Fréttablaðið - 16.03.2019, Blaðsíða 8
Úrslitin réðust með
síðustu spurningunni.
Á fundinum ræddu
ráðherrarnir meðal annars
öryggis- og varnarmál,
málefni norðurslóða og
alþjóðlegt viðskiptaum-
hverfi.
Sigríður á rétt á fullum
launum ráðherra sem einnig
situr á þingi upp á rúmar 1,8
milljónir króna á mánuði.
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | SÍMI 510 1700 | VR.IS
Aðalfundur VR
Aðalfundur VR verður haldinn miðvikudaginn 27. mars
kl. 19:30 á Hilton Reykjavík Nordica.
Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf, laga breytingar og
ákvörðun um innborgun í VR varasjóð.
Dagskrá og frekari upplýsingar er að finna á vr.is.
Við hvetjum félagsmenn til að mæta.
SKÓL AMÁL Álma í Breiðholts-
skóla verður að fullu rýmd í dag
og á morgun eftir að mygla fannst
í veggjum skólans. Um er að ræða
átta kennslustofur sem verða
endurnýjaðar að fullu innandyra,
búist er við því að framkvæmdum
ljúki næsta haust. Búið var að rýma
fimm kennslustofur, síðustu þrjár
verða rýmdar yfir helgina.
Ekki náðist í Ástu Bjarneyju
Elíasdóttur skólastjóra þrátt fyrir
ítrekaðar tilraunir. Jóna Björg
Sætran aðstoðarskólastjóri vildi
ekki ræða málið þegar eftir því var
leitað. „No comment. Ég ætla ekki
að ræða þetta mál við fréttamenn,“
sagði Jóna Björg. Ekki náðist heldur
í fulltrúa skóla- og frístundasviðs
Reykjavíkurborgar.
Fram kemur í minnisblaði Mann-
vits frá því í byrjun febrúar að engar
sýnilegar rakaskemmdir hafi fund-
ist við frumskoðun en sýni voru
tekin vegna kvartana starfsfólks
um slappleika. Sýnin voru send
á Náttúrufræðistofnun Íslands, í
þremur af fjórum kennslustofum
þar sem tekin voru sýni fundust vís-
bendingar um ástand sem ástæða
var til að bregðast við. Í sýni sem
tekið var úr útvegg einnar kennslu-
stofunni var ástandið alvarlegra.
Í sýninu fundust gró myglusvepps
ásamt smádýraskít. Um er að ræða
svepp sem getur valdið ofnæmi,
astma og útbrotum. Í minnisblað-
inu er lagt til að byrjað verði á að
opna útveggi í kennslustofum til
að kanna ástandið strax.
Ljóst er að mikið þarf að endur-
nýja, þar á meðal er útveggjaklæðn-
ing, ofnakerfi, rafmagnslagnir,
loftaklæðning, gólfdúkar og þétt-
ing glugga.
arib@frettabladid.is
Álmu í Breiðholtsskóla
lokað vegna myglu
Átta stofum í Breiðholtsskóla verður lokað fram á næsta haust eftir að mygla
fannst í útvegg. Aðstoðarskólastjóri neitar að ræða málið og ekki náðist í full-
trúa skóla- og frístundasviðs borgarinnar. Ljóst að mikið þarf að endurnýja.
Sýni voru tekin í Breiðholtsskóla vegna kvartana starfsfólks um slappleika. Mygla var í útvegg. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
KJARAMÁL Sigríður Á. Andersen,
fyrrverandi dómsmálaráðherra, fær
biðlaun sem ráðherra í allt að hálft
ár eftir að hún sagði af sér á mið-
vikudag. Það þýðir að hún á rétt á
fullum launum ráðherra sem einnig
situr á þingi upp á rúmar 1,8 millj-
ónir krónur á mánuði.
