Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.12.2018, Blaðsíða 10
Ég vaknaði með bros á vör. Égheyrði að stelpurnar vorukomnar á fætur og teygði mig
í símann, 9:07. Jæja, það var nú bara
nokkuð gott! Ég lá í smástund og
renndi yfir gærkvöldið. Ég hafði náð
svo góðu samtali við pabba og Ingu
systur. Það hafði nú ekki gerst í
marga mánuði, þau eru alltaf á þön-
um, og ég reyndar líka. Gaman að
heyra hvað gamli er bissí þótt hann
sé formlega hættur að vinna. Ég
brosti að atorkunni og vonaði að
þetta biði mín líka þegar ég kæmist á
eftirlaun.
Ég skreið fram úr, best að athuga
með stelpurnar og hvort Maggi væri
ekki örugglega frammi að sinna þeim
eða hvort hann lægi flatur ofan í kon-
fektskálinni. Þegar ég rölti fram
þyrmdi yfir mig. Pappír og drasl úti
um allt. Við höfðum farið snemma af
stað til Ingu systur í gærmorgun og
ekki komið snemma heim frekar en
venjulega á jóladagskvöld. Ein aðal-
ástæða þess að jóladagur er í uppá-
haldi hjá mér.
Ég settist niður og horfði á átaka-
svæðið. Gjafapappír, borðar og um-
búðir úti um allt, þótt megnið hefði
nú ratað ofan í poka, pappírinn og
plast sér svo það færi í endurvinnsl-
una. Gjafir innan fjölskyldunnar voru
gefnar í fjölnota pokum sem við not-
um ár eftir ár en það er víst erfitt að
stjórna því hvað kemur inn á heim-
ilið. Þarna lá líka brotinn tyggjókúlu-
skammtari, ugh! Ég var ekki lítið
svekkt þegar þetta kom upp úr pökk- unum hjá stelpunum. Ég hafði sér-
staklega beðið mömmu að vera ekki
að kaupa plastdrasl handa þeim í
jólagjöf. „En þær hafa svo gaman af
þessu,“ hafði hún sagt með afsök-
unartón þegar ég hermdi þetta upp á
hana í gær. Annar skammtarinn
hafði brotnað strax um kvöldið,
meira ruslið.
Stelpurnar lágu og horfðu á jóla-
teiknimyndir úr sófanum, en hvar
var Maggi? Jú, þarna var hann, að
hella upp á kaffi í eldhúsinu. Á eld-
húsbekknum sá ég glitta í Mach-
intoshið sem hann fékk frá vinnunni í
jólagjöf. Nokkrir litríkir molar lágu á
bekknum. Ég sem hafði passað mig
sérstaklega á að kaupa íslenskt kon-
fekt í lágmarksumbúðum fyrir jólin,
svo fékk hann þetta í jólagjöf.
Ég stóð upp og rölti inn í eldhús
eftir bolla. „Góðan daginn elskan,“
sagði Maggi og rétti mér uppáhalds-
jólakönnuna mína með jólasveininum
á sundbuxunum, með áletruninni
„Sometimes it’s nice to be naughty“.
„Já,“ svaraði ég, þurr á manninn.
„Hvað, vaknaðir þú öfugum meg-
in?“ Maggi var frekar hissa á sinni
konu. „Æ, fyrirgefðu.“ svaraði ég,
„ég er bara að svekkja mig á þessum
endalausa umbúðaaustri og óþarfa
drasli sem fylgir jólunum.“ „Þá er
best að ég sé ekkert að opna fyrir þig
ísskápinn“, sagði Maggi glottandi.
„Æ, nei vertu ekki að því,“ svaraði
ég, enda vissi ég vel að ísskápurinn
var fullur af veislumat síðan á að-
fangadag og við á leiðinni til tengdó í
jólaboð seinnipartinn. „Við setjum
eitthvað af þessu í frystinn á eftir,“
sagði Maggi og kyssti mig á kinnina.
Ég settist við eldhúsborðið. Þar
stóð aðventukransinn með rauðu
kertunum sem ég hafði keypt í nóv-
ember, áður en ég las um að kerti
sem ekki væru umhverfisvottuð
væru unnin úr jarðolíu og sóta og
menguðu andrúmsloftið innanhúss,
sérstaklega fyrir börnum. Ég starði
ofan í kaffibollann og fann hvernig
samviskubitið og vonleysið rann eins
og kalt vatn niður bakið á mér. Þótt
ég væri löngu hætt að panta af alí og
reyndi að kaupa allt umhverfisvottað
frá klósettpappír upp í hótelgistingu
þá bara gat ég ekki vitað allt. Ég
passaði auðvitað að álbakkarnir und-
an sprittkertunum, ónýtar jólaseríur
og annað færi á réttan stað í Sorpu
en … ugh. Ég sá líka alveg svipinn á
foreldrunum í bekknum þegar stelp-
urnar mættu á litlu jólin með gjaf-
irnar í pakkaleikinn pakkaðar inn í
auglýsingapappír. Stelpurnar höfðu
haft svo gaman af því að velja flott-
ustu myndirnar sem þær fundu og
gera pakkana flotta.
