Fréttablaðið - 09.03.2019, Page 6
SAMFÉLAG Heill mánuður er liðinn
frá því Jón Þröstur Jónsson gekk út
af hótelherbergi sínu á laugardags-
morgni og út á götur Dublin. Enn er
ekkert vitað um afdrif hans. Hann
sást á öryggismyndavél fyrir utan
Highfield-hjúkrunarheimilið fyrir
aftan hótelið upp úr klukkan 11. Þá
var Jón Þröstur á gangi upp Swords
Road, klæddur í svarta úlpu að
reykja sígarettu.
Fjölskylda Jóns Þrastar hélt til
Írlands í vikunni eftir hvarfið. Þau
hafa gert mikið til að vekja athygli
á málinu. Til að byrja með vissu fáir
á Írlandi af hvarfinu. Fjölskyldan,
ásamt fjölmörgum sjálfboðaliðum,
hefur dreift auglýsingum og komið
fram í f jölmörgum sjónvarps-
þáttum.
Lögreglan á Írlandi hefur biðlað
til almennings eftir upplýsingum,
einnig leitast við að ná tali af öllum
sem voru á Swords Road og Collins
Avenue þennan morgun. Fjölmarg-
ar ábendingar hafa borist. Fjöl-
skyldan, sjálf boðaliðar og björg-
unarsveitir eru búnar að leita af
sér allan grun á svæðinu í kringum
hótelið og þykir því líklegt að Jón
Þröstur hafi stigið upp í leigubíl.
Daníel Örn Wiium, yngri bróðir
Jóns Þrastar, var á leið á fund með
lögreglunni þegar Fréttablaðið náði
tali af honum í gær. Hann segir það
velta á vísbendingum lögreglunn-
ar hvar, hvenær og hvort leitinni
verður haldið áfram. „Það er margt
fólk hérna tilbúið að hjálpa og bíður
bara eftir því fara að leita. En ef
hann hefur stigið upp í leigubíl þá
gæti hann verið hvar sem er,“ segir
Daníel Örn.
Jón Þröstur og unnusta hans,
Jana Guðjónsdóttir, ætluðu að
verja tíu dögum á Írlandi. Hann
ætlaði að taka þátt í pókermóti í
þrjá daga vikunnar eftir komuna,
annars ætluðu þau einfaldlega að
skoða sig um. Hann spilaði póker
á hótelinu kvöldið áður og tapaði
nokkur hundruð þúsund krónum.
Fjölskylda hans telur ólíklegt að það
tengist hvarfinu á einhvern hátt. „Ég
spila ekki póker sjálfur en ég hef hitt
Mánuður síðan Jón
Þröstur hvarf í Dublin
Tímalína atburða í hvarfi Jóns Þrastar
8. FEBRÚAR Jón Þröstur fer til Írlands. Um
kvöldið spilar hann póker á hótelinu og tapar
á milli 200 og 640 þúsund krónum.
9. FEBRÚAR Að morgni kemur Jana Guðjóns
dóttir, unnusta Jóns Þrastar, til Írlands. Hún
vekur hann á hótelherberginu og ræðir við
hann stuttlega. Hún fer niður til að fá sér
kaffi og reykja. Jón Þröstur yfirgefur her
bergið og gengur upp Swords Road.
12. FEBRÚAR Fjöl
skylda Jóns Þrastar
fer til Írlands.
13. FEBRÚAR Írska
lögreglan biðlar til
almennings um upp
lýsingar um ferðir
Jóns Þrastar.
FÖSTUDAGSKVÖLDIÐ
22. FEBRÚAR Bræður
Jóns Þrast ar koma
fram í The Late Late
Show, vinsælum
spjallþætti á Írlandi.
LAUGARDAGINN 23.
FEBRÚAR Fjölmargir
sjálfboðaliðar og
fjölskyldumeðlimir
ráðast í umfangs
mikla leit á svæðinu
í kringum hótelið.
Íslenskar björgunar
sveitir sjá um að
kortleggja svæðið.
24. FEBRÚAR Lög
reglan birtir mynd
úr eftirlitsmyndavél
sem sýnir Jón Þröst
á gangi upp Swords
Road fram hjá High
fieldhjúkrunar
heimilinu.
25. FEBRÚAR Jana
Guðjónsdóttir í við
tali í Kastljósi. Hún
segir ekkert geta
útskýrt hvarfið.
26. FEBRÚAR Bræður
hans koma fram í
sjónvarpsþættinum
Crimecall, þar eru
sýndar upptökur
úr eftirlitsmynda
vélum.
