Fréttablaðið - 07.03.2019, Blaðsíða 62
SAMBAND ÞJÓÐLEIK-
HÚSSINS VIÐ HÖFUÐ-
SKÁLD BRETLANDSEYJANNA
HEFUR VERIÐ BROKKGENGT Á
SÍÐUSTU ÁRUM.
LEIKHÚS
Jónsmessunæturdraumur
HH HH
Þjóðleikhúsið
Höfundur: William Shakespeare
Þýðing: Þórarinn Eldjárn
Leikstjórn: Hilmar Jónsson
Leikarar: Atli Rafn Sigurðarson,
Birgitta Birgisdóttir, Guðjón Davíð
Karlsson, Pálmi Gestsson, Eygló
Hilmarsdóttir, Þórey Birgisdóttir,
Oddur Júlíusson, Hákon Jóhann-
esson, Ólafía Hrönn Jónsdóttir,
Sigurður Sigurjónsson, Bjarni Snæ-
björnsson, Edda Arnljótsdóttir,
Aron Steinn Ásbjarnarson, Hildur
Jakobína Tryggvadóttir, Hildur
Ketilsdóttir, Juliette Louste, Sindri
Diego og Skotta
Leikmynd: Eva Signý Berger
Búningar: Karen Briem
Danshöfundur: Katrín Gunnars-
dóttir
Lýsing: Halldór Örn Óskarsson
Tónlist, tónlistarstjórn og útsetn-
ingar: Gísli Galdur Þorgeirsson
Hljóðmynd: Gísli Galdur Þor-
geirsson og Kristján Sigmundur
Einarsson
Þýðing söngtexta: Magnea J.
Matthíasdóttir
Um síðustu helgi frumsýndi Þjóð
leikhúsið Jónsmessunæturdraum
eftir William Shakespeare, í nýrri
þýðingu Þórarins Eldjárns, á stóra
sviðinu. Verkið er ærslafullur
gaman leikur um ást, öfund og losta
í fjölbreyttum og stundum forvitni
legum formum en allt fer vel að
lokum. En þó leikritið endi farsæl
lega þýðir það ekki að sýningin fari
á sama veg …
Heillandi í byrjun
Jón s me s s u n æ t u r d r au mu r e r
heillandi í byrjun. Anddyri Hótels
Aþenu, sem myndi sóma sér vel
í kvikmynd eftir Wes Anderson,
býður áhorfendur velkomna með
litagleði, dillandi tónlist og köldu
kampavíni. Hilmar Jónsson, leik
stjóri sýningarinnar, kynnir per
sónur verksins á ferskan máta og
býr til lifandi umhverfi þar sem
ólíkir söguþræðir samtvinnast á
sviðinu, leikarar lauma sér inn og út
úr hótelherbergjum og spjalla þess á
milli. En þessi ágæta stemming varir
stutt og f ljótlega dettur botninn úr
sýningunni. Áhugaverðu hugmynd
irnar sem kynntar voru til sögunnar
í byrjun birtast ekki aftur, hótelið er
yfirgefið og skelin notuð til að tákna
töfraskóginn þar sem unga fólkið
týnist, en þar týnist leikritið líka.
Ósanngjarnt er að leggja ábyrgð
Týnd í skógi Shakespeares
ina á axlir unga fólksins í burðar
hlutverkum sýningarinnar, þrjú
þeirra eru að stíga sín fyrstu skref
á atvinnusviði. Oddur Júlíusson,
sá reynslumesti í kvartettinum, er
að marka sér sérstöðu á íslensku
leiksviði sem eitt mesta leikara
efni sinnar kynslóðar. Hann er
fjölhæfur, tæknilega fær og fimur í
textaflutningi. Í hans höndum ber
Lýsander af fjórmenningunum, svo
nokkru munar. Þórey Birgisdóttir
leikur Hermíu, ástina hans, af til
finningalegum þrótti en fótar sig
betur í kómíkinni en dramatíkinni.
Helena, leikin af Eygló Hilmars
dóttur, er besta vinkona Hermíu og
heltekin af durtinum Demetríusi,
leikinn af Hákoni Jóhannessyni.
Eygló hefur margt til brunns að
bera en líður fyrir vonda leikstjórn
á hinni örvæntingarfullu Helenu.
Hennar hlutverk er að hlaupa á
eftir Demetríusi og bera sig algjör
lega í von um að hann verðlauni
hana með væntumþykju. Furðuleg
karakteráhersla árið 2019, Helena
er miklu áhugaverðari karakter en
svo. Við þennan vanda á Hákon
einnig að etja og leikur Demetríus
kaldan, nánast fráhrindandi, sam
band þeirra tveggja verður þannig
aldrei skiljanlegt.
Undirbyggingu vantar
Hinn duldi drifkraftur Jónsmessu
næturdraums er hið tvíeggja
tvenndarsamband aðalsfólksins
Þeseifs og Hippólítu annars vegar og
huldufólksins Óberons og Títaníu
hins vegar. Ástríða þeirra og vélanir
Þeseifs/Óberons hrinda öllu af stað.
Yfirleitt eru þessi hlutverk leikin af
sömu tveimur leikurunum og í þetta
skiptið eru það Atli Rafn Sigurðar
son og Birgitta Birgisdóttir sem
eiga að tendra ástríðubálið. Ekki
heppnast það betur en svo að þau
eru bæði aftengd og áhugalaus, þá
sérstaklega Atli Rafn. Birgitta bylgj
ast um sviðið af munúð en kveikir
aldrei tilfinningalegt líf í Títaníu.
