Fréttablaðið - 07.03.2019, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 07.03.2019, Blaðsíða 8
Fyrsta Marel-vogin varð kveikjan að gagnabyltingu í íslenskum sjávarútvegi. Síðan þá höfum við byggt á gögnum og nýsköpun til að auka verðmæti og minnka sóun. Fjörutíu árum síðar erum við í sterkri stöðu á heimsvísu og tilbúin að leiða næstu byltingu í matvælaiðnaði. Kynntu þér ársskýrslu Marel á ar2018.marel.com TÖLUVERÐUR ÁRANGUR Í 40 ÁR Lágmarkslaun á Íslandi eru um 70 prósentum hærri en lágmarkslaun í Póllandi þegar búið er að leiðrétta fyrir verðlagi. Deildarforseti hagfræði­ deildar Háskóla Íslands segir ólíklegt að miklar hækkanir á lægstu launum muni skila sér í kaupmáttaraukn­ ingu á þessum tímapunkti í hag­ sveiflunni. Um 34 prósent þeirra sem flutt hafa hingað til lands á síðustu árum koma frá Póllandi. Þar í landi eru lág­ markslaun um fimmtungur af lág­ markslaunum á Íslandi. Ef leiðrétt er fyrir verðlagi eru lágmarkslaun á Íslandi engu að síður um 70 prósent­ um hærri en í Póllandi. Þannig getur Pólverji á lágmarkslaunum starfað hér og lifað með sömu neyslu og á lágmarkslaunum í Pólland en auk þess sent til Póllands nærri tvöföld pólsk lágmarkslaun. „Þessi launamunur við útlönd setur þrýsting á íslenskan vinnu­ markað. Við erum hluti af hinum evrópska vinnumarkaði þar sem töluverður launamunur er til staðar. Í vestari hluta álfunnar fær fólk meiri umbun fyrir menntun en þekkist hérlendis, jafnframt fá ófaglærðir lægri laun þar ytra, einkum þó í austari hluta álfunnar. Fólksflutn­ ingar til og frá landinu hafa því verið með þeim hætti að við höfum verið að missa frá okkur ungt og menntað fólk en fengið ófaglært erlent vinnu­ afl til landsins,“ segir Ásgeir Jóns­ son, deildarforseti hagfræðideildar HÍ, og bendir á að frá árinu 2011 hafi erlendu starfsfólki fjölgað um 15 þúsund. Lágmarkslaun samkvæmt kjarasamningum nema 300 þúsund krónum. Í kröfugerð VR og Eflingar er þess krafist að lágmarkslaun verði hækkuð upp í 426 þúsund frá og með 1. janúar 2021. „Miklar hækkanir kauptaxta hérlendis umfram það sem þekkist erlendis hafa ávallt leitt til gengis­ veikingar, sérstaklega þegar raun­ gengið er hátt eins og það er nú. Ég held að það sé ekki með nokkru móti hægt að þrýsta raungenginu hærra en það er nú miðað við þær blikur sem eru á lofti í helstu útflutnings­ atvinnuvegum okkar. Hagkerfið þolir ekki mikið hærra raungengi þannig að ég get ekki séð að kaup­ máttur muni aukast ef þessum kröf­ Lágmarkslaun um 70 prósentum hærri hér en í Póllandi Ef leiðrétt er fyrir verð- lagi eru lágmarkslaun á Íslandi um 70 prósentum hærri en í Póllandi. Það- an koma flestir innflytj- endur. Miklar hækkanir á lágmarkslaunum geta leitt til gengisveikingar eða atvinnuleysis að sögn hagfræðings. Hag- kerfið þoli ekki mikið hærra raungengi. um verður náð fram,“ segir Ásgeir. „Þessi atburðarás hefur endur­ tekið sig gegnum hagsöguna. Miklar hækkanir á töxtum leiða til þess að gengið gefur eftir. Þá fer verðbólgan af stað, étur upp hækkanirnar og við erum aftur komin á byrjunarreit. Það þarf að hafa í huga að við erum í sam­ keppni við erlendar þjóðir og getum ekki bara sest niður og ákveðið pólit­ ísk viðmið fyrir laun sem eru úr takti við það sem er að gerast erlendis.“ Störf gætu horfið Gjaldeyrisforði Seðlabanka Íslands hefur aldrei verið jafn stór og því hefur bankinn burði til að grípa inn í og sporna við veikingu krónunnar. Ásgeir segir að þá geti launahækk­ anirnar brotist fram í atvinnuleysi ef genginu verður haldið föstu sam­ ✿ Lágmarkslaun árið 2018 í þeim ríkjum sem flestir erlendir einstaklingar hafa flutt frá til Íslands í þúsundum króna ✿ Lágmarkslaun árið 2018, leiðrétt fyrir verðlagi í þeim ríkjum sem flestir erlendir einsaklingar hafa flutt frá til Íslands í þúsundum króna 300 250 200 150 100 50 0 4% 4% 34% 7% 3% Skipting aðfluttra erlendra aðila eftir fráflutningslandi 2010 til 2017 Ísland Þýskaland Bandaríkin Pólland Litháen Lettland 300 204 151 66 59 54 300 250 200 150 100 50 0 4% 4% 34% 7% 3% Ísland Þýskaland Bandaríkin Pólland Litháen Lettland 300 293 192 179 127 127 Skipting aðfluttra erlendra aðila eftir fráflutningslandi 2010 til 2017 +351% +68% Flestir þeirra sem flytja til landsins í atvinnuskyni eiga rætur sínar að rekja til Póllands. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR MARKAÐURINN 7 . M A R S 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 7 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :3 7 F B 0 7 2 s _ P 0 6 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 6 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 7 F -C 0 2 8 2 2 7 F -B E E C 2 2 7 F -B D B 0 2 2 7 F -B C 7 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 7 2 s _ 6 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.