Ég fann hönd strjúkast yfir axl-
irnar á mér. Maggi settist við hliðina
á mér og brosti huggandi, ekki í
fyrsta sinn sem hann sá þennan svip
á andlitinu á mér. „Þú ert ekki ein í
þessu liði, elskan,“ sagði hann rólega.
„Nei, það er rétt.“ Ég vissi það alveg
en stundum var ég bara svo lítil í
stóra samhenginu.
„Mamma!“ Öskrin í Aldísi vöktu
mig til lífsins, „hvenær förum við til
ömmu?“ Hún skoppaði brosandi til
mín. „Ekki fyrr en seinnipartinn,
elskan,“ sagði ég, „ertu svöng?“
„Nei, við Freydís vorum að borða
mandarínurnar sem voru á sófaborð-
inu,“ sagði Aldís um leið og hún
teygði sig eftir bleikum Machintosh-
mola á eldhúsbekknum. Ég nennti
ekki að hreyfa mótbárum.
Freydís kom hlaupandi inn í eld-
hús. „Æ mamma, minn brotnaði
líka,“ sagði hún og rétti mér brotinn
tyggjó-skammtara. „Æ, ekki þolir
þetta nú mikið,“ sagði ég. „Já, þetta
er nú meira draslið, mamma,“ sagði
Freydís, „af hverju er amma að
kaupa svona plastdrasl?“
„Sjórinn er fullur af plasti,“ muldr-
aði Aldís án þess að líta upp úr bók-
inni sem hún var að fletta. „Ég veit
það ekki, elskan,“ sagði ég og leit aft-
ur á Freydísi. „Við þurfum að segja
henni að hætta að kaupa svona
drasl,“ sagði Freydís áhyggjufull. Ég
fann hvernig samviskubitið skreið
aftur niður bakið á mér, var ég búin
að smita stelpurnar af þessum um-
hverfisáhyggjum líka?
„Við berum ekki ábyrgð á inn-
kaupum annarra, elskan,“ sagði ég,
„við getum bara borið ábyrgð á okk-
ar eigin hegðun. Við kaupum ekki
svona, við reynum að kaupa sem
minnst af plasti, minnst af óþarfa og
förum vel með það sem við eigum.
Það er það sem við getum gert. Svo
eru fleiri sem gera það sama og
margt smátt gerir eitt stórt. Í
vinnunni hjá mömmu er líka verið að
kaupa minna og breyta umbúðunum
sem við seljum svo það verði minna
plast. Við erum komin með stefnu í
sjálfbærni.“ „Já,“ sagði Freydís
hugsi, „það er gott. Mamma, getum
við horft á Álf?“ „Aftur?“ svaraði ég,
bara búin að sjá hana þrisvar í des-
ember. „Já, við förum ekki alveg
strax,“ sagði Aldís. „Allt í lagi,“ sagði
ég og leyfði stelpunum á toga mig á
fætur.
Þegar við löbbuðum inn í stofu
horfði ég yfir allar gjafirnar og papp-
írsruslið og hugsaði með mér að ég
gæti ekki stjórnað öðrum en ég get
stjórnað mér og ég hef áhrif. Ég hef
áhrif á stelpurnar, ég hef áhrif á fólk-
ið sem ég vinn með, fjölskyldu og
vini. Sem betur fer eru fleiri og fleiri
að vakna, bæði einstaklingar og fyr-
irtæki. Ég get átt viðskipti við þá
sem eru að breyta til betri vegar og
vilja taka þátt í sjálfbæru samfélagi.
En núna eru jól og ég ætla mér að
lifa og njóta með fjölskyldunni minni
á eins sjálfbæran og samviskubits-
lausan hátt og ég get. Áhyggjur gera
ekkert nema stela af mér gleðinni og
fæla frá því að gera hlutina á nýja
vegu. Ég veit ekki allt og get ekki
allt, en ég get margt og margt smátt
gerir eitt stórt.
Gleðileg jól, lesendur góðir. Njót-
um hátíðanna, sleppum óþarfa og
áhyggjum.
Sjálfbær jólasaga
Í átt að
sjálfbærni
dr. Snjólaug Ólafsdóttir
snjolaug@andrymi.is
’Ég fann hvernig sam-viskubitið skreið afturniður bakið á mér, var égbúin að smita stelpurnar
af þessum umhverfis-
áhyggjum líka?
Thinkstock
VETTVANGUR
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.12. 2018
Rekaviðarhálsmen frá kr. 15.500
Teketill úr postulíni kr. 36.500
Smádúkur úr lífrænni bómull kr. 4.900
Íslensk hönnun - Íslenskt handverk
Vesturgötu 4, 101 Reykjavík, s. 562 8990
www.kirs.is,
Kirsuberjatréð Íslensk Hönnun
Opið: Mán.-fös. 10-18, lau. 10-17, sun 10-17
Roðtöskur
Z-brautir &
gluggatjöld
Opið mán.-fös. 10-18, lau. 11-15 Faxafeni 14 | 108 Reykjavík | S. 525 8200 | www.z.is |
Mælum, sérsmíðum og setjum upp
Úrval - gæði - þjónusta
Falleg gluggatjöld
fyrir falleg heimili