Fréttablaðið - 09.03.2019, Qupperneq 60
Borgarbyggð
ÚTBOÐ
Uppbygging og rekstur ljósleiðarakerfis
Borgarbyggð óskar eftir tilboðum í uppbyggingu og rekstur
ljósleiðarakerfis í hluta dreifbýlis Borgarbyggðar, nánar tiltekið
á Andakílssvæði og næsta nágrenni. Gert er ráð fyrir að
bjóðandi verði eigandi kerfisins og allar fjárfestingar í efni og
öðru sem tengjast því eru eignfærðar á hann. Jafnframt sjái
bjóðandi um rekstur kerfisins til frambúðar. Verklok uppbygg-
ingar eru eigi síðar en 31.12.2019.
Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með þriðju-
deginum 12. mars 2019. Þeir sem hyggjast gera tilboð í verkið
skulu hafa samband við Guðmund Daníelsson með tölvupósti,
gudmundur@snerra.com og gefa upp nafn, heimilisfang, síma
og netfang og fá í kjölfarið útboðsgögnin send í tölvupósti.
Tilboðum skal skila í Ráðhús Borgarbyggðar, Borgarbraut 14,
310 Borgarnesi fyrir kl. 11:00 þriðjudaginn 26. mars 2019, en
þá verða þau opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess
óska.
__________ Útboð ___________
Faxaflóahafnir sf. og Veitur ohf. óska eftir tilboðum í
verkið:
Söluhús Ægisgarði
Verkið felst í smíði og uppsetningu á 6 Söluhúsum
og einu inntaks-/selernishúsi á Ægisgarði 5, ásamt
tilheyrandi jarðvinnu og yfirborðsfrágangi. Húsin eru
byggð úr stáli og timbri, sem skal smíða á verkstæði
og flytja á verkstað.
Verktaki skal einnig annast endurnýjun lagna í
Ægisgarði fyrir Veitur ohf.
Helstu magntölur:
• 6 Söluhús og eitt inntaks/salernishús: 400 m2
• Geymsluskúrar úr timbri: 86 m2
• Skyggni úr timbri: 60 m2
• Timburpallar: 730 m2
• Jarðvinna: 1500 m3
• Forsteyptar sökkuleiningar: 145 m2
• Stálgrindur húsa: 38 tonn
• Frárennslislagnir: 330 metrar
• Malbikun: 500 m2
• Hellulögn: 270 m2
Útboðsgögnin verða afhent á rafrænu formi og
endurgjaldslaust hjá Hnit verkfræðistofu hf. frá og
með þriðjudeginum 12. mars n.k. Hafa skal
samband í póstfangið haukur@hnit.is.
Tilboðum skal skila til Skrifstofu Faxaflóahafna sf.,
Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík, fyrir þriðjudaginn 2.
apríl 2019 klukkan 11:00. Tilboð verða opnuð á
sama stað og tíma.
Verklok eru 30. apríl 2020.
Umhverfissvið Mosfellsbæjar óskar
eftir tilboðum í verkið:
Helgafellsskóli nýbygging, 2-3.áfangi
Mosfellsbær vinnur að byggingu leik- og grunnskóla í
Helgafellshverfi í Mosfellsbæ við Gerplustræti 14.
Uppbyggingin hefur verið unnin í nokkrum áföngum.
Búið er að byggja fyrri hluta skólans þ.e.a.s. 1. áfanga
ásamt því að leikskóli og hluta lóðar er að ljúka á næstu
mánuðum. Helgafellshverfi er í örri uppbyggingu. Verktaki
sem fær verkefnið mun þurfa að gera ráð fyrir og taka tillit
til m.a. nágranna, umferð íbúa sem og annarra verktaka
í og við byggingarsvæði og sérstaklega mikilvægt er að
verktaki taki tilliti til og lágmarki rask á skólastarf sem hafið
er í fyrri áföngum Helgafellsskóla.
