Fréttablaðið - 09.03.2019, Síða 86
Ástkær móðir okkar,
amma og langamma,
Salgerður Sveina
Marteinsdóttir
er látin. Útförin fór fram í kyrrþey
að ósk hinnar látnu.
Fyrir hönd vandamanna,
Kristinn Sigurðsson
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Borghildur Thors
þroskaþjálfi,
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu
Grund föstudaginn 1. mars.
Jarðarförin fer fram frá Dómkirkjunni
mánudaginn 11. mars kl. 13.00.
Hilmar Oddsson Guðlaug M. Jakobsdóttir
Elísabet Á. Oddsdóttir Ómar Jóhannsson
Hera Hilmarsdóttir Sam Keeley
Oddur Sigþór Hilmarsson
Oddur Ómarsson
Arnar Ómarsson
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
i ll i undirbúnings og
framkvæmd útfar r ásamt vinnu við dánarbús-
skiptin. Við þjónum með virðingu o umhyggju
að leiðarljósi og f fa legum metnaði.
Ellert Ingason,
umsjón sálmaskrár
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Ég er meðal annars með myndir sem ég tók inni í lýs-isgeymum á árunum 1993 til 2000. Mér f innst þeir vera spennandi innrými og stórmerkileg mannvirki,
uppfundin á Íslandi og byggð úr stein-
steypu,“ segir Guðmundur Ingólfsson
ljósmyndari sem opnar sýningu á torg-
inu í Neskirkju við Hagatorg á morgun.
Hann segir formin í myndunum hafa
orðið til með ljósinu í tönkunum sem
borist hafi inn um op ofan á þeim eða
affallsrör. Spurður hvort eimt hafi
eftir af lýsislykt í tönkunum svarar
hann: „Allt lýsi og öll lykt var farin
en sums staðar þurfti maður stígvél til
að komast um. Þarna sigldu menn um
lýsið á prömmum áður fyrr, það hefur
nú ekki verið geðslegt.“
Geymarnir voru við síldarverk-
smiðjurnar, að sögn Guðmundar. „Þær
frægustu voru á norðanverðu landinu,
við Húnaf lóann, á Ströndum og við
Eyjafjörðinn, sums staðar eru þær
nýttar enn, svo sem á Hjalteyri. Þetta
eru myndir sem ég sýndi í Noregi fyrir
fjórtán árum og tek bara fram núna.“
Guðmundur sýnir líka nýjar myndir
á torgi Neskirkju, þar er þemað allt
annað og því lýsir hann svo: „Til Íslands
koma þúsundir ferðamanna yfir árið
eingöngu til að taka ljósmyndir, vetur
sumar, vor og haust. Margir stoppa
stutt og mynda það sama, Kirkjufell,
Skógafoss, norðurljós, hesta og Jökuls-
árlón. Ég fór um Suður- og Vesturland
og reyndi að fanga eitthvað hversdags-
legt sem f lestir keyra fram hjá á hverj-
um degi án þess að gefa gaum. Það ætla
ég að sýna núna.“ gun@frettabladid.is
Form sem fáir gefa gaum
Aflagðir lýsisgeymar og landslag sem fáir veita athygli eru myndefni Guðmundar Ing-
ólfssonar ljósmyndara á sýningu sem hann opnar á torginu í Neskirkju á morgun.
„Ég reyndi að fanga eitthvað hversdagslegt,“ segir Guðmundur um landslagsmyndir sínar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Tilkomumikið rými í einum tanknum. MYND/GUÐMUNDUR INGÓLFSSON
1950 Sinfóníuhljómsveit Íslands heldur sína fyrstu tón
leika í Austurbæjarbíói og telst hún stofnuð þennan dag.
1957 Jarðskjálfti af stærðargráðunni 9,1 verður á Aleút
eyjum.
1986 Kafarar Bandaríkjaflota finna stjórnklefa geim
skutlunnar Challenger, sem fórst eftir sjötíu og
þriggja sekúndna flug árið 1983, og lík geimfaranna sjö
sem lögðu upp með henni.
1987 Plata U2, The Joshua Tree, kemur út.
1989 Sovétríkin gangast undir lögsögu Alþjóðadóm
stólsins.
1990 Lögregla lokar af hverfið Brixton í SuðurLondon
eftir mótmælaöldu vegna nýs nefskatts.
1991 Tugþúsundir mótmæla stjórn Slobodan Milosevic
í Belgrad.
1992 Alþýðulýðveldið Kína undirritar samning um að
dreifa ekki kjarnavopnum.
2007 Byggingu nýs Wembleyleikvangs lýkur í London.
Merkisatburðir
Fiðluleikarar í Sinfóníuhljómsveit Íslands 1976.
Elskuleg eiginkona mín, móðir,
dóttir, tengdadóttir og systir,
Arndís Jónasdóttir
lést á líknardeild Landspítalans,
Kópavogi, þann 4. mars síðastliðinn.
Jarðsungið verður frá Hafnarfjarðar-
kirkju miðvikudaginn 13. mars kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem
vilja minnast hennar er bent á líknardeild Landspítalans.
Brynjar Þór Gestsson
Jónas Bjarki Brynjarsson
Jónas Sigurðsson
Hrefna Guðmundsdóttir
Gunnar Eyjólfsson
og systkini.
Allt lýsi og öll lykt var
farin en sums staðar
þurfti maður stígvél til að
komast um. Þarna sigldu
menn um lýsið á prömm-
um áður fyrr.
9 . M A R S 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R42 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT
0
9
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:3
7
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
8
7
-3
5
B
C
2
2
8
7
-3
4
8
0
2
2
8
7
-3
3
4
4
2
2
8
7
-3
2
0
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
1
2
s
_
8
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K