðu þjóðanna er að Gaza verði vart
byggilegt í meira en tvö ár enn,
miðað við núverandi aðstæður. Þeg-
ar kúguninni er mótmælt raðar her-
inn upp leyniskyttum og fær heim-
ild til að skjóta fólk á öllum aldri til
bana ef það vogar sér að taka þátt í
mótmælum. Þannig hafa um 240
manns verið myrt síðan 30. mars
síðastliðinn. Og særðir af völdum
skotsára og táragass eru í tugþús-
unda tali. Margir hafa misst gang-
limi og eru í þörf fyrir gervifætur.
Undirritaður var nýverið á ferð til
Gaza með efni í gervifætur, framlag
Össurar Kristinssonar, sem gat
vart komið á heppilegri tíma.
Vopnahlé á Gaza –
ógnaröld á Vesturbakkanum
Nú er nýtilkomið vopnahlé á milli
Ísraelsstjórnar og Hamas-stjórnar-
innar á Gaza. Á sama tíma hafa
Egyptar, sem höfðu milligöngu um
vopnahléið, eitthvað slakað á landa-
mærunum í Rafah. Á hinn bóginn
herðir Ísraelsstjórn enn á sókn
sinni á Vesturbakkanum, þar sem
landtökufólk með stuðningi hersins
sölsar undir sig æ stærri landsvæði,
og stöðugt er verið að ráðast á pal-
estínsku íbúana, ráðast inn á heim-
ili, handtaka jafnt börn sem full-
orðna.
Íslenskar konur hafa verið áber-
andi í sjálfboðastarfi í sveitum
landsins. Þær hafa hjálpað til við
ólífutínslu þar sem ofbeldi land-
tökufólks er grófast og staðið við
hlið fólksins í mótmælum gegn her-
náminu. Konur úr þessu starfi
munu greina frá reynslu sinni í
Iðnó í kvöld.
Höfundur er læknir.