Fréttablaðið - 07.03.2019, Blaðsíða 56
Keflavík - Snæfell 79-77
Keflavík: Dinkins 35, Bryndís Guðmunds-
dóttir 14, Katla Rún 8, Birna Valgerður 8.
Snæfell: Kristen McCarthy 31, Angelika
Kowalska 21, Rebekka Rán Karlsdóttir 13.
Stjarnan - KR 80-58
Stjarnan: Danielle Rodriguez 36, Bríet Sif
Hinriksdóttir 18, Auður Íris Ólafsdóttir 7.
KR: Orla O’Reilly 18, Kiana Johnson 16, Þor-
björg Andrea Friðriksdóttir 14.
Breiðablik - Skallagr. 81-72
Breiðablik: Orazovic 19, Crawford 18, Telma
Ásgeirsdóttir 10, Þórdís Kristjánsdóttir 10.
Skallagrímur: Shequila Joseph 24, Maja
Michalska 14, Sigrún S. Ámundadóttir 14.
Nýjast
Domino’s kvenna
PSG - Man.Utd 1-3
0-1 Lukaku (2.), 1-1 Juan Bernat (12.), 2-1 Lu-
kaku (30.), 3-1 Marcus Rashford (víti) (90.).
Manchester United er þar af leiðandi
komið áfram í átta liða úrslit keppninnar.
Porto - Roma 2-1
1-0 Tiquinho Soares (27.), 1-1 Daniele De
Rossi (víti) (37.), 2-1 Moussa Marega (55.).
Framlenging stóð yfir í leik Porto og Roma
þegar Fréttablaðið fór í prentun.
Meistaradeildin
Staðan í deildinni
Lykilatriðið hjá ÍBV
er að vera agaðar á
bolta og klára sóknirnar
með skoti í staðinn fyrir að
fá hraðaupphlaup í bakið.
Jónatan Þór Magnússon,
þjálfari KA/Þór
Efri
Valur 34
Keflavík 34
KR 30
Stjarnan 28
Neðri
Snæfell 26
Haukar 16
Skallagrímur 12
Breiðablik 4
HANDBOLTI Undanúrslitin í Coca-
Cola-bikarnum í kvennaflokki fara
fram í Laugardalshöll í dag en með
því hefst úrslitahelgi bikarsins sem
nær hámarki á laugardaginn þegar
bikarúrslitaleikurinn í karla- og
kvennaf lokki fer fram. Öll fjögur
liðin sem mæta til leiks hafa unnið
bikarmeistaratitilinn. Ríkjandi
bikarmeistarar Fram eru lang sigur-
sælasta liðið í keppninni með fimm-
tán titla, sjö titlum meira en næsta
lið sem er Stjarnan en þessi lið
mætast einmitt í kvöld. Þarna eru
að mætast liðin í fyrsta sæti, Valur,
og fjórða sæti, ÍBV, annars vegar og
hins vegar liðið í öðru sæti, Fram,
og Stjarnan sem er í sjötta sæti Olís-
deildarinnar þegar fjórar umferðir
eru eftir. Fyrir fram má gera ráð
fyrir að tvö efstu lið deildarinnar,
Valur og Fram sem hafa ekki tapað
mörgum leikjum, fari áfram í
úrslitaleikinn en í bikarkeppnum
er aldrei spurt um stöðu liðanna í
deildinni.
Fyrstu fimmtán mínúturnar í
leiknum skipta öllu máli
Eftir að liðin skildu jöfn í fjórðu
umferð Olís-deildar kvenna í
Vestmannaey jum hef ur Vals-
liðið unnið seinni tvo leiki liðanna
sannfærandi. Tæpur mánuður er
síðan liðin mættust síðast þar sem
Valur vann þrettán marka sigur í
Eyjum og hélt Eyjakonum í sextán
mörkum. Fréttablaðið fékk Jónatan
Þór Magnússon, þjálfara KA/Þórs í
Olís-deild kvenna, til að spá í spilin.
„ÍBV átti mjög dapran dag síðast
þegar liðin mættust og Valsliðið
leysti allt sem ÍBV reyndi að gera
mjög vel en ég á von á jöfnum og
spennandi leik í dag. Ég tel að Vals-
liðið muni ekki ná að stjórna leikn-
um jafn vel. Spennustigið er hærra
og ÍBV gæti fundið aukagír sem á
eftir að gera Valsliðinu erfitt fyrir.
Í stórleikjum myndast oft einhver
sérstök stemming í kringum ÍBV,“
sagði Jónatan og hélt áfram:
„ÍBV var með hræðilega mikið af
tæknifeilum, töpuðum boltum og
slíku í síðasta leik sem er banabiti
gegn Valsliðinu. Sterkasta vopn Vals
er vörnin og Íris hefur verið frábær
fyrir aftan vörnina. Ef stærstu póst-
arnir hjá ÍBV, Greta og Ester, passa
betur upp á boltann og þær ná
að leysa vörnina hjá Val þá er allt
mögulegt. Það kæmi mér ekkert á
óvart ef Hrafnhildur myndi reyna
að brydda upp á einhverju nýju í
þessum leik.“
Hann taldi lykilatriði að halda sjó
fyrstu mínútur leiksins.
„Valsliðið er sterkt til baka og
lyki latriðið hjá ÍBV er að vera agað-
ar á bolta og klára sóknirnar með
skoti í staðinn fyrir að fá hraðaupp-
hlaup í bakið. Valsliðið er líka með
meiri breidd, þær eiga eflaust eftir
að reyna að keyra upp hraðann
sem gæti reynst Eyjakonum erfitt.
