Fréttablaðið - 16.03.2019, Page 2

Fréttablaðið - 16.03.2019, Page 2
Prótínríkt og gott hvenær sem er! Á annað þúsund gengu fylktu liði til að bjarga jörðinni Mótmælin fóru fram í gær í meira en tvö þúsund borgum og bæjum í meira en hundrað löndum. Forsprakki skólaverkfallsins, hin sænska Greta Thunberg, var á fimmtudaginn tilnefnd til friðarverðlauna Nóbels. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR STJÓRNMÁL Ríkissjóður fékk reikn- ing upp á tæpar 1,7 milljónir króna eftir að forsætisráðherra bauð 35 erlendum gestum Hringborðs norður slóða í kvöldverð í Hellis- heiðarvirkjun í lok október. Sigurð- ur Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, var gest- gjafi í kvöldverðinum í fjarveru Katrínar Jakobsdóttur forsætisráð- herra, en Ólafur Ragnar Grímsson, formaður Hringborðs norðurslóða, kom einnig að skipulagningu. Hringborð norðurslóða 2018, eða Arctic Circle, fór fram í lok október en reikningur fyrir hinni veglegu veislu barst ekki forsætisráðuneyt- inu fyrr en í síðasta mánuði. Var hann birtur á vefnum Opnir reikn- ingar sem ætlað er að auka gagnsæi í opinberum innkaupum. Reikning- urinn er frá Orku náttúrunnar (ON) fyrir risnukostnaði og hljóðar upp á alls 1.684.445 krónur. Frét t ablaðið k a l laði eftir frekari upplýsingum um tilefni þessarar greiðslu hjá Ágústi Geir Ágústssyni, skrifstofustjóra r áðu ney t isins . Hann  upplýsti að reikningur- inn sé vegna k v ö l d v e r ð a r fyrir 35 erlenda gesti frá mörg- um þjóðlöndum í tengslum við Hring- borðið. Fréttablaðið óskaði einnig eftir afriti af reikningnum frá ON þar sem fram kemur að hann hljóð- aði upp á tæpar 1,8 milljónir. Ráðuneytið gerði hins vegar athugasemd við upphæðina samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins og fékk tæpar 270 þúsund krónur í afslátt. Með VSK endaði reikningurinn í tæpum 1,7 milljónum. „Valið var að stað- setja kvöldverðinn við Hellisheiðarvirkjun til þess að kynna hana og kolefnisbindingarverk- efni ON samhliða fyrir hinum erlendu gestum.“ Kostnaðurinn helgast meðal annars af því að veislan fór fram í sýn- ingar sal virkjunarinnar sem hvorki er innréttaður fyrir veislur né með aðgang að eldhúsi. „Þurfti því að innrétta salinn af þessu tilefni og setja upp eldunar- aðstöðu,“ segir í svari ráðuneytisins. Miðað við upphæð reikningsins og gestafjölda nam kostnaður við hvern gest því nærri 50 þúsund krónum. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem gestum ráðstefnunnar er boðið út að borða á kostnað ríkissjóðs. Frétta- blaðið fjallaði um það í desember 2017 þegar Þorgerður Katrín Gunn- arsdóttir, þáverandi sjávar útvegs- og landbúnaðarráðherra, bauð 13 manna sendinefnd frá Kyrrahafs- eyjum, auk innlendra gesta í þriggja rétta máltíð í Bláa lóninu. Reikning- urinn þá nam 400 þúsund krónum. mikael@frettabladid.is Boð ráðherra kostaði hátt í tvær milljónir 35 ráðstefnugestum Arctic Circle var boðið í kvöldverð í Hellisheiðarvirkjun í október síðastliðnum. Ríkissjóður borgaði brúsann og fékk reikning frá ON upp á 1,7 milljónir. Reyndist dýrt að breyta virkjun í veislusal með eldhúsi. Hópur gesta frá Arctic Circle 2018 sótti veglega veislu við Hellisheiðarvirkjun í október í boði forsætisráðherra. Ólafur Ragnar Grímsson. FÉLAGSMÁL Kosningu til stjórnar VR lauk í gær en kosið var um sjö af f immtán sætum í stjórninni til tveggja ára. Alls greiddu 2.806 félagsmenn atkvæði en á kjörskrá voru 35.614. Var kosningaþátttaka því 7,9 prósent. Þau sem náðu kjöri eru Svan- hildur Ólöf Þórsteinsdóttir, Ólafur Reimar Gunnarsson, Selma Árna- dóttir, Sigurður Sigfússon, Harpa Sævarsdóttir, Björn Kristjánsson og Helga Ingólfsdóttir. Þá voru þau Þorvarður Berg- mann Kjartansson, Anna Þóra Ísfold og Sigmundur Halldórsson kjörin varamenn í stjórn. Eins og áður hafði komið fram verður Ragnar Þór Ingólfsson áfram formaður félagsins til næstu tveggja ára þar sem ekkert mót- framboð barst. – sar Sjö kjörin í stjórn VR Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI SAMFÉLAG Auglýsingar fyrir leikritið Súper hafa orðið til þess að starfs- menn verslunarinnar Super 1 hafa ítrekað þurft að svara spurningum frá viðskiptavinum um hluti á borð við „ferska kjúklingastrumpa“ og „hægsvæfða spenagrísi á teini“. „Þetta var fyndið fyrsta daginn, þegar fólk var að spyrja um lundir af nýsvæfðum grísum. Síðan þegar fólk er að spyrja starfsfólkið aftur og aftur, og líka hringja, þá er þetta orðið dálítið þreytt,“ segir Sigurður Pálmi Sigurbjörnsson, eigandi Super 1, í samtali við Fréttablaðið. „Þetta eru líka ansi skuggalegar lýsingar á slátrunaraðferðum sem ég vil ekki tengja við mína verslun.“ Leikritið Súper, sem er gamanleikrit eftir Jón Gnarr í leik- stjórn Benedikts Erl- ingssonar, verður frumsýnt í kvöld. Það fjallar um fólk sem hittist í stór- markaðnum Súper og á í einlægum samræðum. Sigurður Pálmi segir að sér hafi brugðið í brún er hann sá aug- lýsingar fyrir leikritið stuttu eftir að hann opnaði sína verslun fyrir rúmum mánuði. Hann hefur rætt við fulltrúa markaðsdeildar Þjóðleikhússins sem hafi tekið erindi hans fálega. „Þessi framsetning er villandi, þetta eru auglýsingar eins og fyrir búð. Mér finnst ótrúlegt að þeir hafi ekki hugsað þetta áður en þeir vaða í svona markaðssetningu. Það má alla vega taka fram að þetta sé leikrit.“ Ekki náðist í mark- aðsdeild Þjóðleik- hússins við vinnslu fréttarinnar. – ab Starfsfólkið spurt um ferska kjúklingastrumpa Sigurður Pálmi í Super 1 Fleiri ljósmyndir er að finna á +Plússíðu Frétta- blaðsins. Fréttablaðið +Plús er í Fréttablaðs-app- inu og PDF-útgáfu á Fréttablaðið.is.+PLÚS 1 6 . M A R S 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 6 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :2 5 F B 1 2 8 s _ P 1 2 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 1 1 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 9 2 -7 C F 0 2 2 9 2 -7 B B 4 2 2 9 2 -7 A 7 8 2 2 9 2 -7 9 3 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 1 2 8 s _ 1 5 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.