Fréttablaðið - 09.03.2019, Síða 101
BÆKUR
Roðabein
Höfundur: Ann Cleeves
Þýðandi: Snjólaug Bragadóttir
Útgefandi: Ugla
Blaðsíður: 351
Roðabein er glæpasaga eftir Ann Cleeves sem nýkomin er út í íslenskri
þýðingu Snjólaugar
Bragadóttur. Bókin
gerist á Hjaltlands-
eyjum þar sem rann-
sóknarlögreglumað-
urinn Jimmy Perez
rannsakar lát konu.
Persónur sögunnar
eru á því að konan
ha f i lát ist veg na
slysaskots og ekkert
sérstakt bendir til
þess að um annað
sé að ræða. Þraut-
þjálfaðir lesendur
glæpasagna hljóta
að telja sig vita betur
og kunna að sýna
vissa óþolinmæði
vegna þess hversu lögreglan er sein
að átta sig. Annað mannslát verður
og er afgreitt sem sjálfsvíg meðan
lesandinn er á annarri skoðun, þótt
ekkert í textanum sjálfum staðfesti
fyllilega þá tilfinningu hans. Í lokin
er svo komið upp um morðingjann
eins og vera ber, og sennilegt er að
fæsta lesendur hafi grunað þann
seka sterklega. Ekki nóg með það
heldur er gamalt sakamál einnig
leyst.
Venjulega veldur Cleeves ekki
vonbrigðum, hún er fær glæpa-
sagnahöfundur og kann sitt fag.
Hér tekst henni að draga upp góða
mynd af samfélagi þar sem fólk
geymir leyndarmál sem smám
saman komast upp á yfirborðið.
Þetta er lokað samfélag þar sem
utanaðkomandi eru ekki alltaf vel-
komnir gestir. Persónusköpun er
góð og tvær eftirminnilegustu per-
sónurnar eru einmitt konurnar sem
myrtar eru. Báðar sérstakar á sinn
hátt og lesandinn
getur ekki annað
en séð eftir þeim.
Lögreglumaðurinn
Perez er stundum
nánast eins og auka-
persóna í bókinni,
týnist stundum innan
um karaktera sem
eru öllu svipmeiri en
hann. Ekki skal það
f lokkað sem galli. Í
glæpasögum verða
lesendur oft þreyttir á
of fyrirferðarmiklum
lýsingum á storma-
sömu einkalíf i lög-
reglufólks þar sem
aldrei ríkir friður. Hér
er þeim hlíft við því.
Roðabein er hin ágætasta glæpa-
saga, gædd hæfilegri spennu. Helsti
kosturinn er þó hversu vel höfundi
tekst að lýsa litlu samfélagi þar
sem einstaklingar eru á vissan hátt
innilokaðir og sumir geyma beina-
grindur inni í skáp.
Kolbrún Bergþórsdóttir
NIÐURSTAÐA: Fín glæpasaga sem
fangar athygli lesandans, ekki síst vegna
áhugaverðra lýsinga á lífi í litlu samfélagi.
Beinagrindur í skápnum
Iveco Crossway árgerð 2015
47 manna ekin 404.000
Verð 7.900.000 Rnr 221590
Iveco Crossway árgerð 2015
47 manna ekin 466.000
Verð 7.900.000 Rnr 221591
Mercedes Benz Integro L árgerð 2015
96 manna ekin 247.000
Verð 12.900.000 Rnr 221592
Man Lions Regio árgerð 2006
69 manna ekin 526.000
Verð 2.990.000 Rnr 221593
Skógarhlíð 10 • 105 Reykjavík • www.bilasalaislands.is
Opið 10-18 virka daga
11-14 á laugardögum
Aðalfundur Sýnar hf.
Aðalfundur Sýnar hf. verður haldinn föstudaginn 22. mars 2019 kl. 10:00,
í höfuðstöðvum félagsins að Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík.
Aðrar upplýsingar:
Skjöl og tillögur sem lögð verða fyrir aðalfund er
að finna á vefsíðu félagsins syn.is/fjarfestatengsl.
