Fréttablaðið - 09.03.2019, Page 50
Heilbrigðisstofnun Vesturlands samanstendur af átta starfsstöðvum á Vesturlandi. Á svæðinu eru reknar
átta heilsugæslustöðvar og á fjórum stöðum eru rekin sjúkrahús og/eða hjúkrunardeildir.
Umsókn fylgi ítarlegar og staðfestar upplýsingar um nám, fyrri störf, ásamt afriti af hjúkrunarleyfi og
prófskýrteini. Umsókn fylgi einnig kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið.
Stöðunefnd framkvæmdastjóra hjúkrunar, skv. 36. gr. laga um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007, metur
hæfni umsækjenda.
Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu á innsendum gögnum, umsögn
stöðunefndar, viðtölum og umsögnum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu
hefur verið tekin. Við ráðningar í störf er tekið mið af jafnréttisstefnu HVE.
Nánari upplýsingar veitir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, forstjóri HVE, johanna.johannesdottir@hve.is, s: 432-1000
Framkvæmdastjóri hjúkrunar og rekstrar
á Heilbrigðisstofnun Vesturlands
Starfshlutfall er 100%. Staðan veitist frá 1 apríl 2019 eða eftir
samkomulagi. Ráðið er í stöðuna til fimm ára í senn.
Umsóknarfrestur er til og með 18 mars 2019.
Sótt er um á www.hve.is eða www.starfatorg.is
Hæfnikröfur
➢ Gerð er krafa um íslenskt hjúkrunarleyfi
➢ Viðbótar- eða framhaldsmenntun sem nýtist í starfi
➢ Áskilin reynsla af mannauðsmálum og
stjórnunarreynsla í heilbrigðisþjónustu
➢ Góðir leiðtogahæfileikar, frumkvæði, áreiðanleiki og
metnaður til að ná árangri í starfi
➢ Geta til að takast á við krefjandi verkefni í breytilegu
starfsumhverfi
➢ Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfileikar
➢ Reynsla af stefnumótun og umbótaverkefnum
➢ Góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og
riti
Helstu verkefni og ábyrgð
➢ Yfirmaður hjúkrunar og ber faglega ábyrgð á
hjúkrunarþjónustu stofnunarinnar og í samræmi við
10 gr. laga um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007
➢ Heildarskipulagning og samhæfing hjúkrunar og
efling faglegrar þróunar á öllum sviðum
➢ Ábyrgð á áætlanagerð og rekstri
➢ Stefnumótun, markmiðasetning og
árangursmælingar
➢ Frumkvæði að umbótum, hagræðingu og eflingu
endurmenntunar
➢ Yfirumsjón og seta í ýmsum nefndum
➢ Heyrir undir forstjóra og á sæti í framkvæmdarstjórn
Forstöðumaður Gerðarsafns
KÓPAVOGSBÆR LEITAR
EFTIR ÖFLUGUM
LEIÐTOGA TIL AÐ
STÝRA GERÐARSAFNI
INN Í NÝJA TÍMA
Helstu verkefni
• Mótar listræna stefnu Gerðarsafns og ber ábyrgð
á metnaðarfullu sýninga- og viðburðahaldi
• Ber ábyrgð á rekstri safnsins, safnverslunar
og samskiptum við rekstraraðila í veitingasölu
• Hefur frumkvæði að miðlun sýninga og viðburðum
gagnvart almenningi og skólahópum
• Ber ábyrgð á safneign Gerðarsafns
og listaverkaeign Kópavogsbæjar
• Ber ábyrgð á söfnunar- og innkaupastefnu
samkvæmt reglum lista- og menningarráðs
• Undirbýr fjárhags-, launa- og rekstraráætlun safnsins
• Ber ábyrgð á öflun sértekna og styrkja
• Þátttaka í almennri stefnumótun
menningarmálaflokksins
• Annast samskipti og sinnir samstarfi við aðrar
menningarstofnanir bæjarfélagsins
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Haldbær þekking á myndlist og reynsla
af lista- og menningarstarfi
• Reynsla af rekstri og stjórnun æskileg
• Reynsla af sýningastjórnun æskileg
• Hugmyndaauðgi, listrænt innsæi, frumkvæði
og metnaður til að ná árangri í starfi
• Jákvætt viðmót og lipurð í mannlegum samskiptum
• Geta til að vinna undir álagi í fjölbreyttum verkefnum
• Færni til að setja fram mál í ræðu og riti á íslensku
og ensku
Gerðarsafn var reist í minningu Gerðar Helgadóttur
mynd höggvara og er ætlað að varðveita safneign
Gerðar og listaverkaeign Kópavogsbæjar auk þess
að safna verkum og miðla þeim í samræmi við
menningar stefnu Kópavogsbæjar, safnalög og
siðareglur Alþjóðaráðs safna (ICOM).
