Fréttablaðið - 16.03.2019, Page 86
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Time Out telur að þeir hafi fundið rétta svarið enda margir spurðir. Könnunin
var gerð í samvinnu við Tapestry
Research og leiddi meðal annars í
ljós að íbúar Parísar fara oftast út
um helgar og stunda mest kynlíf. Í
Berlín eru flestu veganistarnir og
þeir sem eru helst tilbúnir til að
minnka áfengisdrykkju.
Bollywood er Mekka kvik-
myndaaðdáenda. Í Mumbaí eru
líka flestir sem stunda kvik-
myndahúsin en í Manchester eru
íbúar mestu ofdrykkjumennirnir.
Í Madrid drekkur fólk mikinn bjór
og hittist oftast á klúbbum og á
börum svo eitthvað sé nefnt.
1: New York
Það væri hægt að kalla borgina
„helstu borg í heimi“ miðað við
útkomu hennar í könnuninni.
New York er helsta menningar-
Bestu borgir í heimi 2019
Það er gott að búa í New York, samkvæmt könnun. Menningin og fjölbreytnin er stórkostleg.
Melbourne í Ástralíu er í öðru sæti
listans. Gróskumikil og skemmtileg.
Tókýó er sú borg í Asíu sem mesta
athygli vekur um þessar mundir.
Tímaritið The Time Out spurði 34
þúsund íbúa um víða veröld hver
væri besta borgin 2019 til að búa
í. Spurt var meðal annars um mat,
drykk, menningu, næturlíf og útivist.
borg í heimi en hafnaði númer tvö
og þrjú þegar um mat og drykk var
að ræða. Þátttakendur voru mjög
ánægðir með fjölbreytnina í Stóra
eplinu.
2: Melbourne
Númer tvö er ástralska borgin
Melbourne. Borgin hefur fleiri
staði með lifandi tónlist en nokkur
önnur í könnuninni. Einn af hverj-
um fjórum sótti einhverja tónleika
í vikunni fyrir könnunina. Borgin
kom líka vel út í sambandi við mat
og drykk.
3: Chicago
Borgin skorar hátt í mat og drykk
en langmest varðandi íþrótta-
iðkun. Meira en helmingur þeirra
sem svöruðu stunduðu einhvers
konar líkamsrækt. Greinilega
skapar lífsstíllinn mikla ánægju
borgarbúa.
4: London
Þrátt fyrir Brexit og pólitískan
óróa töldu átta af tíu Lundúna-
búum sig hamingjusama og
einungis sex prósent fundu
fyrir óöryggi síðustu 24 tímana.
Borgin býður upp á fjölbreytni og
umhverfið er skapandi.
5: Los Angeles
Ótrúlega dýnamísk, fjölbreytt
og skapandi borg. Íbúar eru
hamingjusamir og þeir geta valið
um góða veitingastaði enda borða
þeir oftar úti en nokkrir aðrir í
könnuninni.
6: Montreal
Íbúar telja að þetta sé besta borg í
heimi og þarna geti fólk verið það
sjálft. Montreal er menningarborg
og 79% íbúa telja sig hamingju-
sama.
7: Berlín
Þetta er borg skemmtanalífsins.
Borgarstjórinn ákvað nýlega að
eyða einni milljón evra í hljóð-
einangrun í næturklúbbum sem
sýnir mikilvægi næturlífsins fyrir
borgina. Borgin er einnig talin
hagkvæm að lifa í, hún er skapandi
og þar er að finna bæði frelsi og
hamingju.
8: Glasgow
Þótt þetta sé mikil rigningar-
borg þá elska íbúarnir Skotland
og eru stoltir af uppruna sínum. Í
Glasgow er öflugt skemmtana- og
tónlistarlíf. Flestir sögðu að borgin
hefði breyst mikið til hins betra á
síðustu árum.
9: París
París er að sjálfsögðu þekkt fyrir
menningu og listir. Um 87% íbúa
telja borgina frábæra á listasviðinu
enda eru fleiri þar en á nokkrum
öðrum stað sem sækja söfn og gall-
erí. Íbúarnir eru duglegir að fara út
um helgar og stunda mest kynlíf.
10: Tókýó
Þetta er sú borg sem flestir í
könnuninni hafa löngun til að
heimsækja árið 2019. Íbúar eru
ánægðir með borgina sína og
Ólympíuleikarnir 2020 sem fram
fara í Japan hafa beint heimsljós-
inu að Tókýó. Þessi nýja orka sem
hvarvetna blasir við í uppbyggingu
í bland við gamla og þjóðlega siði
gerir Tókýó að mest aðlaðandi stað
í Asíu um þessar mundir.
Aðrar borgir sem komust á
listann:
11: Madrid
12: Höfðaborg
13: Las Vegas
14: Mexíkóborg
15: Manchester
16: Philadelphia
17: Barcelona
18: Buenos Aires
19: Lissabon
20: Washington DC
21: Tel Avív
22: Mumbaí
23: Toronto
24: Birmingham
25: Dublin
26. São Paulo
27: Miami
28: Porto
29: Singapore
30: Edinborg
31: San Francisco
32: Dúbaí
33: München
34: Vín
35: Sjanghaí
36: Moskva
37: Delí
38: Seattle
39: Sydney
40: Abú Dabí
41: Hong Kong
42: Boston
43: Rio de Janeiro
44: Marseilles
45: Bangkok
46: Kúala Lúmpúr
47: Peking
48. Istanbúl
8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 6 . M A R S 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
1
6
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:2
5
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
9
2
-F
3
7
0
2
2
9
2
-F
2
3
4
2
2
9
2
-F
0
F
8
2
2
9
2
-E
F
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
2
8
s
_
1
5
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K