Fréttablaðið - 16.03.2019, Blaðsíða 10
Það er álit SA að
Efling hafi verið að
reyna á þanþol vinnulög-
gjafarinnar, en þessari
túlkun Eflingar hafnar
dómurinn einróma.
Halldór Benjamín Þorbergsson,
framkvæmdastjóri SA
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
2
1
4
2
H
y
u
n
d
a
i
IO
N
IQ
P
H
E
V
5
x
2
0
f
e
b
IONIQ Plug-in Hybrid sameinar það besta úr báðum heimum.
Þú getur ekið allt að 63 km á rafmagni án nokkurs útblásturs eða sett
á Hybrid-stillingu fyrir bensín og rafmagn og farið hvert á land sem er.
Hyundai IONIQ PHEV. Verð frá: 4.390.000 kr.
Drifinn af spennu.
Plug-in Hybrid
Það besta úr báðum heimum.
Hyundai býður viðskiptavinum sínum upp á eina víðtækustu ábyrgð sem völ er á.
Öllum Hyundai bílum fylgir 5 ára verksmiðjuábyrgð og ótakmarkaður akstur. Að auki
fylgir öllum Hyundai rafbílum 8 ára eða 200.000 km ábyrgð á aðal rafhlöðu bílsins.
Hyundai | Kauptúni 1 | Sími 575 1200 | www.hyundai.is
OPIÐ Í DAG FRÁ 12–16
KJARAMÁL Félagsdómur úrskurðaði
í gær að fyrirhuguð örverkföll eða
vinnutruflanir meðal félagsmanna
Eflingar sem hefjast áttu á mánudag
væru ólögmæt. Meðal annars stóð
til að starfsmenn hættu að þrífa kló-
sett á hótelum og að hópbifreiða-
stjórar hættu að rukka í strætó.
Halldór Benjamín Þorbergs-
son, framkvæmdastjóri Samtaka
atvinnulífsins, fagnar niðurstöðu
dómsins fyrir hönd fyrirtækja og
samfélagsins í heild.
„Dómsuppsagan var rétt um
þremur klukkustundum eftir að
málflutningi lauk og dómurinn er
einróma um að örverkföll Eflingar
séu dæmd ólögmæt,“ segir Halldór.
„Það er álit SA að Efling hafi verið
að reyna á þanþol vinnulöggjafar-
innar, en þessari túlkun Ef lingar
hafnar dómurinn einróma.“
Aðspurður segir Halldór að SA
geri ekki athugasemd við önnur
fyrirhuguð og öllu hefðbundnari
verkföll Eflingar sem munu hefjast
á föstudaginn næstkomandi. Hann
segir að enn sem áður sé verkefnið
að ná kjarasamningum áður en
verkföllin hefjast.
Sólveig Anna Jónsdóttir, formað-
ur Eflingar, og Viðar Þorsteinsson,
framkvæmdastjóri félagsins, lýsa
bæði yfir vonbrigðum með niður-
stöðuna í yfirlýsingu.
Haft er eftir Viðari að það sé
miður að félagsmenn fái ekki að
nýta verkfallsréttinn til fulls. Efling
muni að sjálfsögðu hlíta dómnum
og læra af honum. Þá er haft eftir
Sólveigu Önnu að þau séu hvergi af
baki dottin og haldi ótrauð áfram
með þau hefðbundnu verkföll sem
boðuð hafa verið.
Samninganefnd Starfsgreinasam-
bandsins (SGS) samþykkti á fundi
í gær að komi ekki fram nýjar hug-
myndir eða viðbrögð frá SA á næstu
dögum hafi viðræðunefnd SGS fulla
heimild til að slíta viðræðum.
„Þetta er búið að vera gríðarlega
góð vinna en svona er þetta stund-
um, það gengur ekki allt upp. Við
erum kannski í þeirri stöðu núna.
Auðvitað eru þetta mikil vonbrigði
fyrir okkur að þetta takist ekki því
þetta er komið mjög langt. Það má
segja að það vanti meira, sérstak-
lega í þessi vinnutímamál sem við
höfum verið að ræða,“ segir Björn
Snæbjörnsson, formaður SGS.
Umræður um launaliðinn hafi
hins vegar þokast en Björn leggur
áherslu á að þetta sé einn heildar-
pakki og engu verði lokað fyrr en
allt sé búið.
Varðandi framhaldið segir Björn
að nú sé komið að ákveðnum tíma-
mótum en á föstudaginn í síðustu
viku sagði í tilkynningu að þolin-
mæði SGS í þessum kjaraviðræðum
væri ekki endalaus.
„Ég reikna með að við gefum
þessu helgina. Ef ekkert gerist um
helgina þá munum við óska eftir
fundi hjá ríkissáttasemjara á mánu-
daginn.“
Síðdegis í gær boðaði svo ríkis-
sáttasemjari SGS og SA til fundar á
mánudaginn klukkan 11.
sighvatur@frettabladid.is
Örverkföll Eflingar dæmd ólögmæt
Félagsdómur komst að þeirri niðurstöðu í gær að fyrirhuguð örverkföll Eflingar stæðust ekki lög. Framkvæmdastjóri SA fagnar
niðurstöðunni en vonbrigði eru með niðurstöðuna hjá Eflingu. Framhaldið í viðræðum SGS og SA gæti ráðist um helgina.
Ekkert verður af fyrirhuguðum örverkföllum Eflingar sem hefjast áttu næsta mánudag. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
1 6 . M A R S 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
6
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:2
5
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
9
2
-B
3
4
0
2
2
9
2
-B
2
0
4
2
2
9
2
-B
0
C
8
2
2
9
2
-A
F
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
2
8
s
_
1
5
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K