Fréttablaðið - 09.03.2019, Page 35

Fréttablaðið - 09.03.2019, Page 35
Þarmaflóran samanstendur af meira en 1.000 tegundum örvera sem vega hátt í tvö kíló. Hún gegnir gríðar mikilvægu hlutverki þegar kemur að heilsu­ fari okkar, hvort sem um er að ræða líkamlega eða andlega heilsu. Ójafnvægi á þarmaflóru Þegar þarmaflóran (örveruflóran) í meltingarveginum verður fyrir hnjaski og það kemst ójafnvægi þar á, koma fram óþægindi sem geta verið af ýmsum toga. Þetta er t.d.: n Uppþemba n Brjóstsviði n Harðlífi/niðurgangur n Sveppasýkingar n Blöðrubólga n Ristilkrampar n Iðraólga (IBS) Mataræði, lyf og streita Það er ýmislegt sem getur valdið ójafnvægi á þarmaflórunni þannig að við finnum fyrir því. Slæmt mataræði hefur mikil áhrif og eins og alltaf þá eru unnin matvæli og sykur þar fremst í f lokki. Lyf eins og sýklalyf, sýrubindandi lyf og gigtarlyf eru slæm fyrir þarma­ flóruna og svo getur streita einnig haft alvarlegar afleiðingar í þörm­ unum, eins og víða annars staðar í líkamanum. Hvað er iðraólga (IBS)? Iðraólga sem sumir þekkja sem ristilkrampa á sér stað við truflun á starfsemi ristils og smáþarma á þann hátt að í stað þess að dragast reglubundið saman og flytja þannig fæðuna taktfast áfram þá verða samdrættir á mismunandi stöðum ristils og smáþarma samtímis. Þessar truflanir koma oftast í kjölfar máltíða. Afleiðingar þessara óreglulegu samdrátta eru þær að fæðan berst treglegar niður meltingarveginn og frásog vatns truflast með þeim afleiðingum að hægðirnar verða harðar en geta einnig stundum orðið linar eða jafnvel að þunnum niðurgangi. Iðraólgu verður yfirleitt fyrst vart hjá ungu fólki og hrjáir að jafnaði 15­20% fullorðinna en flestir eru á aldrinum 20­50 ára. Konur eru í meiri áhættu svo og þeir sem lifa við mikla streitu. Bio Kult minnkar einkenni iðrabólgu Vísindalegum rannsóknum á þarma flóru okkar mannanna fleygir hratt fram og þurfum við sífellt að vera að endurskoða viðhorf okkar og sjónarmið því skilningur okkar á hlutverki hennar í líkama okkar er sífellt að aukast. Framleiðendur Bio­Kult gerlanna hafa látið gera mikið af tvíblindum, klínískum rann­ sóknum sem sýna fram á ótrúlega jákvæða virkni gerlanna þegar kemur að því að draga úr þeim ein­ kennum sem nefnd voru hér áður. Nýlega voru birtar niðurstöður rannsóknar sem gerð var á hópi fólks sem þjáðist af iðraólgu og voru þær afar áhugaverðar. 70% minni verkir Í rannsókninni var 360 manna hópi skipt til helminga og fékk annar hópurinn BioKult Original sem inniheldur 14 mismunandi gerlastofna á meðan hinir fengu lyfleysu (placebo). Tekin voru 4 hylki á dag í 16 vikur áður en árangurinn var metinn. Mark­ tækur munur var á hópunum en iðraverkir þeirra sem tóku inn Bio Kult Original höfðu minnkað um nærri 70% (samanborið við 70% minni verkir með Bio Kult Rannsóknir sýna fram á að inntaka á Bio Kult Original getur dregið verulega úr einkennum iðraólgu (IBS) og ristilkrampa. Talið er að tíðni verkjakasta minnki um rúmlega 70 prósent. Iðraólgu verður yfirleitt fyrst vart hjá ungu fólki og hrjáir að jafnaði 15-20% fullorðinna en flestir eru á aldrinum 20-50 ára. Bætiefni sem hefur mikil áhrif á geðslag án aukaverkana eins og þyngdaraukningar og kyndeyfðar Andleg vellíðan á náttúrulegan háttSaffrox | n Vinnur gegn geðsveiflum og depurð n Jákvæð áhrif á kynlífslöngun n Vinnur gegn andlegri streitu n Stuðlar að betri svefngæðum Útsölustaðir: Flest apótek. Saffrox er 100% náttúrulegt og klínískar rannsóknir sýna að það hefur góð áhrif á andlega líðan og léttir lund. Allir ættu að taka inn góðgerla (pro- biotics) til að auka líkur á heilbrigðu lífi og hefur Bio Kult reynst mörgum vel. Hrönn Hjálmarsdóttir, heilsu- markþjálfi hjá Artasan 47% í samanburðarhópnum). Einnig hafði tíðni verkjakasta hjá Bio­Kult hópnum dregist saman um rúm 70%. Í lok rannsóknar voru 34% þeirra sem höfðu fengið Bio­Kult Original einkennalausir á meðan það voru einungis 13% í samanburðarhópnum. Geta allir tekið góðgerla? Allir geta tekið inn góðgerla til að hjálpa til við að halda jafnvægi á þarma flórunni. Fjöldi örvera í meltingarveginum er gríðarlega mikill og það getur verið flókið og dýrt ferli að ætla að greina hvert tilfelli fyrir sig nákvæmlega. Sem betur fer eru góðgerl­ ar til inntöku hættu­ lausir og í versta falli verður engin breyting. Það getur einfaldlega þýtt að önnur tegund, sam­ setning stofna eða magn henti betur. FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 L AU G A R DAG U R 9 . M A R S 2 0 1 9 0 9 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :3 7 F B 1 1 2 s _ P 0 7 8 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 7 1 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 8 7 -6 2 2 C 2 2 8 7 -6 0 F 0 2 2 8 7 -5 F B 4 2 2 8 7 -5 E 7 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 1 1 2 s _ 8 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.