Fréttablaðið - 16.03.2019, Page 6
Við þurftum að fá
leyfi frá foreldri,
bara eins og veikindaleyfi.
Við hringdum bara í mömm-
ur okkar, skólinn var
eitthvað á móti því að við
færum.
Nemendur í Valhúsaskóla
Miðstöð íslenskra
bókmennta
auglýsir eftir
umsóknum um
Nýræktarstyrki
Nýræktarstyrkir eru veittir árlega til að styðja
við útgáfu á skáldverkum höfunda sem eru
að stíga sín fyrstu skref á ritvellinum og hvetja
þá til frekari dáða á þeirri braut. Átt er við
skáldverk í víðri merkingu orðsins.
Umsóknarfrestur er til
15. apríl 2019
Umsóknareyðublöð og
nánari upplýsingar á
www.islit.is
Samkvæmt 33. gr. laga Félags tæknifólks í
rafiðnað, skal auglýsa frest til framboðs.
Framboðsfrestur skal vera minnst
14 sólarhringar og skal tillögum skilað til
kjörstjórnar innan þess tíma.
Með hliðsjón af framansögðu hefur
framboðsfrestur verið ákveðinn til
kl. 12 á hádegi 27. mars 2019
Reykjavík 12. mars 2019
Stjórn Félags tæknifólks í rafiðnað
Framboð í trúnaðarstöður
FTR
Símaveski,
heyrnartól, snúrur
og allt fyrir
símann.
Símaveski.is, S. 517 0150 – 2. hæð Smáralind
UMHVERFISMÁL Á annað þúsund
ungmenni mótmæltu aðgerðar-
leysi stjórnvalda í loftslagsmálum.
Mótmælin hófust á hádegi þar sem
ungmennin söfnuðust saman fyrir
framan Hallgrímskirkju og gengu
niður á Austurvöll.
Mótmælin eru hluti af skólaverk-
falli sem fór fram í gær í meira en tvö
þúsund borgum og bæjum í meira
en hundrað löndum. Forsprakki
skólaverkfallsins, hin sænska Greta
Thunberg, var á fimmtudaginn til-
nefnd til friðarverðlauna Nóbels.
Ungir mótmælendur sem Frétta-
blaðið ræddi við voru allir á sama
máli um að nauðsynlegt væri að
grípa til tafarlausra aðgerða í lofts-
lagsmálum. „Við erum komnir til
að mótmæla, ætlum að gera betri
framtíð fyrir okkur. Við fengum
fría eyðu, við fáum síðan að fara
heim. Við fréttum bara af þessu í
dag frá öðrum nemendum,“ segir
Reynir Snær Skarphéðinsson, sem
tók strætó úr Hafnarfirði ásamt
félögum sínum til að mæta á mót-
mælin. „Ég frétti nú bara af þessu á
Instagram áðan,“ bætti félagi hans
við.
Skólarnir í Reykjavík virðast
ekki hafa verið með samantekin
ráð um viðburðinn. Í bréfi skóla-
stjóra Vestur bæjarskóla til for-
eldra kom f ram að mótmæli
undanfarnar vikur hefðu valdið
óróa innan skólans og ekki yrði
hringt í foreldra til að fá leyfi fyrir
þau börn sem vildu taka þátt. For-
eldrar þyrftu að óska eftir leyfi
með góðum fyrirvara fyrir þau
börn sem vildu taka þátt.
Í bréfi sem skólastjóri Melaskóla
sendi á foreldra klukkutíma fyrir
mótmælin í gær sagði hann að á
sama tíma og jákvætt væri að börn-
in vildu beita sér fyrir aðgerðum til
verndar náttúrunni þá mættu þau
ekki skrópa. Í bréfinu lýsir hann
áhyggjum af því að börn fari úr
þeirra umsjón og eftirlitslaus niður
í miðbæ en starfsmenn skólans
muni ekki fylgja þeim.
Fréttablaðið sendi fyrirspurnir í
á annan tug grunnskóla og skóla- og
frístundasvið vegna mótmælanna
en fá svör bárust. Kristín Jóhannes-
dóttir, skólastjóri Austurbæjar-
skóla, segir að einhverjir nemendur
sínir hafi farið, þeir hafi undirbúið
sig í félagsmiðstöðinni fyrr í vik-
unni. Þeir hafi hvorki verið hvattir
til að mótmæla né lattir.
Elísabet Brynjarsdóttir, formaður
Stúdentaráðs og einn skipuleggj-
enda mótmælanna, sagði að hún
hefði ekkert heyrt frá skólunum.
