Fréttablaðið - 16.03.2019, Page 18

Fréttablaðið - 16.03.2019, Page 18
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Einar Þór Sverrisson FORSTJÓRI: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir ÚTGEFANDI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is RITSTJÓRAR: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Gunnar Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is Mín skoðun Sif Sigmarsdóttir Afsögn þarf ekki að þýða endalok. Nema sakir séu þeim mun meiri. Sigríður Andersen, vertu vel- komin aftur. AÐALFUNDUR Brú félag stjórnenda heldur aðalfund sinn mánudaginn 18. mars kl. 19:00 í húsnæði ÍSÍ að Engjavegi 6, 104 Reykjavík DAGSKRÁ Venjuleg aðalfundastörf Kynning frá Virk -kulnun í starfi- Kosning hluta stjórnar FÉLAGAR FJÖLMENNUM!! Stjórnin. Þriðjudaginn 26. júní árið 1984 steig Jón Krist-insson upp í Subaru bifreið sína á Akureyri. Klukkan 16.40 stöðvuðu hann tveir lögreglu- menn sem gáfu honum að sök að hafa ekki virt stöðvunarskyldu þar sem hann ók norður Byggðaveg og beygði inn á Þingvallastræti til austurs. Var þetta annað meint umferðarlagabrot Jóns á stuttum tíma. Málin voru tekin fyrir í Sakadómi Akureyrar. Var Jón sakfelldur af báðum ákærum og honum gert að greiða 3.000 króna sekt. „Mig greindi á við lögregluna um stöðvunarskyldu- brotið,“ sagði Jón í samtali við Morgunblaðið. „Ég var alveg viss í minni sök um að ég hefði stöðvað bif- reiðina, en það stóð staðhæfing gegn staðhæfingu.“ Jón áfrýjaði málinu til Hæstaréttar. Á landsbyggðinni fóru sýslumenn og bæjarfógetar með dómsvald auk þess sem þeir sáu um löggæslu. Setti verjandi Jóns, Eiríkur Tómasson, fram þá kröfu að dómurinn yrði ómerktur því sami aðili hefði rannsakað og dæmt í málinu. Hélt Eiríkur því fram að slíkt stæðist hvorki stjórnarskrá né Mannréttindasáttmála Evrópu. Þegar dómur fyrir annað brotið var staðfestur í Hæstarétti leitaði Jón til Mannréttindadómstóls Evrópu sem ákvað að veita honum áheyrn fyrstum Íslendinga. Komst Mannréttindanefnd Evrópuráðsins að þeirri niðurstöðu að málsmeðferð í kjölfar meints umferðar- lagabrots Jóns hafi brotið í bága við 6. grein Mannrétt- indasáttmála Evrópu um réttláta dómsmeðferð fyrir dómstólum og vísaði hún málinu til Mannréttinda- dómstólsins. Málið var þó aldrei rekið fyrir dómnum þar sem sátt náðist milli Jóns og íslenska ríkisins. Í kjölfarið voru sett lög á Alþingi þar sem skilið var með óyggjandi hætti milli dóms- og framkvæmdarvalds. Eða eins og segir á minnisvarða um málið á Akureyri: „Óréttur sem þjóðin hafði búið við heyrði þar með sögunni til.“ Nú, 35 árum eftir að Jón Kristinsson var stöðvaður af lögreglu á Akureyri, hefur umferðarlagabrot á ný bakað okkur Íslendingum vandræði við Mannrétt- indadómstól Evrópu. Í vikunni komst dómstóllinn að þeirri niðurstöðu að íslenska ríkið hefði brotið gegn rétti manns sem ákærður var fyrir umferðarlagabrot til réttlátrar málsmeðferðar þegar dómari sem dóms- málaráðherra hafði skipað með ólögmætum hætti við Landsrétt dæmdi í máli hans. Á ný höfðu íslensk stjórnvöld gerst brotleg við 6. grein Mannréttinda- sáttmálans. Aðskilnaður dómsvalds og umboðsvalds í héraði í kjölfar umferðarlagabrots Jóns Kristinssonar var breyting á meinlegri íslenskri lagahefð. Með dómi sínum í vikunni bendir Mannréttindadómstóll Evr- ópu á lögleysu annarrar meinlegrar íslenskrar hefðar. Lagatúlkurinn Jón Steinar Gunnlaugsson kallaði dóm Mannréttindadómstólsins „árás á fullveldi Íslands“. Jón Steinar hefur á réttu að standa. Dómurinn er árás á fullveldi. En ekki fullveldi Íslands. Dómur Mann- réttindadómstóls Evrópu er árás á fullveldi fárra til að vera fantar; hann er árás á þá gamalgrónu hefð að íslenskir valdhafar fylli opinberar stöður og embætti með vinum, vandamönnum og flokksgæðingum. Íslenskir ráðamenn hafa