Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.12.2018, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.12. 2018
VETTVANGUR
móti miklu nær og gildir ennþá sem
grundvöllur siðferðis okkar.
Afstaðan til breytinga
Sú staðreynd er ennþá merkilegri
þegar haft er í huga að viðmið okkar
um réttlæti, mannréttindi, jafnrétti,
virðingu, velsæmi og fleira eru sífellt
að breytast. Nánast frá ári til árs.
Samfélag okkar breytist svo hratt að
við hreinlega göpum af undrun yfir
mörgu því úrelta sem við lesum í
fimmtíu ára göml-
um dagblöðum.
Samt lifir tvö þús-
und ára gamall
texti sem almennt
viðurkennd leið-
beining um gott
siðferði og æski-
lega breytni.
Hvað segir
þetta okkur um
breytingar? Eig-
um við að fagna
þeim eða eigum við að spyrna við fót-
um? Eigum við að verja gömul gildi
eða taka nýjum opnum örmum? Eig-
um við að vera róttæk eða íhaldssöm?
Það að tvö þúsund ára texti skuli
ennþá vera viðurkenndur grundvöll-
ur siðferðis okkar hlýtur að mæla
með íhaldssemi og hvetja okkur til að
verja gömul gildi og sporna við breyt-
ingum. En það að okkur þyki fimmtíu
ára gömul dagblöð (og jafnvel yngri)
vera uppfull af úreltum viðhorfum
hlýtur aftur á móti að mæla með rót-
tækni og hvetja okkur til að fagna
nýjum gildum og styðja breytingar.
Niðurstaðan er að við þurfum að
vega og meta hvert tilvik fyrir sig. Að
mínu mati kennir sagan okkur að ný
viðhorf séu oftar góð en slæm. Ann-
ars væri saga mannkynsins ekki sú
saga framfara sem hún er. En reglan
er ekki algild og við getum ekki gefið
okkur að allar nýjungar séu eftir-
sóknarverðar. Af og til koma fram ný
viðhorf sem eru hættuleg. Þau eru þá
annaðhvort slegin niður og gleymast
eða ná útbreiðslu og keyra okkur út
af sporinu. Orwell spáði réttilega fyr-
ir um slíka atburði í bókinni „1984“,
svo að eitt dæmi sé nefnt.
Að finna róttækni
í hinu gamla
Þó að Jesú sé í dag ímynd hinna
„gömlu og góðu gilda“ er hollt að hafa
í huga að hann var sjálfur róttækur.
Hið fræga tilsvar hans um að sá
Á aðventunni er merkilegt aðhugsa til þess að Nýja testa-mentið er miklu eldra en
Gamla testamentið var á dögum
Jesú. Frá sjónarhóli nútímans er því
ekki svo mikill munur á aldri þeirra.
Samt finnst okkur umfjöllunarefni
Gamla testamentisins á borð við
syndaflóð, útvaldar þjóðir, barna-
fórnir, engisprettuplágur og fleira í
þeim dúr vera ansi fjarlægt okkur, og
sama má segja um boðskap þess um
„auga fyrir auga“, á meðan Nýja
testamentið stendur okkur aftur á
syndlausi skyldi kasta fyrsta stein-
inum, sem fékk viðstadda ofan af því
að grýta konu til dauða, var mjög rót-
tækt og í beinni andstöðu við skýran
lagabókstaf Gamla testamentisins.
Meira að segja Gamla testamentið,
mögulega mesta íhald sem fyrir-
finnst í vestrænni menningu, er að
sumu leyti róttækt og framsækið,
jafnvel á mælikvarða nútímans.
Reglan um að elska náungann eins
og sjálfan sig er upprunalega þaðan,
þó að hún eigi
frægð sína jóla-
barninu að þakka.
Í því er líka að
finna ítrekuð fyr-
irmæli um réttindi
útlendinga sem
þættu ábyggilega
nokkuð róttæk
væru þau skrifuð í
stjórnarsáttmála í
dag. Þá má nefna
að reglan um
„auga fyrir auga“, sem okkur finnst
grimmileg í dag, var að öllum lík-
indum róttæk og framsækin hóf-
semdarregla á sínum tíma, sett til að
knýja menn til að hverfa frá stjórn-
lausum hefndum og hemja sig.
Veitum gleði og
sýnum kærleika
Þó að Ísland sé í fremstu röð á flesta
mælikvarða lífsgæða verðum við öll
að leggjast á árarnar og halda áfram
að berjast fyrir betra samfélagi. Eitt
mikilvægasta verkefni okkar er að
stuðla að gleði og hamingju, okkar
eigin og annarra, með hegðun okkar
og framferði frá degi til dags. Burt-
séð frá trú eða trúleysi hvers og eins
þá veitir afmælisbarn mánaðarins
ennþá merkilega góða leiðbeiningu
um hvernig við getum farið að því.
Við höfum á undanförnum mán-
uðum farið í gegnum erfiða umræðu
um virðingu og mörk í samskiptum
fólks, sem ekkert lát virðist á. Ég trúi
að þessi umræða sé til marks um já-
kvæðar breytingar í gildismati og
viðmiðum. Um leið verðum við að
rifja upp gömlu gildin um að elska
náungann og sýna honum kærleika
og samkennd.
Nýtum hátíðina til að láta gott af
okkur leiða, sýna öðrum kærleika,
þakka fyrir það sem við höfum og
vera almennileg hvert við annað.
Hver veit nema við getum jafnvel
vanið okkur á það?
Hugleiðing á aðventu
um gömul gildi og ný
’Ég trúi að þessi um-ræða sé til marks umjákvæðar breytingar ígildismati og viðmiðum.
Um leið verðum við að
rifja upp gömlu gildin
um að elska náungann
og sýna honum kærleika
og samkennd.
Úr ólíkum
áttum
Þórdís Kolbrún R.
Gylfadóttir
thordiskolbrun@anr.is
Morgunblaðið/Ómar
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna.
Elskaðu. Lifðu. Njóttu.
Ég get sagt með góðri samvisku að Femarelle VIRKAR.
Hitakófin hættu, vakna ekki lengur á nóttinni og fótapirringur
er minni eftir að ég fór að taka inn Femarelle.
Halldóra Ósk Sveinsdóttir
40+
FEMARELLE REJUVENATE
• Minnkar skapsveiflur
• Stuðlar að reglulegum svefni
• Eykur orku
• Eykur teygjanleika húðar
• Viðheldur eðlilegu hári
50+
FEMARELLE RECHARGE
• Slær hratt á einkenni
(hitakóf og nætursviti minnka)
• Stuðlar að reglulegum svefni
• Eykur orku
• Eykur kynhvöt
• Hefur engin áhrif á vef
í brjóstum eða legi
60+
FEMARELLE UNSTOPPABLE
• Inniheldur kalsíum og D3-vítamín
• Eykur liðleika
• Stuðlar að reglulegum svefni
• Eykur orku sem stuðlar að
andlegu jafnvægi
Ármúli 7, Reykjavík | Sími 568 0708 | www.fako.is
Gefðu gjöf
aMOVE
14.995 kr.
aHEAD
15.995 kr.
aFUNK
17.995 kr.tRADIO
19.995 kr.
sem gaman er að nota
Gildir á alla viðburði í húsinu
Nánar á harpa.is/gjafakort
Gjafakort
Hörpu hljómar
vel um jólin