Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.12.2018, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.12.2018, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.12. 2018 VETTVANGUR móti miklu nær og gildir ennþá sem grundvöllur siðferðis okkar. Afstaðan til breytinga Sú staðreynd er ennþá merkilegri þegar haft er í huga að viðmið okkar um réttlæti, mannréttindi, jafnrétti, virðingu, velsæmi og fleira eru sífellt að breytast. Nánast frá ári til árs. Samfélag okkar breytist svo hratt að við hreinlega göpum af undrun yfir mörgu því úrelta sem við lesum í fimmtíu ára göml- um dagblöðum. Samt lifir tvö þús- und ára gamall texti sem almennt viðurkennd leið- beining um gott siðferði og æski- lega breytni. Hvað segir þetta okkur um breytingar? Eig- um við að fagna þeim eða eigum við að spyrna við fót- um? Eigum við að verja gömul gildi eða taka nýjum opnum örmum? Eig- um við að vera róttæk eða íhaldssöm? Það að tvö þúsund ára texti skuli ennþá vera viðurkenndur grundvöll- ur siðferðis okkar hlýtur að mæla með íhaldssemi og hvetja okkur til að verja gömul gildi og sporna við breyt- ingum. En það að okkur þyki fimmtíu ára gömul dagblöð (og jafnvel yngri) vera uppfull af úreltum viðhorfum hlýtur aftur á móti að mæla með rót- tækni og hvetja okkur til að fagna nýjum gildum og styðja breytingar. Niðurstaðan er að við þurfum að vega og meta hvert tilvik fyrir sig. Að mínu mati kennir sagan okkur að ný viðhorf séu oftar góð en slæm. Ann- ars væri saga mannkynsins ekki sú saga framfara sem hún er. En reglan er ekki algild og við getum ekki gefið okkur að allar nýjungar séu eftir- sóknarverðar. Af og til koma fram ný viðhorf sem eru hættuleg. Þau eru þá annaðhvort slegin niður og gleymast eða ná útbreiðslu og keyra okkur út af sporinu. Orwell spáði réttilega fyr- ir um slíka atburði í bókinni „1984“, svo að eitt dæmi sé nefnt. Að finna róttækni í hinu gamla Þó að Jesú sé í dag ímynd hinna „gömlu og góðu gilda“ er hollt að hafa í huga að hann var sjálfur róttækur. Hið fræga tilsvar hans um að sá Á aðventunni er merkilegt aðhugsa til þess að Nýja testa-mentið er miklu eldra en Gamla testamentið var á dögum Jesú. Frá sjónarhóli nútímans er því ekki svo mikill munur á aldri þeirra. Samt finnst okkur umfjöllunarefni Gamla testamentisins á borð við syndaflóð, útvaldar þjóðir, barna- fórnir, engisprettuplágur og fleira í þeim dúr vera ansi fjarlægt okkur, og sama má segja um boðskap þess um „auga fyrir auga“, á meðan Nýja testamentið stendur okkur aftur á syndlausi skyldi kasta fyrsta stein- inum, sem fékk viðstadda ofan af því að grýta konu til dauða, var mjög rót- tækt og í beinni andstöðu við skýran lagabókstaf Gamla testamentisins. Meira að segja Gamla testamentið, mögulega mesta íhald sem fyrir- finnst í vestrænni menningu, er að sumu leyti róttækt og framsækið, jafnvel á mælikvarða nútímans. Reglan um að elska náungann eins og sjálfan sig er upprunalega þaðan, þó að hún eigi frægð sína jóla- barninu að þakka. Í því er líka að finna ítrekuð fyr- irmæli um réttindi útlendinga sem þættu ábyggilega nokkuð róttæk væru þau skrifuð í stjórnarsáttmála í dag. Þá má nefna að reglan um „auga fyrir auga“, sem okkur finnst grimmileg í dag, var að öllum lík- indum róttæk og framsækin hóf- semdarregla á sínum tíma, sett til að knýja menn til að hverfa frá stjórn- lausum hefndum og hemja sig. Veitum gleði og sýnum kærleika Þó að Ísland sé í fremstu röð á flesta mælikvarða lífsgæða verðum við öll að leggjast á árarnar og halda áfram að berjast fyrir betra samfélagi. Eitt mikilvægasta verkefni okkar er að stuðla að gleði og hamingju, okkar eigin og annarra, með hegðun okkar og framferði frá degi til dags. Burt- séð frá trú eða trúleysi hvers og eins þá veitir afmælisbarn mánaðarins ennþá merkilega góða leiðbeiningu um hvernig við getum farið að því. Við höfum á undanförnum mán- uðum farið í gegnum erfiða umræðu um virðingu og mörk í samskiptum fólks, sem ekkert lát virðist á. Ég trúi að þessi umræða sé til marks um já- kvæðar breytingar í gildismati og viðmiðum. Um leið verðum við að rifja upp gömlu gildin um að elska náungann og sýna honum kærleika og samkennd. Nýtum hátíðina til að láta gott af okkur leiða, sýna öðrum kærleika, þakka fyrir það sem við höfum og vera almennileg hvert við annað. Hver veit nema við getum jafnvel vanið okkur á það? Hugleiðing á aðventu um gömul gildi og ný ’Ég trúi að þessi um-ræða sé til marks umjákvæðar breytingar ígildismati og viðmiðum. Um leið verðum við að rifja upp gömlu gildin um að elska náungann og sýna honum kærleika og samkennd. Úr ólíkum áttum Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir thordiskolbrun@anr.is Morgunblaðið/Ómar Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna. Elskaðu. Lifðu. Njóttu. Ég get sagt með góðri samvisku að Femarelle VIRKAR. Hitakófin hættu, vakna ekki lengur á nóttinni og fótapirringur er minni eftir að ég fór að taka inn Femarelle. Halldóra Ósk Sveinsdóttir 40+ FEMARELLE REJUVENATE • Minnkar skapsveiflur • Stuðlar að reglulegum svefni • Eykur orku • Eykur teygjanleika húðar • Viðheldur eðlilegu hári 50+ FEMARELLE RECHARGE • Slær hratt á einkenni (hitakóf og nætursviti minnka) • Stuðlar að reglulegum svefni • Eykur orku • Eykur kynhvöt • Hefur engin áhrif á vef í brjóstum eða legi 60+ FEMARELLE UNSTOPPABLE • Inniheldur kalsíum og D3-vítamín • Eykur liðleika • Stuðlar að reglulegum svefni • Eykur orku sem stuðlar að andlegu jafnvægi Ármúli 7, Reykjavík | Sími 568 0708 | www.fako.is Gefðu gjöf aMOVE 14.995 kr. aHEAD 15.995 kr. aFUNK 17.995 kr.tRADIO 19.995 kr. sem gaman er að nota Gildir á alla viðburði í húsinu Nánar á harpa.is/gjafakort Gjafakort Hörpu hljómar vel um jólin

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.