Gerðarsafn er eitt af fimm menningarhúsum
Kópavogs, en þau starfa náið saman að
skipulagningu viðburða og hátíða undir stjórn
forstöðumanns menningarmála í Kópavogi.
Ráðið er í starfið til fimm ára í senn.
Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá
og kynningarbréf þar sem gerð er grein
fyrir listrænni sýn og hæfni umsækjanda
í starfið. Umsjón með ráðningunni
hefur Soffía Karlsdóttir, forstöðumaður
menningarmála, sem veitir nánari
upp lýsingar í gegnum netfangið
soffiakarls@kopavogur.is eða í síma
441 7606.
Einungis er hægt að sækja um í gegnum
ráðningarvef Kópavogsbæjar, kopavogur.is.
Stjórn menningarmálaflokksins heyrir undir
lista- og menningarráð Kópavogsbæjar.
Umsóknarfrestur
er til og með 24. mars.
menningarhusin.kopavogur.is
Lögfræðingar
Umboðsmaður Alþingis mun á næstunni
ráða í tvö störf lögfræðinga.
Störfin eru annars vegar við athuganir og úrvinnslu
kvartana og annarra mála sem umboðsmaður fjallar um og
hins vegar einkum við frumkvæðis- og OPCAT-eftirlit.
• Leitað er að einstaklingum með embættispróf í lögfræði
eða grunnnám í lögfræði auk meistaraprófs í greininni.
• Æskilegt er að viðkomandi hafi lagt sig eftir
stjórnsýslurétti og/eða skyldum greinum í námi eða
hafi starfsreynslu á því sviði.
• Í starfi við frumkvæðis- og OPCAT-eftirlit er að auki
æskilegt að viðkomandi hafi sérstaklega lagt sig eftir
námi eða hafi reynslu á sviði mannréttinda eða öðrum
réttarsviðum sem reynir á við eftirlit með stöðum þar
frelsissviptir einstaklingar dveljast.
• Gerð er krafa um gott vald á ritun texta á íslensku.
• Gerð er krafa um góða kunnáttu í ensku og kunnáttu í
einu Norðurlandamáli.
• Um er að ræða krefjandi störf á sviði lögfræði. Lögð
er áhersla á að umsækjendur geti unnið sjálfstætt að
greiningu og úrlausn lögfræðilegra álitaefna, séu
skipulagðir og hafi gott vald á aðferðafræði
lögfræðinnar.
• Frumkvæðis- og OPCAT-eftirlit felst m.a. í vettvangs-
athugunum og skýrslugerð um þær. Þeir sem hafa
reynslu úr slíkum störfum eru sérstaklega hvattir til að
sækja um.
• Í báðum tilvikum er leitað að einstaklingum sem hafa
til að bera frumkvæði, ríka þjónustulund og lipurð í
mannlegum samskiptum.
Áhugasamir sem uppfylla ofangreindar hæfnikröfur eru
hvattir til að senda inn umsókn. Um starfskjör fer eftir
kjarasamningi og nánara samkomulagi.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun, starfsferil og
önnur atriði skal senda á netfangið postur@umb.althingi.
is eða á skrifstofu umboðsmanns Alþingis, Þórshamri,
Templarasundi 5, 101 Reykjavík, merkt: Starfsumsókn.
Þess er óskað að í um sóknum verði gerð grein fyrir um
hvort starfið er sótt og þekkingu og reynslu umsækjanda
í samræmi við það sem fram kemur um hvort starf og að
staðfesting um nám fylgi.
Umsóknarfrestur er til og með 29. mars nk.
Upplýsingar um störfin eru veittar hjá umboðsmanni
Alþingis í síma 510 6700. Nánari upplýsingar um störf
umboðsmanns Alþingis og OPCAT-eftirlitið má finna á
vefsíðunni: www.umbodsmadur.is.
Þórshamri, Templarasundi 5- 101 Reykjavík
Sími 510 6700 – Fax 510 6701 – postur@umb.althingi.is
Job.is
Job.is
GLÆNÝ OG
FERSK STÖRF
Í HVERRI VIKU
Þú finnur draumastarfið á
Þú finnur dra mastarfið á
Heilbrigðisþjónusta
Þú finnur draumastarfið á
Iðnaðarmenn
12 ATVINNUAUGLÝSINGAR 9 . M A R S 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
0
9
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:3
7
F
B
1
1
2
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
8
7
-8
4
B
C
2
2
8
7
-8
3
8
0
2
2
8
7
-8
2
4
4
2
2
8
7
-8
1
0
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
1
2
s
_
8
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K