„Ég hef ekki heyrt múkk frá þeim.
Það hafa engar kvartanir borist. Ég
held að þetta sé hluti af skólastarfi
að fræða börn um loftslagsmál.“
Það var nokkur munur á svörum
mótmælenda eftir því úr hvaða
skólum þeir komu. „Við þurftum
að fá leyfi frá foreldri, bara eins og
veikindaleyfi. Við hringdum bara
í mömmur okkar, skólinn var eitt-
hvað á móti því að við færum, þau
sögðu að við fengjum fjarvist ef við
færum án leyfis,“ sögðu piltar úr
Valhúsaskóla við blaðamann. Einn
þeirra skaut inn: „Við búum á Nes-
inu, þannig að þetta er allt svolítið
hægrisinnað.“ arib@frettabladid.is
Ungir mótmælendur
hvorki hvattir né lattir
Á annað þúsund ungmenni skrópuðu í skólanum í gær til að mótmæla aðgerð-
arleysi stjórnvalda í loftslagsmálum. Þurftu flest leyfi frá foreldrum til að mæta.
Skólastjóri segir nemendur hvorki hafa verið hvatta né latta til þátttöku.
Ungmenni fjölmenntu í bæinn og skrópuðu í skólanum til að krefjast aðgerða í loftslagsmálum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
SVEITARFÉLÖG „Ef þetta verður að
veruleika þá erum við að tala um
skerðingu á tekjum sveitarfélaga
um alls 3,4 milljarða á næstu tveim-
ur árum. Við erum ekki tilbúin að
kyngja þessu því sveitarfélögin
sinna náttúrulega mikilvægri nær-
þjónustu og þurfa til þess tekjur,“
segir Aldís Hafsteinsdóttir for-
maður Sambands íslenskra sveitar-
félaga (SÍS) um áformaða skerðingu
á framlögum ríkisins í Jöfnunarsjóð
sveitarfélaga.
Umræddur niðurskurður er meðal
tillagna sem er að finna í drögum
að ríkisfjármálaáætlun 2020-2024.
Hlutverk Jöfnunarsjóðs er að veita
sveitarfélögum fjárframlög til að
jafna mismunandi útgjaldaþörf og
skatttekjur sveitarfélaga.
Stjórn SÍS samþykkti á fundi
sínum í gær harðorða bókun þar
sem niðurskurðinum er mótmælt.
Þar segir meðal annars að aðgerðin
sé árás á sjálfsákvörðunarrétt og
fjárhagslegt sjálfstæði sveitarfélaga.
Þá gætu fyrirætlanirnar haft áhrif á
samskipti ríkis og sveitarfélaga .
Aldís segir að stjórnin hafi velt
því fyrir sér að stíga mjög afdrifarík
skref en ákveðið að fara í viðræður
við ríkisvaldið. Skili þær viðræður
ekki árangri verði gripið til róttækra
aðgerða.
„Ríkið er að reyna að loka gatinu
því það er með markmið um að skila
28 milljarða hagnaði á ári. Til þess að
gera það er þetta ein af þeim aðgerð-
um sem lagt er til að ráðist verði í. Það
er mjög sérkennilegt að ætla að bæta
hag ríkissjóðs með því að rýra hag
sveitarfélaganna. Við vonumst til að
ná lendingu í þessu því ríki og sveit-
arfélög eru saman með hagstjórnina
í landinu og þessir tveir aðilar verða
að dansa í takt.“ segir Aldís.
Hún gagnrýnir einnig aðferða-
fræðina. „Við erum í umfangsmikl-
um samskiptum sérstaklega varð-
andi fjármálin og það er undarlegt
að þetta skuli ekki hafa verið tekið
til alvarlegrar umræðu þar í staðinn
fyrir að boða okkur á fund í vikunni
og í rauninni tilkynna okkur að
þetta væri orðinn hlutur.“ – sar
Vilja ekki kyngja skerðingu framlags
Það er mjög sér-
kennilegt að ætla að
bæta hag ríkissjóðs með því
að rýra hag sveitarfélag-
anna.
Aldís Hafsteins-
dóttir, formaður
Sambands ís-
lenskra sveitar-
félaga
1 6 . M A R S 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
6
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:2
5
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
9
2
-A
4
7
0
2
2
9
2
-A
3
3
4
2
2
9
2
-A
1
F
8
2
2
9
2
-A
0
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
2
8
s
_
1
5
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K