Lykilatriðið hjá ÍBV er að komast
í gegnum fyrsta korterið, ef Valur
er með 4-5 mörk í forskot þar gæti
þetta orðið erfitt fyrir ÍBV.“
Framarar þrífast á pressu
Í seinni leiknum mætast bikar-
meistarar síðustu þriggja ára og
sigursælustu liðin í 43 ára sögu
keppninnar, Stjarnan og Fram.
Fram er ríkjandi deildar-, bikar- og
Íslandsmeistari og slátraði Garðbæ-
ingum 47-24 í fyrstu viðureign tíma-
bilsins en síðustu tvær viðureignir
hafa verið afar jafnar. Í viðureign
liðanna í nóvember lauk leiknum
með jafntef li og fyrir rúmri viku
rétt náði Fram að merja sigur eftir
að Stjarnan hafði leitt lungann úr
leiknum.
Jónatani fannst ósanngjarnt að
skoða úrslitin úr fjórðu umferð
vegna þess áfalls sem Stjörnuliðið
varð fyrir í leiknum þar áður.
„Fyrsti leikur liðanna telst varla
með þegar litið er til baka. Garðbæ-
ingar nýbúnir að missa Guðrúnu
Ósk Maríasdóttir í meiðsli og áfallið
sem tengdist því,“ sagði Jónatan um
23 marka sigur Fram.
„Hinir tveir leikir liðanna gefa
mun betri mynd af þessu einvígi.
Stjarnan er með allt annað lið eftir
að Rakel kom aftur inn í liðið og
það á báðum endum vallarins, vörn
og sókn. Stjarnan þarf að stjórna
tempóinu, halda hraðanum niðri til
að koma í veg fyrir að Fram fái þessi
auðveldu hraðaupphlaupsmörk.“
Aðspurður tók hann undir að það
væri meðbyr með liði Garðbæinga.
„Það er byr í seglunum hjá Stjörn-
unni þessa dagana. Reynslan kemur
til með að hjálpa Garðbæingum,
það hafa margar spilað þessa leiki
áður og þær þekkja þessa leiki.“
Það er enginn skortur á reynslu
hjá liði Fram sem er handhafi bikar-
meistaratitilsins.
„Fram þekkir þessa pressu vel og
þær eiga það til að ef last við slíka
pressu. Framliðið er líklegt til að
mæta af fullum krafti í staðinn
fyrir að finna fyrir einhverju stressi
og þá óttast ég að það gæti farið illa
fyrir Stjörnunni. Þetta er allt undir
Garðbæingum komið. Ef þeim tekst
að halda boltanum og hægja á hrað-
anum í leiknum þá verður þetta
hörkuleikur,“
kristinnpall@frettabladid.is
Lykilatriði fyrir ÍBV og
Stjörnuna að stýra hraðanum
Undanúrslitin í Coca-Cola-bikarnum í kvennaflokki fara fram í Laugardalshöll í dag. Í fyrri leiknum
mætir ÍBV toppliði Vals úr Olís-deild kvenna en í þeim síðari mætast bikarmeistarar síðustu þriggja ára,
Stjarnan og Fram. Fréttablaðið fékk Jónatan Þór Magnússon, þjálfara KA/Þórs, til að rýna í leikina tvo.
HANDBOLTI Tilkynnt var í gær að
Patrekur Jóhannesson og austur-
ríska handknattleikssambandið
hefðu komist að samkomulagi um
starfslok Patreks. Með því lýkur sjö
og hálfs árs samstarfi þar sem Pat-
rekur stýrði liðinu í 106 leikjum og
kom liðinu á fjögur stórmót.
Austurríska handknattleikssam-
bandið tilkynnti þetta á heimasíðu
sinni þar sem Patreki var þakkað
fyrir góð störf og sagt að hann væri
að stíga frá borði sem einn farsæl-
asti þjálfari liðsins frá upphafi. Þá
stígur hann frá borði sem þjálfari
Selfoss í Olís-deild karla í vor eftir
tveggja ára starf en hann mun hefja
störf fyrir danska félagið Skjern í
sumar fyrir næsta tímabil.
Undir stjórn Patreks vann austur-
ríska liðið 45 leiki, gerði sex sinnum
jafntef li og tapaði 55 leikjum. Frá
árinu 2014 missti austurríska liðið
aðeins af tveimur stórmótum í
handbolta, EM í Póllandi árið 2016
og HM í Frakklandi ári síðar. Óvíst
er hver tekur við af Patreki og stýrir
liðinu á Evrópumótinu í janúar sem
fer fram í Austurríki, Noregi og Sví-
þjóð.
„Ég er þakklátur öllu því fólki sem
ég hef unnið með hjá Austurríki. Ég
fékk tækifæri til að stýra liðinu árið
2011 og er stoltur af þeim afrekum
sem við náðum saman.“ – kpt
Patrekur hættur
með Austurríki
Patrekur fylgist með af hliðarlín-
unni á HM. NORDICPHOTOS/GETTY
7 . M A R S 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R24 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
0
7
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:3
7
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
7
F
-9
8
A
8
2
2
7
F
-9
7
6
C
2
2
7
F
-9
6
3
0
2
2
7
F
-9
4
F
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
7
2
s
_
6
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K