Fréttablaðið - 16.03.2019, Side 114

Fréttablaðið - 16.03.2019, Side 114
Fræhvíta Orkugjafi, inniheldur kolvetni og prótein Heilkorn Klíð Ytri skel sem ver fræið, inniheldur trefjar, B-vítamín og steinefni Kím Næring fyrir fræið, inniheldur andoxunarefni, E-vítamín og B-vítamín Myllan, 2011. ©Þessa mynd má nota óbreytta. Getið uppruna. Skoðaðu myllan.is SJÖ LÍFSKORN FYRIR HEILSUNA Lífskorn – Sjö tegundir af fræjum og kornum er nýjasti fjölskyldumeðlimurinn í Lífskornalínunni. Frábær kostur fyrir alla sem hugsa um heilsuna. Það inniheldur hafraflögur, sólblómafræ, hörfræ, sesamfræ, graskersfræ og rúg en ekkert hvítt hveiti og ekkert ger. Trefjaríkt og gómsætt brauðið er vegan og sérstaklega þétt og saðsamt. Lífskorn er trefjagjafi þinn – fræsafn þitt og heilsurækt – það hefur hátt hlutfall heilkorns, með gott hlutfall góðrar fitu. Safnaðu góðri orku, fáðu þér Lífskorn í dag. Lífskorn færir þér máltíð af akrinum. Hafraflögur 26% Sólblómafræ 9% Hörfræ 8,5% Rúgkjarnar 3% Graskersfræ 2,5% Sesamfræ 1,5% Spelthveiti 1,5% Ræktaðu h uga og líka ma - fáðu þér Lífskorn heilkornabr auð frá M yllunni -strax í dag VEG AN cw180099_Myllan_Lífskorn_7tegundir_Dagbl_2x38_20181220_END.indd 1 7.1.2019 14:28:20 Einn á báti er heiti á sýningu Önnu Jóels-dóttur sem  nú stendur yfir í Tveimur hröfnum listhúsi á Baldursgötu. „Þarna sýni ég sjö mál- verk úr akríl og bleki. Verkin bera titla sem eru nokkuð óræðir og ég læt áhorfandann um að lesa í þá og skilja þá. Það má kannski segja að þetta séu sjö smásögur,“ segir Anna. Sem dæmi um titla má nefna Bleikur dagur, Bleksvört lygi og Hún söng dirrindí. Sýningin hefur yfirskriftina Einn á báti en samnefnt verk er á sýning- unni. „Það kom einu sinni kona með skörp augu á vinnustofuna til mín, sá mynd sem ég var að mála og sagði: Ég sé karl á báti. Ég hváði en þegar ég skoðaði myndina sá ég það sem hún sá,“ segir Anna. „Seinna málaði ég svo annað málverk sem ég gaf þetta sama heiti og það er á þessari sýningu.“ Geng inn í óreiðuna Í verkunum segist hún vera að fást við óreiðuna. „Ég geng inn í óreið- una og skapa úr henni. Ég byrja með óljósa hugmynd og síðan fer eitthvað að gerast og veit ég aldrei fyrirfram hvernig verk verður til. Það tekur um það bil 6-8 vikur að gera verk og eftir 3-4 vikur fer það að stjórna mér og segja mér hvað ég eigi að gera. Ferlið er dálítið eins og nútímadjass, sem teymir mann í allar og óvæntar áttir, en allt smellur saman að lokum.“ Flutt heim Anna bjó 23 ár í Chicago en f lutti heim fyrir fjórum árum. „Það stóð alltaf til að f lytja heim. Maðurinn minn er Bandaríkjamaður en tókst ekki að fá starf á sínu sviði hér á landi þannig að við f luttum út.“ Hún lærði myndlist við The School of the Art Institute of Chicago og lauk þaðan MFA-námi árið 2002. Hún hefur haldið margar einkasýn- ingar og tekið þátt í fjölda samsýn- inga þar á meðal í Bandaríkjunum, Evrópu og á Íslandi. Má þar nefna: Nýlistasafnið, Listasafn Reykja- víkur, Hafnarborg, Museum of Con- temporary Art í Chicago, Listasafn ASÍ, Listasafn Akureyrar, Stux Gall- ery í New York, Zg Gallery í Chicago, Clocktower Gallery í New York og Rijswijk Museum í Hollandi. Hún vinnur með galleríum í Chicago og New York. „Ég hef verið lánsöm og hef fengið mörg spennandi tækifæri, sérstak- lega varðandi innsetningar. Þá er ég með allt rýmið undir í þrívíðum verkum. Þetta er ekki auðveldur bransi en mér hefur gengið ótrúlega vel. Ég hef verið heppin.“ Hún segir gott að vera komin heim. „Hér er svo margt sem togar í mann og ég var alltaf með hugann heima, þótt það væri mjög gott að búa í Chicago og mér liði mjög vel þar. Þegar ég f lutti aftur til Íslands hélt ég að ég væri að koma inn í samfélag sem væri eins og þegar ég fór en það hefur orðið gríðarleg breyting. Ný kynslóð er tekin við og tungumálið hefur þróast. Ég var lengi að venjast því, sennilega tala ég einhverja forníslensku. Nú er ég að fóta mig í myndlist- inni hér heima. Það er gott að breyta til og takast á við eitthvað nýtt og læra eitt og annað í leiðinni.“ Skapar úr óreiðunni „Nú er ég að fóta mig í myndlistinni hér heima,“ segir Anna. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Þetta verk á sýningunni hefur titilinn Bleksvört lygi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Anna Jóelsdóttir sýnir sjö málverk í Tveimur hröfnum. Segir verkin fara að stjórna sér. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is 1 6 . M A R S 2 0 1 9 L A U G A R D A G U RM E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 6 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :2 5 F B 1 2 8 s _ P 1 2 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 1 1 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 9 2 -7 C F 0 2 2 9 2 -7 B B 4 2 2 9 2 -7 A 7 8 2 2 9 2 -7 9 3 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 1 2 8 s _ 1 5 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.