Samkvæmt lögum um þingfarar-
kaup alþingismanna og þingfarar-
kostnað á ráðherra sem setið hefur
samfellt í ár eða meira rétt á bið-
launum í sex mánuði. Ríkisstjórn
Vinstri grænna, Sjálfstæðisf lokks
og Framsóknar fagnaði eins árs
afmæli sínu í lok nóvember síðast-
liðins.
Sigríður mun sitja áfram sem
þingmaður og mun því fá þingfar-
arkaup áfram sem nemur rúmum
1.100 þúsund krónum á mánuði.
Ráðherralaun eru samsett úr þing-
fararkaupi og svo ráðherrahlut upp
á rúmar 725 þúsund krónur sem Sig-
ríður í þessu tilfelli á rétt á í hálft ár
til viðbótar. – smj
Sigríður fær ráðherralaun
í hálft ár eftir afsögn
Sigríður Á. Andersen, fyrrverandi dómsmálaráðherra. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Jóna Björg
Sætran, að-
stoðarskólastjóri
Breiðholtsskóla
SAMFÉLAG Kvennskælingar tóku
hljóðnemann heim þetta árið eftir
æsispennandi úrslitaviðureign gegn
MR í gærkvöldi. Úrslitin réðust með
síðustu spurningunni.
MR-ingar voru einu stigi yfir með
sex stig eftir í pottinum, eftir að
hafa svarað næstsíðustu vísbend-
ingaspurningunni á síðustu vís-
bendingu. Kvennó lét þó ekki hug-
fallast og fékk tvö stig fyrir síðustu
vísbendingaspurninguna.
MR hafði því lokatækifæri til að
vinna keppnina í þríþrautinni, en í
henni var spurt um heiti á þremur
íslenskum jöklum og hver þeirra
hopi hraðast af völdum loftslags-
breytinga. Svarið var ekki rétt og
því úrslitin ljós.
Í liði Kvennaskólans voru Fjóla
Ósk Guðmannsdóttir, Hlynur
Ólason og Berglind Bjarnadóttir
og lið MR var skipað Sigrúnu Völu
Árnadóttur, Hlyni Blæ Sigurðs-
syni og Ármanni Leifssyni. Spyrill
keppninnar var Kristjana Arnars-
dóttir, spurningahöfundar og dóm-
arar voru Ingileif Friðriksdóttir, Vil-
helm Anton Jónsson og Sævar Helgi
Bragason. – jmt
Kvennó sigraði MR á
úrslitakvöldi Gettu betur
Í liði Kvennó voru Fjóla Ósk, Hlynur og Berglind. RÚV/SKJÁSKOT
UTANRÍKISM ÁL Guðlaugur Þór
Þórðarson utanríkisráðherra átti í
gær fund með Heiko Maas, utanrík-
isráðherra Þýskalands. Á fundinum
sem haldinn var í Berlín ræddu ráð-
herrarnir meðal annars öryggis- og
varnarmál, málefni norðurslóða og
alþjóðlegt viðskiptaumhverfi.
Í tilkynningu frá utanríkisráðu-
neytinu var haft eftir Guðlaugi Þór
að Ísland mæti ávallt hlýhug og
áhuga í Þýskalandi og mikilvægt sé
að rækta tengsl þessara vinaþjóða.
Þjóðirnar deili sömu gildum og sýn
á alþjóðavettvangi.
„Tvíhliða samskipti Íslands og
Þýskalands standa jafnframt í
miklum blóma, meðal annars á
sviðum viðskipta, fjárfestinga og
ferðamennsku, en einnig í menn-
ingarmálum og íþróttastarfi. Það
er margt og bjart fram undan í sam-
skiptum ríkjanna,“ segir Guðlaugur
Þór. – sar
Ræddu samskipti Íslands
og Þýskalands
1 6 . M A R S 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
6
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:2
5
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
9
2
-B
8
3
0
2
2
9
2
-B
6
F
4
2
2
9
2
-B
5
B
8
2
2
9
2
-B
4
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
2
8
s
_
1
5
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K