Morgunblaðið - 01.12.2018, Side 38
38 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2018
Kristján Þórður Hrafnsson, skáld og rithöfundur, er fimmtugur ídag. Hann hefur sent frá sér fjölda skáldverka, ljóð, skáldsögurog leikrit og jafnframt þýtt fjölmörg leikrit úr frönsku og ensku.
Af skáldverkum hans má nefna ljóðabækurnar Jóhann vill öllum í húsinu
vel og fleiri sonnettur og Tveir Elvis Presley aðdáendur og fleiri sonn-
ettur, skáldsöguna Hugsanir annarra og leikritið Fyrir framan annað fólk
sem Óskar Jónasson byggði á samnefnda kvikmynd sína, en þeir Kristján
skrifuðu handrit myndarinnar í sameiningu.
„Ég lauk nýlega við að þýða Ríkharð III eftir Shakespeare fyrir
Borgarleikhúsið, en verkið verður jólasýning leikhússins í ár í leikstjórn
Brynhildar Guðjónsdóttur. Í sviðsetningu sinni leggur Brynhildur áherslu
á þátt kvennanna í leikritinu. Hún nálgast verkið á mjög spennandi hátt.“
Kristján Þórður segir að þegar hann líti yfir farinn veg sé hann þakk-
látur fyrir að hafa fylgt þeirri köllun sinni að gerast skáld og rithöfundur.
„Ég var barn að aldri þegar skáldskapurinn fangaði huga minn. Og skáld-
skapurinn hefur ekki sleppt tökum á mér síðan. Mér hefur fundist gaman
að fást við ólík form skáldskapar, ljóðlist, leikritun og sagnagerð. Hið
bundna mál er mér sérstaklega kært. Það er einhver seiður í samspili
ríms og stuðla sem hefur alltaf heillað mig.“
Eiginkona Kristjáns Þórðar er Melkorka Tekla Ólafsdóttir, leikhús-
fræðingur, leikstjóri og leiklistarráðunautur Þjóðleikhússins. Dóttir
þeirra er Thea Snæfríður Kristjánsdóttir, nemi í Hagaskóla.
Kristján segist sem stendur vera að vinna að næstu skáldverkum. Að-
spurður segist hann ætla að taka það rólega í dag og hafa það huggulegt
með nánustu fjölskyldu.
Fjölskyldan Kristján Þórður, Thea Snæfríður og Melkorka Tekla á
gönguferð í Borgarfirði fyrir tveimur árum.
Skáldskapurinn
fangaði hugann
Kristján Þórður Hrafnsson er fimmtugur
R
eynir Sigurður Gúst-
afsson fæddist á
Laugavegi 65 í
Reykjavík 1.12. 1938
og ólst þar upp: „Það
var nú lítil umferð um Laugaveg-
inn fyrir 80 árum þegar ég var að
slíta þar barnsskónum. Þarna voru
þó mörg börn í nágrenninu. Einn
leikfélagi minn var Halldór Blön-
dal, síðar alþingismaður og ráð-
herra. Við lékum okkur á Skóla-
vörðuholtinu og í fjörunni niður af
Skúlagötunni. En Halldór flutti
síðan til Akureyrar.“
Reynir gekk í Laugarnesskóla,
Ingimarsskóla við Lindargötu, lauk
sveinsprófi í rafvirkjun frá Iðnskól-
anum í Reykjavík 1958 og fékk síð-
an meistararéttindi. Hann var á
samningi hjá Jóni Guðjónssyni
rafvirkja.
Reynir Gústafsson, rafvirkjameistari í Grundarfirði – 80 ára
Vélsleðamót Hér er Reynir, ásamt félögum sínum, í einni af fjölmörgum vélsleðaferðum sem hann hefur farið í.
Vann lengi að málefn-
um björgunarsveita
Í sumarfríi Reynir og Elísabet slaka á við sjóinn á ferðalagi í Tyrklandi.
Sauðárkrókur Stefán Atli Brynjarsson fæddist 26. mars 2018 á Akureyri. Hann
vó 3.480 g og var 50 cm á lengd. Foreldrar hans eru Brynjar Páll Rögnvaldsson
og Jóhanna Huld Höskuldsdóttir.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is