Fréttablaðið - 16.03.2019, Page 36
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Mikið úrval af matvöru, sérvöru
og fatnaði fyrir hótel og veitingahús.
Kynnið ykkur úrvalið í vefverslun á
heimasíðu okkar, www.asbjorn.is.
Ásbjörn Ólafsson ehf. - Köllunarklettsvegi 6 - 104 Reykjavík - Sími: 414-1100 - www.asbjorn.is
Þótt aukist hafi að fólk dvelji í leiguíbúðum (Airbnb) á ferðalögum þá kjósa flestir
að dvelja á hótelum eða gistiheim-
ilum. Sumir velja lúxus og greiða
meira fyrir dvölina á meðan aðrir
vilja spara í hótelkostnaði. Það
eru þó allir sammála um nokkra
nauðsynlega hluti sem þurfa að
vera í lagi á hótelum. Samkvæmt
könnun sem hotels.com gerði eru
fimm hlutir sem skipta fólk mestu
máli þegar hótel er valið. Hreinlæti
er þar í fyrsta sæti og gott viðmót
starfsfólks.
Því meira sem fólk ferðast, þeim
mun frekar gerir það kröfur um
góðan aðbúnað á hótelum eða
gististöðum. Þráðlaust internet er
nauðsynlegt hjá flestum og sömu-
leiðis góður morgunverður. Það
eru þó ekki þessi tvö atriði sem
reyndust mikilvægust í könnun
hotels.com.
Fólk vill koma að hreinu her-
bergi með góðu baðherbergi.
Sturtan þarf að vera hrein og
sömuleiðis salernið. Það vill eng-
inn sjá raka í veggjum, sveppi eða
jafnvel lifandi pöddur í hótelher-
bergjum.
Vingjarnlegt starfsfólk virðist
skipta miklu máli hjá ferðamönn-
um. Þegar tekið er á móti fólki
með brosi á vör hefur það mikið
að segja. Þá skiptir rúmið verulega
miklu máli. Gott rúm með þægi-
legum rúmfötum er númer þrjú
á listanum. Fólk vill góða hvíld á
ferðalögum.
Staðsetningin er sömuleiðis
mikilvæg. Það getur verið dýrt að
fara á milli staða. Best er að hafa
áhugaverða staði í göngufæri eða
að minnsta kosti í nálægð við
strætisvagna eða neðanjarðar-
lestir. Allir ættu að lesa umsagnir
á netinu um hótelið áður en það er
bókað.
Enginn vill borga of mikið fyrir
hótelherbergi. Verðið skiptir
miklu máli. Dýrari hótel eru ekki
alltaf betri kostur því lítil, vinaleg
og ódýr hótel geta verið mjög góð.
Ef hótelið býður upp á frítt net er
það stór bónus.
Þá er bent á að hótelherbergi
þurfi að hafa góðar innstungur til
að hlaða tölvur, myndavélar og
síma. Helst þarf slík innstunga að
vera nálægt rúminu þar sem marg-
ir liggja uppi í því með símann eða
nota hann sem vekjaraklukku. Þá
vilja þeir hafa símann við höndina
þótt hann þurfi hleðslu.
Mörgum finnst nauðsynlegt að
hafa kaffivél á hótelherbergi, til
dæmis Nespresso-vél sem lagar
kaffi fyrir einn bolla í einu. Sumir
vakna snemma og vilja fá sér einn
kaffibolla á meðan kíkt er á tölvu-
póstinn. Þá vilja margir að boðið
sé upp á tannbursta og tannkrem.
Fólk gleymir nefnilega oft þessum
hlutum. Frítt vatn er líka á lista
yfir þá hluti sem fólk nefnir þegar
spurt er hvað sé nauðsynlegt á
hótelherbergjum. Flestum gremst
að þurfa að borga mikið fyrir
vatnsflösku. Enginn þarf að hafa
áhyggjur af slíkum hlutum hér á
landi þar sem vatnið í krananum
er ókeypis. Hins vegar væri ágætt
að láta fólk vita af því þegar það
bókar sig inn. Eitt enn sem fólk
nefnir eru myrkvunartjöld ef það
vill til dæmis leggja sig að deginum
eftir næturflug. Einnig nefnir fólk
að hótel ættu eingöngu að vera
með púða sem hægt er að þvo. Oft
eru skrautpúðar á hótelherbergj-
um sem aldrei eru þvegnir. Það
sama gildir auðvitað um rúmteppi.
Þá ættu að vera næg herðatré í
fataskápum á hótelum. Fólk sem er
í viðskiptaferð er oft með mismun-
andi klæðnað með sér og þarf að
hengja betri fötin upp. Þá er einnig
nauðsynlegt að hafa góðan stand
fyrir ferðatösku.
Eitt af því sem er gagnrýnt eru
baðherbergi með glerveggjum.
Það hefur verið tíska á nýjum
hótelum að í stað veggja er komið
gler. Flestir vilja hafa klósett- og
sturtuferðir prívat þegar tveir gista
saman í herbergi.
Á sumum hótelum er iPad í boði
fyrir gesti til að panta þjónustu.
Þá er til dæmis hægt að panta sér
morgunmat á herbergið rafrænt
eða biðja um að verða vakinn.
Einnig ætti að vera hægt að stýra
merkingu á hóteldyrunum, til
dæmis merkja „ekki ónáða“, með
því að ýta á hnapp.
Markaðsrannsókn sem gerð var
af Brodeur Partners í Boston fór í
gegnum meira en 18 þúsund kom-
ment á netinu á sex mánaða tíma-
bili til að finna út hvað fólk væri
helst að gagnrýna. Mikið var rætt
um stærð á herbergjum og tækni
sem boðið var upp á. Það sem
fólk vildi helst að bætt yrði úr var
sturtan. Oftar en ekki var of lítið
vatnsrennsli úr sturtuhausnum.
Jafnvel á fínum og dýrum hótelum
var sturtan vonlaus. Sömuleiðis
var kvartað yfir of fáum innstung-
um til að hlaða símann.
Gott morgunverðarhlaðborð
gerir gestina glaða með hóteldvöl-
ina. Súkkulaðimoli á koddanum
kallar á ánægjubros að ógleymdri
hamingjustund „happy hour“ á
barnum.
Það sem gestir vilja hafa á hótelum
Hótel skipta máli þegar fólk ferðast um heiminn. Það eru þó einstaka hlutir sem fólk vill umfram aðra.
Frítt internet þykir orðið sjálfsagður hlutur en hreinlæti er í efsta sæti þegar kemur að kröfum gesta.
Gestir vilja hafa baðherbergið prívat. Gler sem tíðkast í mörgum nýjum hótelum er ekki vinsælt þegar tveir eru saman, jafnvel þótt um pör sé að ræða.
Margir vilja geta hellt upp á kaffi á hótelherberginu og hafa það huggulegt.
Þessi fimm atriði skiptu ferða-
menn mestu máli þegar valin eru
hótel:
1 Þrifnaður
2 Vinalegt starfsfólk
3 Gott og þægilegt rúm
4 Góð staðsetning
5 Hagstætt verð
4 KYNNINGARBLAÐ 1 6 . M A R S 2 0 1 9 L AU G A R DAG U RALLT FYRIR HÓTEL OG VEITINGAHÚS
1
6
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:2
5
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
9
2
-D
F
B
0
2
2
9
2
-D
E
7
4
2
2
9
2
-D
D
3
8
2
2
9
2
-D
B
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
2
8
s
_
1
5
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K