Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.12.2018, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.12.2018, Blaðsíða 14
VIÐTAL 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.12. 2018 Á miðjum vegg í stofunni heima hjá Valdimari Sverrissyni í Há- túni í Reykjavík hangir ljós- mynd eftir Braga Þór Jósefsson sem tekin er í herstöðinni á Miðnesheiði eftir að bandaríski herinn yfirgaf landið. Látlaus mynd en sterk. Sjálfur tengist Valdimar hvorki Miðnesheiði né hernum en téð mynd hefur eigi að síður mikið tilfinn- ingalegt gildi fyrir hann – hún var á síðustu ljósmyndasýningunni sem hann sá áður en hann missti sjónina árið 2015. „Ég hreifst af sýningunni og langaði strax að eignast þessa mynd,“ útskýrir Valdimar, þar sem við stöndum saman fyrir framan myndina í stofunni. Þetta er merkilegt augna- blik því ég finn að hann, blindur maðurinn, sér myndina þrátt fyrir allt betur en ég. Góður ljósmyndari glatar líklega aldrei tilfinning- unni. „Skömmu síðar veiktist ég hins vegar og líf mitt tók í framhaldinu miklum breyt- ingum,“ heldur Valdimar áfram. „Þá hætti ég að hugsa um þetta. Það var síðan þegar ég flutti hingað í Hátúnið að ég mundi aftur eftir þessari mynd; þetta var síðasta sýningin sem ég sá og ég mun ekki sjá fleiri í þessu lífi. Þess vegna hringdi ég í Braga og fékk myndina hjá honum. Það er virkilega gaman að hafa hana hérna uppi á vegg; ég sé hana auðvitað ekki lengur en man nákvæmlega hvernig hún er.“ Var orðinn „kexruglaður“ Allt byrjaði það með persónuleikabreytingum, geðsveiflum, sinnuleysi, framtaksleysi, fjar- veru frá vinnu, óhóflegum svefni, bjöguðu lyktar- og bragðskyni og versnandi sjón. Þetta var vorið 2015 og Valdimar var farinn að hegða sér mjög undarlega, eiginlega orðinn „kexruglaður“, eins og hann orðar það sjálfur, og varla í húsum hæfur. Alltént gafst sam- býliskona hans upp og vísaði honum út af heimilinu, þar sem þau bjuggu ásamt tveimur ungum dætrum sínum, Hildi Önnu og Láru Margréti. Fyrir átti hann uppkomna dóttur frá fyrra sambandi, Valdísi Ingunni hjúkr- unarfræðing. „Eftir á að hyggja skil ég af- stöðu hennar mjög vel,“ segir Valdimar, þegar við höfum komið okkur makindalega fyrir í stofunni. „Ég var orðinn virkilega erfiður í samskiptum; farinn að öskra og æpa og steyta hnefann af minnsta tilefni á heimilinu, allt áreiti lagðist á sálina á mér. Sambýliskonu minni var því nauðugur einn kostur – að vísa mér út. Hún hafði miklar áhyggjur af mér, hélt að ég væri þunglyndur og hvatti mig ein- dregið til að fara til læknis.“ Valdimar flutti inn til móður sinnar, Önnu Valdimarsdóttur sálfræðings og rithöfundar, og sama mynstrið hélt áfram. Vinnufélagar hans hjá prentsmiðjunni Prentmeti furðuðu sig á háttalagi Valdimars og tíðri fjarveru úr vinnu og ráðlögðu honum einnig að leita til læknis. „Ég hlustaði ekkert á það enda pældi ég lítið í þessu sjálfur; fannst ekkert ama að mér. Að því kom að fyrrverandi sambýliskona mín tók frumkvæðið og pantaði tíma fyrir mig hjá heimilislækni og ég fór þangað. Ekkert kom hins vegar út úr þeirri heimsókn; til stóð að taka blóðprufu en af einhverjum ástæðum var það ekki hægt. Ég man ekki hvort verkfall var í gangi eða eitthvað annað.