Fréttablaðið - 16.03.2019, Qupperneq 16
um málið. Leiðtogarnir fordæma
árásina og hugmyndafræðina á
afdráttarlausan hátt.
„Ég fordæmi hina of beldis
fullu, öfgafullu hryðjuverkaárás
sem heimti líf svo margra sak
lausra Nýsjálendinga er þeir voru
við bænahald í moskum sínum í
Christchurch í dag,“ sagði Scott
Morrison, forsætisráðherra Ástr
alíu.
Donald Trump, forseti Bandaríkj
anna, sagðist votta fórnarlömbum
og Nýsjálendingum öllum samúð
sína eftir árásina.
Theresa May, breski forsætisráð
herrann, vottaði Nýsjálendingum
samúð fyrir hönd Breta og sagði
árásina hrylling.
Elísabet önnur Bretlandsdrottn
ing gaf út yfirlýsingu þar sem hún
sagði tíðindin sorgleg. „Við Filippus
prins vottum fjölskyldum og vinum
hinna látnu samúð okkar. Ég vil
sömuleiðis votta neyðarþjónustu
starfsfólki og sjálf boðaliðum sem
aðstoða hina særðu virðingu mína.“
thorgnyr@frettabladid.is
NÝJA-SJÁLAND Heimsbyggðin er í
sárum eftir að 49 hið minnsta voru
myrt og 48 særðust í hryðjuverka
árás á múslima í borginni Christ
church á NýjaSjálandi í gær. Ráðist
var á tvær moskur í borginni, Al
Noormoskuna og Linwoodmosk
una, og var árásarmaður í beinni
útsendingu á Facebook á meðan
hann réðst á þá fyrrnefndu. Þar lét
hann falla hatursfull ummæli um
múslima.
Lögregla hefur handtekið karl
mann á þrítugsaldri vegna málsins
og hefur hann verið ákærður fyrir
morð. Aukinheldur voru tveir karl
ar og ein kona handtekin. Einum
aðilanum var sleppt úr haldi. Þótt
nafn einskis þeirra hafi verið gert
opinbert kvaðst hinn meinti árásar
maður í beinu útsendingunni heita
Brenton Tarrant og vera ástralskur.
Lögregla fór fram á við almenning
að deila myndefninu ekki og síðum
Tarrants á samfélagsmiðlum hefur
verið eytt.
Samkvæmt lýsingum erlendra
fjölmiðla gekk árásarmaðurinn
inn í AlNoor klukkan 13.40 að
staðartíma. Hafði þá verið í beinni
útsendingu í nokkrar mínútur.
Um 400 voru inni í moskunni við
bænahald. Árásarmaðurinn f lúði
vettvang og fór austur að Linwood
moskunni. Þaðan flúði hann sömu
leiðis áður en hann var handtekinn
skömmu síðar.
New Zealand Herald hafði eftir
Nour Tavis, sem kveðst hafa verið
á fremsta bekk í AlNoor þegar
árásin hófst, að hann hafi ekki strax
áttað sig á því hvaðan hinn skyndi
legi hávaði var að koma. „Síðan
heyrðum við öskrin … og örvænting
braust út á meðal okkar allra. Það
heyrðust skothvellir og skothvellir
og skothvellir … fólk reyndi að forða
sér og maður sá það allt í einu falla
til jarðar,“ sagði Tavis.
Maðurinn sem sagðist heita Brent
on Tarrant birti í gær 74 blaðsíðna
stefnuyfirlýsingu sem hann titlaði
„Af leysingarnar miklu“ þar sem
hann hélt því fram að verið væri að
fremja þjóðarmorð á hvítu fólki og
lýsti sjálfum sér sem þjóðernissinna
og fasista. Hann sagðist sjálfur líta á
árásina sem hryðjuverk, kvaðst inn
blásinn af Anders Breivik.
Jacinda Ardern, forsætisráðherra
NýjaSjálands, sagði gærdaginn
einn þann svartasta í sögu NýjaSjá
lands. „Það er skýrt að það er ekki
hægt að kalla þetta neitt annað en
hryðjuverkaárás. Hún virðist hafa
verið þaulskipulögð. Tvær sprengj
ur, festar við bíl grunaðra, hafa
fundist og þær gerðar óvirkar,“ sagði
Ardern og bætti við:
„Við erum stolt þjóð rúmlega
200 þjóðerna og 160 tungumála.
Auk þessarar fjölbreytni deilum
við sameiginlegum gildum. Það
gildi sem við einbeitum okkur að
nú er samúð og stuðningur við það
samfélag sem þessi árás hafði bein
áhrif á. Við fordæmum alfarið hug
myndafræði árásarmanna.“
„Við erum harmi slegin yfir þessu
voðaverki. NýjaSjáland er náið
samstarfsríki og íslensk stjórn
völd hafa vottað Nýsjálendingum
samúð. Eftirgrennslan borgara
þjónustunnar, lögreglunnar og
ræðismanns Íslands, sem hefur haft
samband við Íslendinga í borginni
og nýsjálensk stjórnvöld, hefur
leitt í ljós að engir Íslendingar eru
meðal látinna. Stjórnvöld hér á
landi munu áfram standa vörð um
okkar sameiginlegu gildi og vinna
gegn hvers konar öfgahyggju sem
virðist undirrót hryðjuverkanna á
NýjaSjálandi,“ sagði Guðlaugur Þór
Þórðarson utanríkisráðherra í svari
við fyrirspurn Fréttablaðsins.
Þjóðhöfðingjar um allan heim
hafa vottað fórnarlömbum virð
ingu sína og gefið út yfirlýsingar
Svartur dagur í sögu Nýja-Sjálands
Á fimmta tug voru myrt og álíka mörg særðust í hryðjuverkaárás á tvær moskur í Christchurch á Nýja-Sjálandi. Karlmaður hand-
tekinn og ákærður fyrir morð. Árásarmaður var í beinni útsendingu á Facebook og gaf út hatursfulla stefnuyfirlýsingu.
Nýsjálenska fánanum var flaggað í hálfa stöng við þinghúsið í Wellington sem og víðar. Mikil sorg ríkir á meðal Nýsjálendinga. NORDICPHOTOS/AFP
Lögreglumaður á vettvangi við Al-Noor-moskuna. NORDICPHOTOS/AFPNýsjálenskt samfélag er í sárum eftir voðaverkin. Þessi blóm voru bundin
við grindverk fyrir framan mosku í Wellington. NORDICPHOTOS/AFP
Lögregla gerði rassíu á heimili í Dunedin í gær. NORDICPHOTOS/AFP
Það er skýrt að það
er ekki hægt að
kalla þetta neitt annað en
hryðjuverkaárás.
Jacinda Ardern,
forsætisráðherra
Nýja-Sjálands
1 6 . M A R S 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R16 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
6
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:2
5
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
9
2
-7
8
0
0
2
2
9
2
-7
6
C
4
2
2
9
2
-7
5
8
8
2
2
9
2
-7
4
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
2
8
s
_
1
5
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K