Helstu verkþættir eru:
Jarðvinna fyrir sökklum, uppsteypa, forsteyptar einingar,
holplötur og þakeiningar. Gluggar og -hurðir, einangrun og
klæðningar. Þakfrágangur, niðurföll og grunnlagnir.
Innanhúss-, utanhúss- og lóðarfrágangur.
Helstu magntölur eru:
Jarðvinna
Brúttógólfflötur 4.336 m²
Steypustyrktarstál 106 tonn
Steypa 1.367 m3
Forsteyptar einingar (með einangrun og veðurkápu) 1.495m²
Þakeiningar með burði, einangrun og vatnsvörn 1.225 m²
Holplötur 2.420 m²
Útihurðar og gluggar 305 m²
Þakfrágangur 600 m²
Léttir veggir 1.352 m²
Ýmis kerfisloft 3.901 m²
Málun innanhúss 10.133 m²
Ýmis gólfefni 3.804 m²
Sérsmíðaðar innréttingar 43 stk
Innihurðir 98 stk
Glerveggir 48 m²
Lóðarfrágangur (gervigras, beð, hellur, malbik o.fl) 4.100 m²
Verkinu skal að fullu lokið 6.júní 2021
Útboðsgögn verða afhent í afgreiðslu bæjarskrifstofu
Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 2. hæð frá og með klukkan
10:00 á föstudeginum 15.mars 2019. Tilboðum skal skilað á
sama stað, bæjarskrifstofur Mosfellsbæjar, eigi síðar en
föstudaginn 5. apríl 2019 kl.13:00 og þau opnuð að
viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Innkaupadeild
ÚTBOÐ
Ný útboð í auglýsingu hjá Reykjavíkurborg:
• Kvistaborg, endurgerð lóðar 2019 - 2. áfangi -
Jarðvinna, útboð nr. 14428.
• Seljaborg, endurgerð lóðar 2019 - 2. áfangi -
Jarðvinna, útboð nr. 14431.
• Rammasamningur um eftirlit með slökkvitækjum
og öðrum eldvarnarbúnaði, EES útboð nr. 14413.
• Árbæjarsafn – Sýningarskáli, útboð nr. 14426.
• Frjálsíþróttavöllur ÍR - Áhöld og búnaður 2019,
útboð nr. 14465.
Nánari upplýsingar er að finna á
www.reykjavik.is/utbod
Umhverfissvið. Skipulags- og byggingardeild
Auglýsing um skipulag í Kópavogi
Kársnes – Naustavör 13-15, 52-58 og 60-68 (áður 13-84). Breytt deiliskipulag.
Bæjarstjórn Kópavogs hefur samþykkt í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, að auglýsa tillögu að breyttu
deiliskipulagi fyrir lóðirnar að Naustavör 13-68.
Skipulagssvæðið sem er um 2.7 ha að stærð afmarkast af Fossvogi til norðurs, Nautavor 7, 11 og 44-50 til austurs, Vesturvör
12-20 til suðurs og opnu bæjarlandi og Vesturvör 22-28 til vesturs.
Tillaga að breytingum:
Tillaga að breyttu deiliskipulagi fyrir Naustavör 13 og 15.
Í gildandi deiliskipulagi er gert ráð fyrir 4 hæða fjölbýlishúsi auk kjallara á lóðinni Naustavör 13 með alls 12 íbúðum. Í deiliskipu-
laginu er jafnframt gert ráð fyrir leikskóla á lóð Naustavarar 15.
Í breytingunni felst að lóðirnar Naustavör 13 og 15 eru sameinaðar og þar ráðgerður byggingarreitur fyrir fjögurra deilda leik-
skóla á 4.600 m2 lóð, en byggingarreitur fyrir fjölbýlishúsið að Naustavör 13 er felldur niður. Aðkoma, bílastæði og byggingar-
reitur breytist. Leikskólinn mun þjóna Bryggjuhverfi sem og vesturhluta Kársnes.
Tillaga að breyttu deiliskipulagi fyrir Naustavör 52 til 58.