Hluthöfum stendur einnig til boða að nálgast skjölin
frá því tímamarki í höfuðstöðvum félagsins að
Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík, virka daga milli
kl. 09:00 – 16:00. Fundurinn fer fram á íslensku og
verða fundargögn jafnframt á íslensku. Ekki verður
unnt að greiða atkvæði með rafrænum hætti á
fundinum.
Hluthafi getur látið umboðsmann sækja hluthafa-
fundinn fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal leggja
fram skriflegt umboð á eyðublaði sem unnt er að
nálgast á vef félagsins.
Endanleg dagskrá og tillögur hafa verið birtar í
Kauphöll og er unnt að nálgast á vef félagsins.
Sérstök tilnefningarnefnd hefur verið að störfum í
samræmi við starfsreglur stjórnar og tilnefningarnefndar.
Hluthafar og aðrir sem óska eftir tilnefningu nefndarinnar
til framboðs til stjórnar að aðalfundi félagsins hafa átt þess
kost að koma áhuga sínum og eftir atvikum framboði á
framfæri við nefndina, en frestur til þess er nú útrunninn.
Skýrsla tilnefningarnefndar var send Kauphöll með fyrra
fundarboði.. Með fyrirvara um að stjórn staðfesti lögmæti
hlutaðeigandi framboða leggur tilnefningarnefnd til að þau
Heiðar Guðjónsson, Anna Guðný Aradóttir, Tanya Zharov,
Hjörleifur Pálsson og Yngvi Halldórsson verði kjörin til setu
sem aðalmenn í stjórn og Óli Rúnar Jónsson og Sigríður
Vala Halldórsdóttir verði kosin í varastjórn.
Tilnefningarnefnd mun leggja til að Kristinn Hallgrímsson
hrl. verði fundarstjóri aðalfundarins.
Eftir sem áður er unnt að tilkynna um framboð til stjórnar
skriflega minnst fimm sólarhringum fyrir aðalfund, sbr. 63.
gr. a. hlutafélagalaga nr. 2/1995 eða fyrir kl. 10 sunnudaginn
17. mars 2019. Framboð skulu berast á netfangið:
tilnefningarnefnd@syn.is
Endanlegar upplýsingar um frambjóðendur til
stjórnar verða birtar eigi síðar en tveimur dögum
fyrir aðalfund.
Í samræmi við starfsreglur stjórnar og starfsreglur
tilnefningarnefndar gefst hluthöfum tækifæri á að
kjósa tvo af þremur fulltrúum í tilnefningarnefnd.
Framboðsfrestur til tilnefningarnefndar er til kl.
10 sunnudaginn 17. mars 2019 og ber að skila
framboðum á netfangið: tilnefningarnefnd@syn.is
Reglur um stjórnarkjör gilda eftir því sem við getur
átt um kosningu tilnefningarnefndarfulltrúanna.
Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og önnur fundar-
gögn verða afhent frá kl. 9:30 á aðalfundardegi.
Stjórn Sýnar hf.
Dagskrá fundarins:
1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess á liðnu starfsári.
2. Ákvörðun um hvernig skuli fara með hagnað félagsins á
reikningsárinu 2018.
3. Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár lagður fram til staðfestingar.
4. Tillögur um breytingar á samþykktum félagsins, sem fela í sér:
a) Að heimila birtingu 20 stærstu hluthafa Sýnar hf.
b) Að heimila félaginu kaup á eigin hlutum, sem verður viðauki við
samþykktirnar.
5. Tillaga um stefnu um arðgreiðslur og/eða endurkaup eigin hluta.
6. Tillaga um starfskjarastefnu félagsins.
7. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna fyrir árið 2019.
8. Kosning stjórnar félagsins.
9. Kosning tveggja fulltrúa í tilnefningarnefnd félagsins í samræmi
við starfsreglur stjórnar og starfsreglur tilnefningarnefndar.
10. Kosning endurskoðanda félagsins.
11. Önnur mál löglega upp borin.
M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 53L A U G A R D A G U R 9 . M A R S 2 0 1 9
0
9
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:3
7
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
8
7
-2
6
E
C
2
2
8
7
-2
5
B
0
2
2
8
7
-2
4
7
4
2
2
8
7
-2
3
3
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
1
2
s
_
8
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K