Fréttablaðið - 09.03.2019, Síða 41

Fréttablaðið - 09.03.2019, Síða 41
 Vinnustaðaeftirlit Skipta réttindi launþega á vinnumarkaði þig máli? Capacent — leiðir til árangurs Upplýsingar og umsókn capacent.com/s/13036 Menntunar- og hæfniskröfur: Iðnmenntun er skilyrði. Þekking á íslenskum vinnumarkaði. Tungumálakunnátta, íslenska, enska, pólska og/eða rússneska. Öryggisvitund. Hæfni í mannlegum samskiptum. Skipulagshæfni og nákvæmni í vinnubrögðum. Drifkraftur og geta til að vinna sjálfstætt. Almenn tölvukunnátta. Bílpróf. · · · · · · · · · · · · · · Umsóknarfrestur 17. mars Helstu verkefni: Vinnustaðaheimsóknir bæði á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni. Skipulag vinnustaðaheimsókna um allt land í samstarfi við aðra vinnustaðafulltrúa. Byggja upp og efla markvisst vinnustaðaeftirlit og samstarf við aðra vinnustaðafulltrúa. Samskipti við þá aðila er fara með málefni vinnumarkaðarins. Skráning og eftirfylgni. Iðnaðarmannafélögin á Stórhöfða auglýsa eftir öflugum fulltrúa í vinnustaðaeftirlit, með góð tök á pólsku eða rússnesku, til að standa vörð um réttindi launþega á vinnumarkaði og tryggja að aðstæður á vinnustöðum séu í samræmi við lög og reglur. Markmið starfsins er að koma í veg fyrir að brotastarfsemi festi rætur á félagssvæðum stéttarfélaganna. Um er að ræða 100% starf, starfsstöð er á Stórhöfða 31, 110 Reykjavík. Vegagerðin vinnur að öruggum og greiðum samgöngum í þágu samfélagsins alls. Vegagerðin vinnur að uppbyggingu samgöngukerfisins með lagningu vega og þjónustu við vegakerfi landsins, þróun almenningssamgangna og samþættingu mismunandi samgönguforma. Nú vantar okkur öflugan forstöðumann fjárhagsdeildar til að taka þátt í þessu verkefni með okkur. Starfsmenn fjárhagsdeildar starfa víðsvegar um landið en starf forstöðumanns er í Reykjavík. Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólamenntun á sviði fjármála • Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi • Farsæl og árangursrík reynsla af stjórnun • Reynsla og þekking í uppgjörum og bókhaldi • Góð færni í framsetningu fjármálaupplýsinga • Reynsla af breytingastjórnun • Framúrskarandi samskiptafærni • Frumkvæði, metnaður og fagmennska í starfi • Sjálfstæð og öguð vinnubrögð • Góð kunnátta í talaðri og ritaðri íslensku og ensku Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður sem hentar jafnt báðum kynjum. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi ríkisins og viðkomandi stéttarfélags og umsóknarfrestur er til og með 25. mars 2019. Nánari upplýsingar um starfið veita Ruth Elfarsdóttir framkvæmda stjóri fjármálasviðs (ruth.elfarsdottir@vegagerdin.is) og Sigurbjörg J. Narby Helgadóttir mannauðsstjóri (sigurbjorg.helgadottir@vegagerðin.is) og í síma 522 1000 Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur um hæfi til að gegna umræddu starfi. Umsóknir berist Vegagerðinni á netfangið starf@vegagerdin.is Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Forstöðumaður fjárhagsdeildar hjá Vegagerðinni Mennta- og menningarmálaráðuneyti auglýsir Skólameistari Menntaskólans í Kópavogi Menntaskólinn í Kópavogi er opinber framhaldsskóli sem var stofnaður árið 1973. Skólinn starfar samkvæmt áfangakerfi og býður upp á nám til stúdentsprófs á bóknámsbrautum auk þess að vera miðstöð kennslu í hótel- og matvælagreinum og starfrækja ferðamála- og leiðsögunám í kvöldskóla. Starfsmenn skólans eru að jafnaði tæplega 100 og fjöldi nemenda í dagskóla eru um 900. Starfssvið Skólameistari veitir skólanum forstöðu. Hann stjórnar daglegum rekstri og starfi skólans og gætir þess að skólastarfið sé í samræmi við lög, reglugerðir, aðalnámskrá og önnur gildandi fyrirmæli á hverjum tíma. Hann ber ábyrgð á gerð fjárhagsáætlunar og að henni sé fylgt og hefur frumkvæði að gerð skólanámskrár og umbótastarfi innan skólans. Skólameistari gegnir mikilvægu hlutverki í mótun skólastarfs á grundvelli laga og aðalnámskrár framhaldsskóla og mikilvægt að umsækjendur hafi skýra framtíðarsýn hvað þetta varðar. Hæfni- og menntunarkröfur: • Skólameistari skal hafa starfsheitið framhaldsskólakennari og viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynslu á framhaldsskólastigi. • Umfangsmikil stjórnunarreynsla, leiðtoga- og samskiptahæfni. • Reynslu af stefnumótunarvinnu, hæfileiki til nýsköpunar og að stýra breytingum. • Þekking og reynsla af stjórnsýslu er mikilvæg. • Þekking af fjármálum og rekstri er nauðsynleg. Umsóknir Umsóknir með greinargerð umsækjenda um framtíðarsýn fyrir Menntaskólann í Kópavogi út frá faglegum og rekstrarlegum áherslum í skólastarfi með upplýsingum um núverandi starfsheiti um- sækjenda ásamt ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu hafa borist mennta- og menningarmálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 101 Reykjavík eða á netfangið mrn@mrn.is, fyrir dagslok þriðjudaginn 30. apríl 2019. Við ráðningar í störf hjá mennta- og menningarmálaráðuneyti er tekið mið af jafnréttisáætlun ráðu- neytisins. Nöfn allra umsækjenda verða birt á vef ráðuneytisins að loknum umsóknarfresti og verða umsóknir þar sem óskað er nafnleyndar ekki teknar til greina. Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna María Urbancic rekstrarstjóri í mennta- og menningarmálaráðuneyti. Nánari upplýsingar er að finna á vef ráðuneytisins. Umsóknarfrestur er til og með 30. apríl 2019. Mennta- og menningarmálaráðuneyti, 9. mars 2019. ATVINNUAUGLÝSINGAR 3 L AU G A R DAG U R 9 . M A R S 2 0 1 9 0 9 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :3 7 F B 1 1 2 s _ P 0 7 7 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 7 2 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 8 7 -6 7 1 C 2 2 8 7 -6 5 E 0 2 2 8 7 -6 4 A 4 2 2 8 7 -6 3 6 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 1 1 2 s _ 8 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.