Í breytingunni felst að aðkoma að Naustavör 52 til 58 breytist á þann hátt að vesturhluti Naustavarar liggur nú beint norður af
gatnamótum Vesturvarar og Naustavarar. Bílastæði færast til vesturs og lóðarmörk breytast.
Tillaga að breyttu deiliskipulagi fyrir Naustavör 60 til 68 (áður 70-84).
Í gildandi deiliskipulagi er gert ráð fyrir tveimur 4 hæða fjölbýlishúsum auk kjallara á lóðinni Naustavör 60-66 (áður 76-84) með
alls 33 íbúðum.
Í breytingunni felst að koma fyrir á lóðinni byggingarreit á 3 og 4 hæðum með kjallara. Gert er ráð fyrir 54 íbúðum. Lóðarmörk
og aðkoma að Naustavör 60-68 breytist á þann hátt að vesturhluti Naustavarar liggur nú beint norður af gatnamótum Ves-
turvarar og Naustavarar. Bílastæðum á lóð og í kjallara fjölgar. Bílastæðakrafa helst óbreytt.
Fallið er frá kennileyti á byggingarreit. Heildarbyggingarmagn eykst um 4.230 m2 og verður 7.020 m2 eftir breytingu.
Opið svæði. Göngu,- og hjólaleið norðan Vesturvarar nr. 12-20 breytist sem og kvöð um skógrækt.
Tillagan er sett fram á uppdrætti í mkv. 1:1000 ásamt greinargerð, skýringarmyndum. Nánar vísast til kynningargagna.
Ofangreind tillaga er til kynningar á heimasíðu bæjarins, www.kopavogur.is og í afgreiðslu skipulags- og byggingardeildar
Umhverfissviðs að Digranesvegi 1 frá kl. 8:30 til 16:00 mánudaga til fimmtudaga og á föstudögum frá 8:30 til 15:00. Eru þeir sem
telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Athugasemdir eða ábendingar skulu hafa borist skriflega til
skipulags- og byggingardeildar Umhverfissviðs að Digranesvegi 1, 200 Kópavogi eða á netfangið skipulag@kopavogur.is eigi
síðar en kl. 15:00 mánudaginn 13. maí 2019.
Skipulagsstjóri Kópavogs
kopavogur.is
ÚTBOÐ
Borgartúni 7c, 105 Reykjavík
Sími 530 1400
www.rikiskaup.is
Útboð 20191 - Ljósbúnaður fyrir Þjóðleikhúsið
Ríkiskaup fyrir hönd
Þjóðleikhússins óska eftir tilboðum
í eftirfarandi ljósbúnað:
• Hreyfiljós Spot/Profile
• Hreyfiljós Wash
• Fastljós Wash
• Upphengjur fyrir ofangreint
Samið verður við einn aðila um viðskipti þessi.
Nánari upplýsingar má finna í útboðsgögnum, sem verða
aðgengileg á vef Ríkiskaupa ( www.rikiskaup.is ),
miðvikudaginn 18. nóvember nk.
Tilboðum skal skila til Ríkiskaupa, Borgartúni 7c, 105
Reykjavík þar sem þau verða opnuð 22. desember 2015,
kl. 14.00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Borgartúni 7c, 105 Reykjavík
Sími 530 1400
www.rikiskaup.is
Ríkiskaup
Allar útboðsauglýsingar eru birtar á
utbodsvefur.is
Utbodsvefur.is er sameiginlegur auglýsingavettvangur
opinberra útboða. Á vefsvæðinu eru birtar auglýsingar og eða
tilkynningar um fyrirhuguð i nkaup opinberra aðila sem falla
undir lög og reglugerðir um opinber innkaup.
0
9
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:3
7
F
B
1
1
2
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
8
7
-7
0
F
C
2
2
8
7
-6
F
C
0
2
2
8
7
-6
E
8
4
2
2
8
7
-6
D
4
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
1
2
s
_
8
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K