Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.12.2018, Blaðsíða 40
SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 2018
BORGHESE Model 2826
L 220 cm Leður ct. 15 Verð 489.000,-
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
JEREMY Model 2987
L 202 cm Áklæði ct. 86 Verð 430.000,-
L 202 cm Leður ct. 30 Verð 585.000,-
ETOILE Model 2623
L 230 cm Leður ct. 25 Verð 485.000,-
ESTRO Model 3042
L 164 cm Leður ct. 15 Verð 325.000,-
L 198 cm Leður ct. 15 Verð 355.000,-
MENTORE Model 3052
L 162 cm Áklæði ct. 83 Verð 315.000,-
L 201 cm Áklæði ct. 83 Verð 345.000,-
Jólaþáttur hinna vinsælu sjónvarpsþátta um táningsnornina
Sabrinu, Chilling Adventures of Sabrina, sem fóru í loftið á
Netflix í október er heldur betur á íslenskum nótum í ár þar
sem Grýla sjálf er í aðalhlutverki. Warner Bros framleiðir
þættina eftir myndasögunum Sabrina the Teenage Witch,
frá árinu 1962 sem gefnar eru út af Archie Comics.
Í þættinum er Grýla á margan hátt jafnhræðileg og í ís-
lensku þjóðsögunum, hún drepur enn og borðar fólk en öf-
ugt við það sem áður var er hún samt einhvers konar vernd-
ari týndra barna og aðstoðar þau og er sá þáttur á nýju
æviskeiði hennar skref í þá átt að bæta fyrir misgjörðir for-
tíðarinnar.
Fréttamiðilinn Elite Daily segir þátt Grýlu vel heppnaðan
en þátturinn er kominn inn á íslenska hluta Netflix, er nýj-
asti og 11. þátturinn þar.
Grýla í jólaþætti Sabrinu
Heather Doerksen fer með hlutverk Grýlu.
Íslenskur andi svífur yfir nýjasta þættinum um táningsnornina Sabrinu.
Nýjustu þættirnir um
táningsnornina Sabrinu
eru á Netflix.
Litlir kærleikar voru áratugum
saman með þessu blaði, sem þú
ert með í höndunum, lesandi
góður, og Þjóðviljanum enda lífs-
sýn og pólitísk afstaða forsvars-
manna blaðanna tveggja ólík. Í
langri grein í Morgunblaðinu fyr-
ir réttum sjötíu árum, 16. des-
ember 1948, skrifaði Valtýr Stef-
ánsson ritstjóri m.a.:
„Magnús Kjartansson ritstjóri
Þjóðviljans segir að hann hafi
fundið það út, af einhverri sher-
lockholmesarnáttúru sinni, að
jeg muni hafa farið til Parísar til
að þiggja þar fje frá Marshall
stofnuninni(!) Hann má heimska
sig á slíkum áburði í minn garð,
eins lengi og hann vill. Það gerir
ekki annað en leiða athygli
manna að því, að hann vinnur að
blaði, og fyrir flokk, sem sann-
anlega hefir notið og nýtur ríf-
legra styrkja frá þeim fjár-
hirslum, er hafa erfiði og strit
þeirra að fjeþúfu, sem í þrældóm
eru hneptir af kommúnistum,
og eyða þannig síðustu lífs-
kröftum sínum.“
Greinin var partur af greina-
flokki Valtýs um stjórnmálaferil
kommúnista, frá því forystu-
menn þeirra brutust til valda í
Rússlandi þrjátíu árum fyrr. Í
skrifin réðst hann, að sögn,
vegna þess, „að áberandi er, hve
íslenskir blaðalesendur eru enn í
dag ókunnugri þessum málum,
en alþýða manna í flestum lönd-
um Norðurálfunnar“.
GAMLA FRÉTTIN
Sherlock-
holmesar-
náttúra
Magnús KjartanssonValtýr Stefánsson
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Steingrímur J. Sigfússon
forseti alþingis
Hilmar Gunnlaugsson
stjórnarform. Vaðlaheiðarganga hf.
Kristján Kristjánsson (KK)
tónlistarmaður