Fréttablaðið - 16.03.2019, Qupperneq 94
Vegan lífsstíllinn er að verða æ fyrirferðarmeiri meðal íbúa heimsins. Því er ekki að
undra að hótel fari að huga að því
að bjóða þessum fjölgandi hópi
gesta sinna upp á valkost sem sam-
ræmist hugsjónum hans.
Hilton London Bankside hótelið
fékk til liðs við sig hönnunarstúd-
íóið Bompas & Parr til að hanna
vegan svítu en talið er að hún sé sú
fyrsta sinnar tegundar í heim-
inum. Hugmyndin var að benda á
að veganismi er ekki aðeins matar-
stefna heldur lífsviðhorf.
Við hönnun herbergisins voru
aðeins notuð hráefni úr plöntu-
Fyrsta vegan svíta heims
Koddar eru fylltir tróði úr bókhveiti
og bambus en ekki fjöðrum.
Snyrti- og hreinsivörur sem boðið
er upp á í svítunni eru án dýraefna.
Hægt er að njóta vegan dvalar frá
upphafi til enda í glæsilegu rými.
Svítan er hönnuð af hönnunarstúdíóinu Bompas & Parr og talin fyrsta sinnar tegundar í heiminum.
heiminum en sneitt var hjá leðri,
fjöðrum og ull. Miðpunktur í
hönnun svítunnar var nýstár-
legt efni sem kallast Piñatex,
veganvænt leður sem búið er til úr
trefjum úr ananas. Það þótti við
hæfi að nota þetta ananasefni enda
er ávöxturinn eitt af einkennis-
merkjum í arkitektúr á svæðinu en
ananas var fyrst f luttur til London
í gegnum Borough Market sem er í
nágrenni hótelsins.
Gestir geta notið vegan dvalar
frá upphafi til enda á hótelinu. Þeir
geta setið í Piñatex leðursófum og
notað lyklakort úr sama efni. Í svít-
unni eru koddar sem fylltir eru líf-
rænu tróði úr bókhveiti og bambus
en ekki fjöðrum. Gólfteppin eru úr
bómull og allar snyrti- og hreinsi-
vörur eru án allra dýraafurða.
Hönnunarfyrir-
tækið Bompas
& Parr hefur
hannað heimsins
fyrstu vegan
svítu fyrir Hilton
hótel í London.
Aðeins er notað-
ur efniviður sem
uppfyllir kröfur
veganista.
www.centralpay.is
Aukin sala til kínverskra
ferðamanna á Íslandi
Við bjóðum upp á:
• Snjalltækjalausnir
• Greiðslugátt
• POS greiðslulausnir
• Teningar við
...afgreiðslukerr
Við aðstoðum söluaðila við að taka við WeChat Pay og
Alipay farsímagreiðslum, tveimur vinsælustu
greiðslulausnum Kínverja.
Með WeChat Pay og Alipay verður þú sýnilegri gagnvart
kínverskum ferðamönnum og skapar aukin sölutækifæri.
Hafðu samband við okkur í netfangið
sala@centralpay.is eða í síma 556 3600.
Það er staðreynd að þegar Kínverjar geta notað WeChat Pay og AliPay eyða þeir
meira. Kaupgeta þeirra eykst og
jafnframt treysta þeir þessum
greiðsluleiðum best,“ segir Stefán
Þór Stefánsson, framkvæmda-
stjóri Central Pay, um greiðslu-
lausnirnar sem fyrirtækið býður
upp á.
„Það sem skiptir ekki minna
máli er að greiðslur með farsíma
gefa söluaðila tengingu við við-
skiptavininn sem kort og reiðufé
bjóða ekki upp á. Þannig skapast
mjög áhugaverð markaðstækifæri
í gegnum farsímann.“
Nokkur hótel eru komin í ört
stækkandi viðskiptavinahóp
Central Pay auk bílaleiga, verslana
og annarra ferðaþjónustuaðila.
„Þetta eru ungar lausnir utan
Kína. Þetta er því nýtt fyrir
mörgum og fjölmargir að upp-
götva þessa greiðslumiðla. En
þessi hópur viðskiptavina vex
hratt og það borgar sig að þjónusta
hann betur,“ segir Stefán.
Kínverskum ferðamönnum
fjölgaði um 16 prósent á fyrstu
tveimur mánuðum ársins og voru
þeir þriðji stærsti ferðamanna-
hópurinn hér á landi. Verði sam-
bærileg fjölgun ferðamanna frá
Kína út árið, má áætla að fjöldinn
fari nokkuð yfir 100 þúsund strax
á þessu ári. „Kínverjar eru sú þjóð
sem mun ferðast mest á heims-
vísu á komandi árum, segja spár.
Það eru því horfur á að vöxturinn
hér á landi muni halda áfram
á komandi árum,“ segir Stefán.
„Kínverjar þekkja þessar greiðslu-
lausnir og íslensk fyrirtæki eru
að markaðssetja sig á þessum
miðlum. Við hjálpum þeim að
taka þetta skrefi lengra.“
Hvað er WeChat Pay?
l WeChat Pay eru farsímagreiðsl-
ur sem eru innbyggðar í WeChat
samfélagsmiðilinn.
l Yfir milljarður manna eru virkir
notendur á WeChat sem gerir
hann að einum vinsælasta sam-
félagsmiðli í heimi.
l Vöxtur WeChat Pay hefur verið
ævintýralegur á undanförnum
árum og er áætlað að greiðslu-
lausnin sé nú sú mest notaða
í verslunum og á þjónustu-
stöðum í Kína.
l Samspil samfélagsmiðils
og greiðsluþjónustu skapar
söluaðilum einstakt tækifæri til
að ná til viðskiptavina og rækta
tengslin við þá.
Hvað er Alipay?
l Alipay er greiðsluþjónusta sem
þróuð var innan samstæðu
Alibaba í Kína, eins stærsta
fyrirtækis heims á sviði netvið-
skipta.
l Yfir 700 milljónir manna nota
Alipay farsímagreiðslur í Kína.
l Með Alipay farsímagreiðslum
bjóðast söluaðilum ýmsar
samskiptaleiðir til þess að ná til
viðskiptavina og auglýsa vörur
og þjónustu.
l Með staðbundinni markaðs-
setningu í Alipay er hægt að ná
til viðskiptavinarins þegar hann
er í grennd við söluaðila.
Farsímagreiðslur
sem Kínverjar þekkja
Central Pay hjálpar íslenskum fyrirtækjum að koma til
móts við ört stækkandi hóp kínverskra ferðamanna með
einföldum greiðslulausnum á staðnum og á netinu.
Stefán Þór, framkvæmdastjóri Central Pay. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
10 KYNNINGARBLAÐ 1 6 . M A R S 2 0 1 9 L AU G A R DAG U RALLT FYRIR HÓTEL OG VEITINGAHÚS
1
6
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:2
5
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
9
2
-D
A
C
0
2
2
9
2
-D
9
8
4
2
2
9
2
-D
8
4
8
2
2
9
2
-D
7
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
1
2
8
s
_
1
5
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K