Fréttablaðið - 07.03.2019, Síða 56

Fréttablaðið - 07.03.2019, Síða 56
Keflavík - Snæfell 79-77 Keflavík: Dinkins 35, Bryndís Guðmunds- dóttir 14, Katla Rún 8, Birna Valgerður 8. Snæfell: Kristen McCarthy 31, Angelika Kowalska 21, Rebekka Rán Karlsdóttir 13. Stjarnan - KR 80-58 Stjarnan: Danielle Rodriguez 36, Bríet Sif Hinriksdóttir 18, Auður Íris Ólafsdóttir 7. KR: Orla O’Reilly 18, Kiana Johnson 16, Þor- björg Andrea Friðriksdóttir 14. Breiðablik - Skallagr. 81-72 Breiðablik: Orazovic 19, Crawford 18, Telma Ásgeirsdóttir 10, Þórdís Kristjánsdóttir 10. Skallagrímur: Shequila Joseph 24, Maja Michalska 14, Sigrún S. Ámundadóttir 14. Nýjast Domino’s kvenna PSG - Man.Utd 1-3 0-1 Lukaku (2.), 1-1 Juan Bernat (12.), 2-1 Lu- kaku (30.), 3-1 Marcus Rashford (víti) (90.). Manchester United er þar af leiðandi komið áfram í átta liða úrslit keppninnar. Porto - Roma 2-1 1-0 Tiquinho Soares (27.), 1-1 Daniele De Rossi (víti) (37.), 2-1 Moussa Marega (55.). Framlenging stóð yfir í leik Porto og Roma þegar Fréttablaðið fór í prentun. Meistaradeildin Staðan í deildinni Lykilatriðið hjá ÍBV er að vera agaðar á bolta og klára sóknirnar með skoti í staðinn fyrir að fá hraðaupphlaup í bakið. Jónatan Þór Magnússon, þjálfari KA/Þór Efri Valur 34 Keflavík 34 KR 30 Stjarnan 28 Neðri Snæfell 26 Haukar 16 Skallagrímur 12 Breiðablik 4 HANDBOLTI Undanúrslitin í Coca- Cola-bikarnum í kvennaflokki fara fram í Laugardalshöll í dag en með því hefst úrslitahelgi bikarsins sem nær hámarki á laugardaginn þegar bikarúrslitaleikurinn í karla- og kvennaf lokki fer fram. Öll fjögur liðin sem mæta til leiks hafa unnið bikarmeistaratitilinn. Ríkjandi bikarmeistarar Fram eru lang sigur- sælasta liðið í keppninni með fimm- tán titla, sjö titlum meira en næsta lið sem er Stjarnan en þessi lið mætast einmitt í kvöld. Þarna eru að mætast liðin í fyrsta sæti, Valur, og fjórða sæti, ÍBV, annars vegar og hins vegar liðið í öðru sæti, Fram, og Stjarnan sem er í sjötta sæti Olís- deildarinnar þegar fjórar umferðir eru eftir. Fyrir fram má gera ráð fyrir að tvö efstu lið deildarinnar, Valur og Fram sem hafa ekki tapað mörgum leikjum, fari áfram í úrslitaleikinn en í bikarkeppnum er aldrei spurt um stöðu liðanna í deildinni. Fyrstu fimmtán mínúturnar í leiknum skipta öllu máli Eftir að liðin skildu jöfn í fjórðu umferð Olís-deildar kvenna í Vestmannaey jum hef ur Vals- liðið unnið seinni tvo leiki liðanna sannfærandi. Tæpur mánuður er síðan liðin mættust síðast þar sem Valur vann þrettán marka sigur í Eyjum og hélt Eyjakonum í sextán mörkum. Fréttablaðið fékk Jónatan Þór Magnússon, þjálfara KA/Þórs í Olís-deild kvenna, til að spá í spilin. „ÍBV átti mjög dapran dag síðast þegar liðin mættust og Valsliðið leysti allt sem ÍBV reyndi að gera mjög vel en ég á von á jöfnum og spennandi leik í dag. Ég tel að Vals- liðið muni ekki ná að stjórna leikn- um jafn vel. Spennustigið er hærra og ÍBV gæti fundið aukagír sem á eftir að gera Valsliðinu erfitt fyrir. Í stórleikjum myndast oft einhver sérstök stemming í kringum ÍBV,“ sagði Jónatan og hélt áfram: „ÍBV var með hræðilega mikið af tæknifeilum, töpuðum boltum og slíku í síðasta leik sem er banabiti gegn Valsliðinu. Sterkasta vopn Vals er vörnin og Íris hefur verið frábær fyrir aftan vörnina. Ef stærstu póst- arnir hjá ÍBV, Greta og Ester, passa betur upp á boltann og þær ná að leysa vörnina hjá Val þá er allt mögulegt. Það kæmi mér ekkert á óvart ef Hrafnhildur myndi reyna að brydda upp á einhverju nýju í þessum leik.“ Hann taldi lykilatriði að halda sjó fyrstu mínútur leiksins. „Valsliðið er sterkt til baka og lyki latriðið hjá ÍBV er að vera agað- ar á bolta og klára sóknirnar með skoti í staðinn fyrir að fá hraðaupp- hlaup í bakið.  Valsliðið er líka með meiri breidd, þær eiga eflaust eftir að reyna að  keyra upp hraðann sem gæti reynst Eyjakonum erfitt. Lykilatriðið hjá ÍBV er að komast í gegnum fyrsta korterið, ef Valur er með 4-5 mörk í forskot þar gæti þetta orðið erfitt fyrir ÍBV.