Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.03.2019, Qupperneq 34

Fréttablaðið - 16.03.2019, Qupperneq 34
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Kristín Þorsteinsdóttir Sölumaður auglýsinga: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Edda Heildverslun var stofnuð árið 1932 og hefur því þjón­ustað fyrirtæki með lín og aðra vefnaðarvöru í 86 ár. Undan­ farna áratugi hefur Eddan verið leiðandi í sölu á hótellíni og þjón­ ustar í dag stærstu hótel landsins. Árið 2005 varð Eddan hluti af Rún Heildverslun, sem hefur sérhæft sig í innflutningi og sölu á fatnaði. Undanfarin ár hefur mikil aukning orðið í sölu á starfsmannafatnaði inn í hótel­ og veitingageirann en viðtökur markaðarins hafa verið frábærar. Allt lín fyrir hótelherbergið Helga Ragnarsdóttir, sölu­ og inn­ kaupastjóri hjá Eddu Heildverslun, segir fyrirtækið bjóða upp á flest það sem hótelherbergið þarfnast þegar kemur að líni. „Stærstu vöruflokkarnir okkar eru rúmföt, lök og handklæði en einnig seljum við mikið af sængum, koddum, sloppum og ýmsa fylgihluti eins og púðum og teppum.“ Stærsta vörumerkið sem Edda selur er Dibella en það er þýskt framleiðslufyrirtæki sem sér­ hæfir sig í framleiðslu á hótellíni og hefur verið starfandi í áratugi að sögn Helgu. „Dibella á verk­ smiðjur víðs vegar um heiminn og vörurnar þeirra má finna á ýmsum hótelum víðsvegar um Evrópu.“ Mikil áhersla er lögð á góða þjónustu við viðskiptavini enda þarfir þeirra mjög mismunandi, segir Helga. „Við leggjum mikla áherslu á að aðstoða hóteleigendur við val á rúmfatnaði. Hér ber að hafa í huga gæðastandard, með­ höndlun, endingu og kostnað við umhirðu. Það er langur vegur frá því að ein gerð af rúmfötum henti öllum rekstrareiningum.“ Helga segir heildverslunina hafa verið duglega síðustu misseri að bæta inn í alla vöruflokka og geti því sennilega boðið upp á mesta úrvalið hérlendis af hótellíni. „Meðal nýjunga sem við erum að taka inn á lager má nefna nýjan lit í straufríu SeerSucker rúmfötunum sem eru ein vinsælustu settin okkar, sérstaklega hjá hótelum og gististöðum sem sjá sjálf um þvott­ inn. Þessi sett hafa þann undra­ verða eiginleika að krumpast ekki þótt þau gleymist í þurrkaranum tímunum saman.“ Samfara miklum vexti í hótelbransanum undanfarin ár hafa sérþarfirnar aukist, segir Helga. „Við erum mjög vel sett með úrval á allri lagervöru okkar en við höfum lagt mikla áherslu á að þjónusta stærri hótelin með vörur sem eru sérsniðnar að þeirra þörfum og skapar þeim sérstöðu um leið. Sérpantanir eru því klár­ lega eitthvað sem er að aukast hratt.“ Starfsmannafatnaður í úrvali Rún Heildverslun býður upp á starfsmannafatnað fyrir f lest fyrir­ tæki á íslenskum atvinnumarkaði að sögn Þórhildar Vilhjálmsdóttur, sölu­ og innkaupastjóra starfs­ mannafatnaðar. „Við erum með marga stóra birgja þannig að það er fátt sem við getum ekki leyst eða útvegað. Stærsti viðskiptamanna­ hópur okkar eru hótel og veitinga­ hús en auk þess sinnum við aðilum úr viðskiptalífinu, t.d. bílaleigum, fasteignasölum, bönkum sem og starfsfólki hins opinbera. Í raun má segja að við sinnum öllum þeim sem eru í framlínu fyrirtækja og þurfa að koma vel fyrir.“ Þjóna­ og móttökufatnaðurinn er vinsælasti starfsmannafatnaður en hann samanstendur af skyrt­ um, jakkafötum, eða drögtum og oft vesti innan undir. „Við eigum þessar vörur á lager í fjórum til fimm litum og öllum stærðum og sniðum. Allir, jafnt smáir sem stórir, ættu að geta fundið eitthvað hjá okkur.“ Þórhildur segir enga kröfu um lágmarksmagn í pöntunum og viðskiptavinir þurfi ekki að skuld­ Þórhildur Vilhjálmsdóttir, sölu- og innkaupastjóri starfsmannafatnaðar (t.v.), ásamt Helgu Ragnarsdóttur, sölu- og innkaupastjóra Eddu Heildverslunar. Rúmföt, handklæði, sængur og koddar eru vinsælustu hótelvörurnar. binda sig til margra ára. „Markmið okkar er fyrst og fremst að veita það góða þjónustu að fyrirtækin kjósi að halda tryggð við okkur. Við bjóðum upp á mjög stuttan afgreiðslutíma, oftast samdægurs, þar sem við eigum flestar vörur á lager. Klæðskerameistari og klæð­ skeri okkar sjá um allar máltökur og mátanir ásamt því að ráðleggja um samsetningu og heildarútlit fyrir starfsfólk. Einnig bjóðum við upp á allar nauðsynlegar fata­ breytingar, merkingar og annað sem til fellur. Sé þörf á að mæta á staðinn gerum við það að sjálf­ sögðu.“ Meðal nýlegra vara má nefna J. Harvest & Frost skyrtumerkið Við leggjum mikla áherslu á að aðstoða hóteleigendur við val á rúmfatnaði. Hér ber að hafa í huga gæða- standard, meðhöndlun, endingu og kostnað við umhirðu. Helga Ragnarsdóttir sem Rún er nýbúin að taka í sölu. „Skyrturnar eru sérhann­ aðar fyrir atvinnulífið og koma með mörgum skemmtilegum smáatriðum. Þær eru straufríar og allir elska straufríar skyrtur, er það ekki? Birgjarnir okkar eru mjög duglegir við að uppfæra línurnar sínar og koma með nýjungar. Má þar t.d. nefna sænska merkið Segers sem er framarlega í f lokki fyrir nýtískulegan og spennandi kokka­ og þjónafatnað,“ segir Þór­ hildur að lokum. Til vinstri má fjá flottan kokka- og þjónafatnað frá Segers. Fyrir neðan er sýnishorn af fínni starfs- mannafatnaði fyrir starfsfólk í framlínu fyrir- tækja. 2 KYNNINGARBLAÐ 1 6 . M A R S 2 0 1 9 L AU G A R DAG U RALLT FYRIR HÓTEL OG VEITINGAHÚS 1 6 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :2 5 F B 1 2 8 s _ P 0 9 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 8 2 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 9 2 -C B F 0 2 2 9 2 -C A B 4 2 2 9 2 -C 9 7 8 2 2 9 2 -C 8 3 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 1 2 8 s _ 1 5 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.