“ Seinkaði um sólarhring Enn seig á ógæfuhliðina. Hringt var í Valdi- mar að morgni vegna verkefnis í vinnunni og hann kvaðst koma eftir hádegi. Leið nú og beið og hann skilaði sér ekki fyrr en eftir hádegi daginn eftir. Starfsmannastjóri Prentmets kallaði Valdimar í framhaldinu á sinn fund og spurði beint út hvort hann vildi láta reka sig. Hann var þá farinn að sofa reglulega til hádeg- is og jafnvel lengur. „Nei, þá segi ég frekar upp,“ svaraði Valdimar keikur um hæl. „Þarna var ég orðinn alveg svakalega ruglaður og brúkaði bara munn.“ Sjónin fór líka versnandi; Valdimar var að mestu hættur að geta lesið og farinn að keyra mjög hægt. Þá var farið að leka mikið úr aug- unum á honum; tær vökvi. Það varð til þess að Valdimar fór í mælingu til vinar síns, Jóhann- esar Ingimundarsonar, en hann er optíker. Jó- hannes ráðlagði Valdimari strax að fara til augnlæknis og pantaði raunar sjálfur fyrir hann tíma hjá manni í sama húsi. Fékk hann tíma þremur dögum síðar en oftar en ekki er biðin eftir slíkri þjónustu nokkrar vikur. Valdimar mætti til augnlæknisins sem í ljósi aðstæðna var alls ekki sjálfgefið. Sá síð- arnefndi sá þegar í stað að ekki var allt með felldu; útbjó bréf með Valdimari og sendi hann beinustu leið á bráðamóttökuna í Fossvogi. Eftir að hafa verið skoðaður í bak og fyrir var Valdimar sendur í höfuðskanna og þar kom meinið í ljós – góðkynja æxli á stærð við sítrónu, menignoma á fagmáli. Aron Björns- son, heila- og taugaskurðlæknir, færði Valdi- mari fréttirnar og hnýtti við að greiningin kæmi svolítið á óvart, mein sem þetta væri al- gengast hjá eldri konum. „Tja, þið hafið ekki skoðað mig fyrir neðan mitti!“ svaraði þá sjúklingurinn. Á þeirri stundu stökk lækninum víst ekki bros. Bæði sjokk og léttir Valdimar fékk að fara af spítalanum daginn eftir en sterameðferð hófst þegar í stað í því augnamiði að draga úr bólgum og bjúg í kring- um æxlið, svo það yrði betur skurðtækt. „Það var bæði sjokk og léttir að fá grein- ingu,“ segir Valdimar. „Sjokk vegna þess að það er sláandi að vera með æxli á stærð við sí- trónu í höfðinu og léttir vegna þess að búið var að finna hvað amaði að mér.“ Læknar töldu að æxlið hefði vaxið í tíu til fimmtán ár og smám saman farið að hafa áhrif á persónuleika Valdimars og atgervi. Hann kveðst á köflum hafa verið hátt uppi á sterunum og átt til að bresta í söng af öllu og engu tilefni á sjúkrabeðinum. Ekki síst þegar kvenkyns læknir nokkur kom að vitja um hann. „Doctor Doctor, gimme the news. I got a bad case of lovin’ you,“ söng þá Valdimar að hætti Roberts Palmers. „Hún tók þessu bara vel – enda aðstæður þannig,“ rifjar hann upp. Valdimar fór undir hnífinn 15. júní 2015, þar sem æxlið var fjarlægt. Aðgerðin þótti heppn- ast vel en læknirinn hafði á orði að hann hefði aldrei lent í eins hörðu höfði. Fyrir vikið tók aðgerðin aðeins lengri tíma en reiknað hafði verið með. Valdimar var á gjörgæslu í um sólarhring en var þá fluttur á almenna deild, þvert á vilja móður hans og fyrrverandi sambýliskonu. Að þeirra dómi var hann ekki í nokkru standi til þess. Þær voru þó fullvissaðar um að öllu væri óhætt. „Fljótlega eftir að ég kom niður á al- menna deild fór eitthvað að gerast; það var eins og höfuðið á mér væri að springa. Ég var því fluttur með hraði aftur upp á gjörgæslu; í minningunni var ég þarna milli svefns og vöku.“ Eftir það sá ég ekki neitt Valdimar jafnaði sig fljótlega en var illa átt- aður. Hann minnist þess að læknirinn hafi gert svokallað „puttapróf“ á honum; haldið tveimur fingrum á lofti og Valdimar stóðst það próf. Hann minnist þess líka að hafa séð klukku á veggnum án þess að muna nákvæmlega hve- nær það var. „En eftir það sá ég ekki neitt.