SUNNUDAGINN
3. MARS Almanna
varnir Dublin leita
áfram á svæðinu,
notast er við þyrlur
og leitarhunda.
Leitað á stóru svæði,
meðal annars við
sjóinn.
6. MARS Hanna Björk
Þrastardóttir, móðir
hans, í viðtali við
Virgin Media News
á Írlandi. Hún segist
ekkert vita sem geti
útskýrt hvarfið. Hún
biðlar til þeirra sem
gætu vitað eitthvað
um afdrif hans að
gefa sig fram.
Auðbrekku 10, 2. hæð,
200 Kópavogi
Netfang covericeland@covericeland.is
Sími 7777001
CoverIceland fagnar Góu og komandi vori með sérstökum
afslætti á svalalokunum ef gengið er frá samningi fyrir 15.
mars.
Svalalokun lengir sumarið og veitir möguleika á eigin
gróðurhúsi á svölunum þínum.
Bjóðum hagstæð greiðslukjör. Skipta má greiðslum niður á
allt að 48 mánuði með Pei greiðslulausn.
Laugardaginn 9. mars frá 11 til 15 mun lögfræðiþjón-
usta laganema við Háskólann í Reykjavík, í samstarfi
við KPMG veita einstaklingum endurgjaldslausa
aðstoð við gerð skattframtala 2019.
Individuals are invited to receive complimentary
assistance with filing their tax reports, Saturday
9th of march from 11:00 -15:00 at Reykjavík
University, Menntavegi 1.
Aðgangsupplýsingar
• að heimabanka
• að skattframtali á skattur.is
• verktakamiða (ef á við)
Access information
• password and/or identity key for
• the online key for skattur.is (veklykill RSK)
• contractor’s slip/ticket (if applicable)
HVAÐ ÞARF AÐ HAFA MEÐFERÐIS?
WHAT INFORMATION SHOULD I BRING?
THE DUE DATE FOR FILING INDIVIDUAL
TAX REPORTS IS MARCH 12TH.
SKILAFRESTUR Á SKATTFRAMTALI
EINSTAKLINGA ER TIL 12. MARS
Skattadagur
Lögréttu
Endurgjaldslaus aðstoð við gerð skattframtala
Free assistance with filing tax reports
Lögrétta’s
tax day
HVAÐ ER AÐ
FRÉTTA?
Frettabladid.is færir þér nýjustu
fréttir dagsins og ítarlega umöllun
um málefni líðandi stundar.
Ekki missa af neinu, fylgdu
Fréttablaðinu á Facebook
Mánuður er liðinn frá
hvarfi Jóns Þrastar
Jónssonar. Fjölskylda,
sjálfboðaliðar og björg
unarsveitir hafa leitað
af sér allan grun á svæð
inu þar sem hann sást
síðast. Bróðir Jóns segir
það velta á vísbend
ingum lögreglu hvenær
leitin heldur áfram.
Jóns Þrastar Jónssonar hefur verið saknað síðan 9. febrúar síðastliðinn. Hans er enn leitað í Dublin á Írlandi.
alla þessa menn í pókersambandinu
hérna úti, þetta eru einfaldlega
toppmenn,“ segir Daníel Örn.
Þegar Jón Þröstur yfirgaf hótelið
var hann ekki með síma eða vega-
bréf á sér. Hann var með greiðslu-
kort en þau hafa ekki verið notuð.
Talað hefur verið um að hann gæti
verið með stóra fjárhæð í peningum
á sér, Daníel Örn segir það mega
rekja til misskilnings í kringum
útvarpsviðtal skömmu eftir hvarf-
ið. „Það var talað um að hann gæti
verið með nokkra þúsundkalla á sér,
þá vorum við að tala um krónur en
ekki evrur. Ef hann er með eitthvað
á sér, þá er það ekkert mikið.“
Ekkert getur útskýrt hvers vegna
41 árs leigubílstjóri, tveggja barna
og tveggja stjúpbarna faðir, er
horfinn. „Allir eru að klóra sér í
hausnum yfir þessu. Fólk heima veit
jafn mikið og við. Þetta er bara ein
risastór ráðgáta.“ arib@frettabladid.is
Jón Þröstur og Jana
unnusta hans ætluðu að
verja tíu dögum á Írlandi.
9 . M A R S 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
9
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:3
7
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
8
7
-2
B
D
C
2
2
8
7
-2
A
A
0
2
2
8
7
-2
9
6
4
2
2
8
7
-2
8
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
1
2
s
_
8
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K