margir hverjir brugðist við niðurstöðu Mannréttindadómstólsins með skætingi. Fjármálaráðherra setur spurningamerki við valdsvið Mannréttindadómstólsins; forsætisráðherra boðar að dómnum verði áfrýjað. Í stað þess að skammast sín fyrir framgönguna við skipun í Landsrétt, í stað þess að lofa úrbótum sem tryggja Íslendingum sjálfsögð mannréttindi, eru stjórnvöld eins og hópur óskamm- feilinna barna sem stendur við opna smákökukrús með klístraðar krumlur og mylsnu út á kinn en segist ekkert hafa gert af sér. Vinhygli, frændhygli, f lokkshygli. Fyrirgreiðslu- pólitík er plága í íslensku samfélagi. Hún er óréttur sem þjóðin hefur búið við allt of lengi. Nú er tíminn að tryggja að hún heyri sögunni til. Fullveldi fantsins Niðurstaða Mannréttindadómstólsins er skýr, og mín persónulega skoðun á málinu breytir engu um það. Í ljósi þess að persóna mín gæti f lækst fyrir eðlilegri umræðu og úrvinnslu máls-ins þá segi ég hér með af mér sem dómsmálaráðherra. Fleiri verða orðin ekki.“ Einhvern veginn svona hefði afsagnarræða Sig- ríðar Andersen, fráfarandi dómsmálaráðherra getað hljómað. Stutt, snarpt og skýrt. Þannig hefði hún axlað ábyrgð. Ekki endilega af því hún hefði gert eitt- hvað siðferðislega ámælisvert, heldur einfaldlega af því að hennar hlutur í málinu flæktist fyrir eðlilegri starfsemi ráðuneytis og dómstóla. En því miður var ræða ráðherrans fráfarandi þokukennd á blaðamannafundinum, þar sem hún tilkynnti næstu skref. Ekki var gott að skilja hvert hún var að fara, og meira að segja orðalagið varðandi afsögn hennar var ruglingslegt. Viðstaddir klóruðu sér í kollinum. Var hún að hætta eða fara í frí? Afsögn Sigríðar kom degi of seint. Hennar fyrstu viðbrögð voru hefðbundið íslenskt yfirklór. Sam- flokksmenn hennar voru litlu skárri. Næststærsta dagblað landsins kastaði rýrð á Mannréttindadóm- stólinn í fréttum og leiðurum. Kunnuglegt stef fyrir þá sem fylgst hafa með íslenskri pólitík í lengri tíma. Þrátt fyrir þetta er Sigríði að mörgu leyti vor- kunn. Íslenska leiðin er einfaldlega að setja undir sig hausinn og bíða þess að storminum sloti. Íslenskir ráðamenn segja almennt einfaldlega ekki af sér fyrr en í fulla hnefana. Tímasetningin var henni líka erfið af persónulegum ástæðum. Ekki má líta fram hjá því. En þótt framkvæmdin hafi verið klaufaleg er kannski um mikilvægt fordæmi að ræða. Efnislega voru skilaboðin þau að Sigríður myndi víkja úr ráð- herrastóli svo hægt væri að leiða málið til lykta. Það er virðingarvert skref að taka. Málefnin sett í fyrsta sæti, hún sjálf í annað. Óskandi væri að þetta væri skref til að breyta íslenskri stjórnmálahefð. Víða í kringum okkur, til að mynda á Norðurlöndum, segja stjórnmála- menn af sér þegar í stað, ef persóna þeirra er farin að flækjast fyrir. Þótt svo fari í það skiptið er ekkert sem segir að viðkomandi eigi ekki afturkvæmt á stóra sviðið. Sérstaklega er þessi hefð rótgróin í Bretlandi. Peter Mandelson, einn dyggasti stuðningsmaður Tony Blair, sagði af sér embætti tvisvar, en sneri jafn- harðan aftur. Amber Rudd, sem nú er vinnumála- ráðherra, tók við því embætti rúmu hálfu ári eftir að hafa sagt af sér sem innanríkismálaráðherra. Afsögn þarf ekki að þýða endalok. Nema sakir séu þeim mun meiri. Sigríður Andersen, vertu velkomin aftur. Velkomin aftur 1 6 . M A R S 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R18 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN 1 6 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :2 5 F B 1 2 8 s _ P 1 1 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 9 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 9 2 -8 6 D 0 2 2 9 2 -8 5 9 4 2 2 9 2 -8 4 5 8 2 2 9 2 -8 3 1 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 1 2 8 s _ 1 5 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.