Atli spígsporar um hjúpaður gervi
demöntum og kaldhæðni sem hefta
hann frekar en frelsa.
Búkki, hin tvíhyrnda hjálpar
hella Óberons, er leikinn af Guðjóni
Davíð Karlssyni af miklum móð en
persónutöfrana vantar. Samband
hans og Óberons á að vera á hómó
erótísku nótunum sem heppnast
illa vegna þess að undirbygginguna
vantar. Ólafía Hrönn Jónsdóttir
leikur hlutverk Bossa og ætti að vera
kjörin í hlutverkið. En hún leitar
aftur í gamla dragkóngatakta sem
hentar verkinu illa, Bossi æðir um á
skjön við alla og verður truflandi afl
í framvindunni.
Starfsmenn Hótels Aþenu eru
ekki af verri endanum en hópinn
skipa fyrrnefnd Ólafía Hrönn,
Sigurður Sigurjónsson, Bjarni Snæ
björnsson, Pálmi Gestsson, Edda
Arnljótsdóttir og Aron Steinn
Ásbjarnarson. Þeirra ljós fær svo
sannarlega að skína þegar hótel
starfsmennirnir frumsýna leikritið
inni í leikritinu, „Af Pýramusi unga
og Þispu, stuttur þáttur, þrautleiðin
legur sorgargamanleikur“ enda
besta atriði sýningarinnar. Reynslu
boltarnir Pámi og Sigurður skilja
að minna er meira þegar kemur að
gamanleik en Bjarni lætur freistast
og leitar í óþarfa ýkjur. Synd er að
sjá hæfileika Eddu jafn vannýtta í
verki sem hún ætti að blómstra í.
Aron Steinn gerir sér lítið fyrir, með
hjálp smáhundsins Skottu, og stelur
senunni, án þess að segja stakt orð.
Íburðarmikil umgjörð
Listræn umgjörð sýningarinnar
er íburðarmikil og töfrandi. Leik
myndahönnuðurinn Eva Signý
Berger er að ná tökum á víddum
stóra sviðsins, hótelið er listasmíð
en týnist þegar hringsviðið fer af
stað sem setur stigapallinn í for
grunn, þannig takmarkast rýmið
frekar en að opnast. Töfraskógurinn
lifnar aldrei við og hótelhugmyndin
er illa nýtt. Búningahönnun Karen
ar Briem er vissulega djörf og glys
gjörn en skortir, líkt og sýninguna,
heildarmynd.
Hæfileikar Gísla Galdurs Þor
geirssonar á tónlistarsviðinu eru
ótvíræðir, og hinir frumsömdu
tónar hans hér eru hljómþýðir, en
sjaldan hefur honum misheppnast
jafn hrapallega í tónlistarstjórnun.
Sú ákvörðun að pota tilviljunar
kenndum tónlistaratriðum inn í
sýninguna er ekki bara vond heldur
illa útfærð og senurnar eru vand
ræðalegar. Alla rekur í rogastans á
meðan karakterar bresta í karókí
söng til að útskýra sína afstöðu í
verkinu, eftir hlé sjást síðan þessi
atriði ekki meir. Þýðing söng
textanna er líka alveg á skjön við
þýðingu leiktextans enda er önnur
manneskja þar að baki. Í heildina
tekst Katrínu Gunnarsdóttur betur
upp þegar kemur að dansinum, sér
staklega sviðshreyfingum álfanna,
alveg fram að síðasta atriði sýning
arinnar sem er álíka dapurlegt og
karókíbræðingurinn fyrir hlé.
Samband Þjóðleikhússins við
höfuðskáld Bretlandseyjanna hefur
verið brokkgengt á síðustu árum og
ekki skánar það með Jónsmessu
næturdraumi. Þýðing Þórarins Eld
járns er ágæt en túlkun listrænna
stjórnenda nær aldrei neinni dýpt.
Hilmar skortir samræmda hug
myndafræði og er sýningin saman
sett úr stökum atriðum sem hann
nær aldrei að bræða saman. Leikar
arnir virðast vera að leika í mis
munandi sýningum, hver og einn
með mismunandi nálgun. Alltof
mikil áhersla er lögð á umgjörðina
og sniðugar skyndilausnir frekar en
að sýna bæði textanum og áhorf
endum þá virðingu sem þau eiga
skilið. Sigríður Jónsdóttir
NIÐURSTAÐA: Innihaldslítill
glingurglundroði.
„En þó leikritið endi farsællega þýðir það ekki að sýningin fari á sama veg.“
Rennihurðabraut
svört (Barnyard)
Fyrir rennihurð allt að 100 kg.
Stílhrein og auðveld í uppsetningu.
Braut fest á vegg.
Fyrir hurðarbreidd allt að 1000mm.
Hægt er að fá framlengingar
í 45 cm og 90cm.
Verð :
19.950 m/vsk.
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
h ú s g a g n av e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Komið og skoðið úrvalið
KEBE
Hvíldarstólar
Tegundir: Rest og Fox
Opið virka dag
a
11-18
laugardaga
11-15
7 . M A R S 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R30 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING
0
7
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:3
7
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
7
F
-D
3
E
8
2
2
7
F
-D
2
A
C
2
2
7
F
-D
1
7
0
2
2
7
F
-D
0
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
B
F
B
0
7
2
s
_
6
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K