“ Framarar þrífast á pressu Í seinni leiknum mætast bikar- meistarar síðustu þriggja ára og sigursælustu liðin í 43 ára  sögu keppninnar, Stjarnan og Fram. Fram er ríkjandi deildar-, bikar- og Íslandsmeistari og slátraði Garðbæ- ingum 47-24 í fyrstu viðureign tíma- bilsins en síðustu tvær viðureignir hafa verið afar jafnar. Í viðureign liðanna í nóvember lauk leiknum með jafntef li og fyrir rúmri viku rétt náði Fram að merja sigur eftir að Stjarnan hafði leitt lungann úr leiknum. Jónatani fannst ósanngjarnt að skoða úrslitin úr fjórðu umferð vegna þess áfalls sem Stjörnuliðið varð fyrir í leiknum þar áður. „Fyrsti leikur liðanna telst varla með þegar litið er til baka. Garðbæ- ingar nýbúnir að missa Guðrúnu Ósk Maríasdóttir í meiðsli og áfallið sem tengdist því,“ sagði Jónatan um 23 marka sigur Fram. „Hinir tveir  leikir  liðanna gefa mun betri mynd af þessu einvígi. Stjarnan er með allt annað lið eftir að Rakel kom aftur  inn í  liðið og það á báðum endum vallarins, vörn og sókn.  Stjarnan þarf að stjórna tempóinu, halda hraðanum niðri til að koma í veg fyrir að Fram fái þessi auðveldu hraðaupphlaupsmörk.“ Aðspurður tók hann undir að það væri meðbyr með liði Garðbæinga. „Það er byr í seglunum hjá Stjörn- unni þessa dagana. Reynslan kemur til með að hjálpa Garðbæingum, það hafa margar spilað þessa leiki áður og þær þekkja þessa leiki.“ Það er enginn skortur á reynslu hjá liði Fram sem er handhafi bikar- meistaratitilsins. „Fram þekkir þessa pressu vel og þær eiga það til að ef last við slíka pressu. Framliðið er líklegt til að mæta af fullum krafti í staðinn fyrir að finna fyrir einhverju stressi og þá óttast ég að það gæti farið illa fyrir Stjörnunni. Þetta er allt undir Garðbæingum komið. Ef þeim tekst að halda boltanum og hægja á hrað- anum í leiknum þá verður þetta hörkuleikur,“ kristinnpall@frettabladid.is Lykilatriði fyrir ÍBV og Stjörnuna að stýra hraðanum Undanúrslitin í Coca-Cola-bikarnum í kvennaflokki fara fram í Laugardalshöll í dag. Í fyrri leiknum mætir ÍBV toppliði Vals úr Olís-deild kvenna en í þeim síðari mætast bikarmeistarar síðustu þriggja ára, Stjarnan og Fram. Fréttablaðið fékk Jónatan Þór Magnússon, þjálfara KA/Þórs, til að rýna í leikina tvo. HANDBOLTI Tilkynnt var í gær að Patrekur Jóhannesson og austur- ríska handknattleikssambandið hefðu komist að samkomulagi um starfslok Patreks. Með því lýkur sjö og hálfs árs samstarfi þar sem Pat- rekur stýrði liðinu í 106 leikjum og kom liðinu á fjögur stórmót. Austurríska handknattleikssam- bandið tilkynnti þetta á heimasíðu sinni þar sem Patreki var þakkað fyrir góð störf og sagt að hann væri að stíga frá borði sem einn farsæl- asti þjálfari liðsins frá upphafi. Þá stígur hann frá borði sem þjálfari Selfoss í Olís-deild karla í vor eftir tveggja ára starf en hann mun hefja störf fyrir danska félagið Skjern í sumar fyrir næsta tímabil. Undir stjórn Patreks vann austur- ríska liðið 45 leiki, gerði sex sinnum jafntef li og tapaði 55 leikjum. Frá árinu 2014 missti austurríska liðið aðeins af tveimur stórmótum í handbolta, EM í Póllandi árið 2016 og HM í Frakklandi ári síðar. Óvíst er hver tekur við af Patreki og stýrir liðinu á Evrópumótinu í janúar sem fer fram í Austurríki, Noregi og Sví- þjóð.  „Ég er þakklátur öllu því fólki sem ég hef unnið með hjá Austurríki. Ég fékk tækifæri til að stýra liðinu árið 2011 og er stoltur af þeim afrekum sem við náðum saman.“ – kpt Patrekur hættur með Austurríki Patrekur fylgist með af hliðarlín- unni á HM. NORDICPHOTOS/GETTY 7 . M A R S 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R24 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT 0 7 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :3 7 F B 0 7 2 s _ P 0 6 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 7 F -9 8 A 8 2 2 7 F -9 7 6 C 2 2 7 F -9 6 3 0 2 2 7 F -9 4 F 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 7 2 s _ 6 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.