“ Valdimar kveðst hafa verið rólegur yfir þessu til að byrja með enda að jafna sig eftir stórt inngrip; sjónin hlyti að „kikka inn“ á hverri stundu. „En sjónin lét ekki sjá sig. Dag- arnir liðu án þess að neitt gerðist. Ég man ekki hvað læknirinn sagði við mig á þessum tíma en fljótlega gerði ég mér grein fyrir stöðunni – að sjónin kæmi ekki aftur. Það var mér auðvitað þungbært og allskonar hugsanir bærðust með mér. Ég var lærður ljósmyndari með ung börn og gat ekki orðið blindur. Mín fyrstu viðbrögð voru að leggjast í þunglyndi, harma minn hlut, en fljótlega tók ég ákvörðun um að fara hina leiðina; takast á við þetta með húmornum og jákvæðninni. Það hlyti að gefast betur.“ Valdimar hefur ekki fengið fullnægjandi skýringu á því hvers vegna hann tapaði sjón- inni en fyrir liggur að æxlið þrýsti á augnbotn- ana. „Mér skilst að ekkert bendi til mistaka af neinu tagi í aðgerðinni. Ég veit ekki hvað gerð- ist og er löngu hættur að velta því fyrir mér. Þetta er búið og gert og lífið heldur áfram.“ Þurfti að læra að ganga á ný Þegar Valdimar hafði heilsu til var hann flutt- ur yfir á Grensás í endurhæfingu en fékk bakt- eríusýkingu þar og þurfti að leggjast aftur inn á spítala. Sýkingin reyndist vera kringum heil- ann og var Valdimar settur á tvennskonar sýklalyf; stífan kúr beint í æð í átta vikur. Hann fékk raunar ofnæmi fyrir öðru lyfinu og skipta þurfti um. Í varúðarskyni var hann á sýklalyfjum í samtals heilt ár. Endurhæfingin á Grensási hófst þegar Valdimar var orðinn nægilega góður af sýking- unni. Hann kveðst hafa verið á algjörum núll- punkti. „Ég var eins og sprungin blaðra eftir aðgerðina; það var margra mánaða ferli að koma líkamanum af stað aftur. Ég þurfti meira að segja að læra að ganga upp á nýtt.“ Hann er óendanlega þakklátur fyrir hjálp- ina sem hann fékk á Grensási og nefnir Grétar Halldórsson, sjúkraþjálfara frá Selfossi, sér- staklega í því sambandi. „Hann kom mér aftur á fætur.“ Eftir um þrjá mánuði á Grensási var Valdi- mar útskrifaður og flutti þá aftur inn til móður sinnar. Þar dvaldist hann uns hann fékk íbúð í Sjálfsbjargarhúsinu í Hátúni í janúar 2016. „Til að byrja með var ég á annarri hæð í stúd- íóíbúð en flutti hingað upp á þriðju hæðina í stærri íbúð í janúar á þessu ári. Ungur maður á uppleið,“ segir hann hlæjandi. Ég sé fólkið ekki lengur Fyrir lá að líf Valdimars yrði aldrei eins og áð- ur og strax í endurhæfingunni fór hann að velta fyrir sér hvaða stefnu hann gæti tekið. „Frá því að ég var unglingur hafði mig langað til að vera með uppistand. Steinar Krist- jánsson vinur minn tók þátt í uppistands- keppni meðan við vorum í Verzló og ég fann að það var eitthvað sem ég gæti hugsað mér. Lét þó aldrei slag standa; í fyrsta lagi þorði ég ekki að standa fyrir framan allt þetta fólk og í ann- an stað fannst mér ég ekki vera með nægilega Maður sér ekki vel nema með hjartanu Valdimar Sverrisson ljósmyndari greindist með góðkynja heilaæxli árið 2015 og tapaði sjóninni eftir að hann gekkst undir aðgerð, þar sem æxlið var fjarlægt. Í stað þess að harma sinn hlut hefur Valdimar tekist á við sitt nýja líf með jákvæðni og ekki síst húmor að vopni. Og er farinn að gera ýmislegt sem hann aldrei þorði áður, svo sem að vera með uppistand og syngja opinberlega við prýðilegan orðstír. „Ég sé ekki fólkið lengur og þarf fyrir vikið ekki að hafa áhyggjur,“ segir hann. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.