Fréttablaðið - 09.03.2019, Qupperneq 57
Sviðsstjóri mannauðs- og starfsumhverfis
Hjá Reykjavíkurborg starfa á hverjum
tíma um 9.000 starfsmenn sem sinna
fjölbreyttri þjónustu á mörgum sviðum
fyrir íbúa og gesti Reykjavíkurborgar.
Reykjavíkurborg er einn vinnustaður í
öllum sínum fjölbreytileika. Samkvæmt
mannauðsstefnu Reykjavíkurborgar og
þeirri framtíðarsýn sem þar birtist þá
einkennist starfsemi Reykjavíkurborgar
af fagmennsku og framsækni. Með því
að taka öra tækniþróun upp á okkar
arma erum við lifandi og skemmtilegur
vinnustaður með sterkt aðdráttarafl fyrir
hæfileikaríkt og metnaðarfullt fólk á
öllum aldri sem vinnur í þágu borgarbúa.
Í kjölfar aukinnar áherslu á þverfaglegt
samstarf og styttri boðleiðir upplifir
starfsfólk borgina sem einn vinnustað
sem einkennist af fjölbreytni, sterkri
menningu, sveigjanleika og samheldni.
Sjá nánar á: www.reykjavik.is
Umsóknarfrestur er til og með 25. mars 2019. Umsjón með ráðningu hefur Intellecta. Umsókn óskast útfyllt á www.intellecta.is og
henni þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf. Skipuð verður 3ja manna hæfisnefnd sem mun vinna úr öllum umsóknum
í samráði við Intellecta.
Nánari upplýsingar um starfið veita Ari Eyberg (ari@intellecta.is) og Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) hjá Intellecta og
Stefán Eiríksson borgaritari (stefan.eiriksson@reykjavik.is).
Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni.
Menntunar- og hæfniskröfur:Ábyrgðarsvið:
• Sinnir verkstjórn á daglegum verkefnum og
rekstri mannauðs og starfsumhverfis
• Hefur faglega forystu í mannauðsmálum,
stefnumótun og nýsköpun á sviði
mannauðsmála hjá Reykjavíkurborg
• Ber ábyrgð á innleiðingu mannauðsstefnu
Reykjavíkurborgar
• Veitir ráðgjöf og stuðning við stjórnendur, m.a.
vegna ráðninga, samskipta á vinnustöðum og
annarra mála er varða starfsumhverfi
• Hefur yfirumsjón með fræðslustarfi
Reykjavíkurborgar þ.m.t. stjórnendafræðslu
• Hefur yfirumsjón með starfsmati og
launasetning starfa
• Ber ábyrgð á og hefur eftirlit með framkvæmd
kjarasamninga
• Tilheyrir framkvæmdastjórn Reykjavíkurborgar
Reykjavíkurborg auglýsir laust til umsóknar starf sviðsstjóra mannauðs- og starfsumhverfis
Reykjavíkurborgar.
„Reykjavíkurborg er vinnustaður með aðdráttarafl fyrir hæfileikaríkt og metnaðarfullt
fólk sem vinnur í þágu borgarbúa“
Leiðarljósin í innleiðingu á framtíðarsýn mannauðsmála til 2025 eru mannvæn, traust, samræmd og
snjöll.
Mannauður og starfsumhverfi er nýtt kjarnasvið sem starfa mun innan nýs stjórnskipulags
Reykjavíkurborgar sem tekur gildi 1. júní nk. Sviðsstjóri mun hafa yfirumsjón með mannauðsmálum hjá
Reykjavíkurborg.
Skipulag nýs sviðs er í mótun og mun nýr sviðsstjóri koma að lokaundirbúningi skipulags nýs sviðs.
Ábyrgðarsvið sviðsstjóra mannauðs- og starfsumhverfissviðs getur því tekið breytingum þar sem
endanleg uppbygging sviðsins liggur ekki fyrir.
Mannauðsdeild Reykjavíkurborgar, sem verður að hluta til uppistaðan í hinu nýja mannauðs- og
starfsumhverfissviði, hefur haft það meginhlutverk að tryggja samræmda framkvæmd mannauðsmála
þvert á Reykjavíkurborg. Innan nýs skipulags mun hluti kjaradeildar Reykjavíkurborgar bætast við en
kjaradeild ber ábyrgð á og hefur eftirlit með framkvæmd kjarasamninga sem og sinnir samskiptum við
stéttarfélög fyrir hönd Reykjavíkurborgar.
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi,
framhaldsmenntun á sviði mannauðsmála
nauðsynleg
• Menntun og/eða reynsla á sviði kjarasamninga
• Víðtæk reynsla af mannauðsstjórnun
• Góð þekking og reynsla af opinberri
stjórnsýslu
• Leiðtogahæfileikar og reynsla af
breytingastjórnun
• Farsæl stjórnunarreynsla og reynsla af
stefnumótun
• Framsýni, metnaður, frumkvæði og sjálfstæð
vinnubrögð
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum
samskiptum
• Geta til að vinna undir álagi
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og
ensku
Launakjör heyra undir kjaraákvörðun kjaranefndar Reykjavíkurborgar. Sviðsstjóri heyrir beint undir
borgarstjóra og um störf hans gilda reglur um réttindi og skyldur stjórnenda hjá Reykjavíkurborg. Ráðið
er af borgarráði í starf sviðsstjóra til fimm ára.
0
9
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:3
7
F
B
1
1
2
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
8
7
-5
8
4
C
2
2
8
7
-5
7
1
0
2
2
8
7
-5
5
D
4
2
2
8
7
-5
4
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
1
2
s
_
8
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K