Fréttablaðið - 16.03.2019, Page 114
Fræhvíta
Orkugjafi, inniheldur
kolvetni og prótein
Heilkorn
Klíð
Ytri skel sem ver fræið,
inniheldur trefjar,
B-vítamín og steinefni
Kím
Næring fyrir fræið,
inniheldur andoxunarefni,
E-vítamín og B-vítamín
Myllan, 2011. ©Þessa mynd má nota óbreytta. Getið uppruna.
Skoðaðu myllan.is
SJÖ
LÍFSKORN
FYRIR
HEILSUNA
Lífskorn – Sjö tegundir af fræjum og
kornum er nýjasti fjölskyldumeðlimurinn í
Lífskornalínunni. Frábær kostur fyrir alla sem
hugsa um heilsuna. Það inniheldur hafraflögur,
sólblómafræ, hörfræ, sesamfræ, graskersfræ
og rúg en ekkert hvítt hveiti og ekkert ger.
Trefjaríkt og gómsætt brauðið er vegan og
sérstaklega þétt og saðsamt.
Lífskorn er trefjagjafi þinn – fræsafn þitt og
heilsurækt – það hefur hátt hlutfall heilkorns,
með gott hlutfall góðrar fitu.
Safnaðu góðri orku, fáðu þér Lífskorn í dag.
Lífskorn færir þér máltíð af akrinum.
Hafraflögur 26%
Sólblómafræ 9%
Hörfræ 8,5%
Rúgkjarnar 3%
Graskersfræ 2,5%
Sesamfræ 1,5%
Spelthveiti 1,5%
Ræktaðu h
uga og líka
ma
- fáðu þér
Lífskorn
heilkornabr
auð frá M
yllunni
-strax
í dag
VEG
AN
cw180099_Myllan_Lífskorn_7tegundir_Dagbl_2x38_20181220_END.indd 1 7.1.2019 14:28:20
Einn á báti er heiti á sýningu Önnu Jóels-dóttur sem nú stendur yfir í Tveimur hröfnum listhúsi á Baldursgötu. „Þarna sýni ég sjö mál-
verk úr akríl og bleki. Verkin bera
titla sem eru nokkuð óræðir og ég
læt áhorfandann um að lesa í þá
og skilja þá. Það má kannski segja
að þetta séu sjö smásögur,“ segir
Anna. Sem dæmi um titla má nefna
Bleikur dagur, Bleksvört lygi og Hún
söng dirrindí.
Sýningin hefur yfirskriftina Einn
á báti en samnefnt verk er á sýning-
unni. „Það kom einu sinni kona
með skörp augu á vinnustofuna til
mín, sá mynd sem ég var að mála og
sagði: Ég sé karl á báti. Ég hváði en
þegar ég skoðaði myndina sá ég það
sem hún sá,“ segir Anna. „Seinna
málaði ég svo annað málverk sem
ég gaf þetta sama heiti og það er á
þessari sýningu.“
Geng inn í óreiðuna
Í verkunum segist hún vera að fást
við óreiðuna. „Ég geng inn í óreið-
una og skapa úr henni. Ég byrja
með óljósa hugmynd og síðan fer
eitthvað að gerast og veit ég aldrei
fyrirfram hvernig verk verður til.
Það tekur um það bil 6-8 vikur að
gera verk og eftir 3-4 vikur fer það
að stjórna mér og segja mér hvað
ég eigi að gera. Ferlið er dálítið eins
og nútímadjass, sem teymir mann í
allar og óvæntar áttir, en allt smellur
saman að lokum.“
Flutt heim
Anna bjó 23 ár í Chicago en f lutti
heim fyrir fjórum árum. „Það stóð
alltaf til að f lytja heim. Maðurinn
minn er Bandaríkjamaður en tókst
ekki að fá starf á sínu sviði hér á
landi þannig að við f luttum út.“
Hún lærði myndlist við The School
of the Art Institute of Chicago og
lauk þaðan MFA-námi árið 2002.
Hún hefur haldið margar einkasýn-
ingar og tekið þátt í fjölda samsýn-
inga þar á meðal í Bandaríkjunum,
Evrópu og á Íslandi. Má þar nefna:
Nýlistasafnið, Listasafn Reykja-
víkur, Hafnarborg, Museum of Con-
temporary Art í Chicago, Listasafn
ASÍ, Listasafn Akureyrar, Stux Gall-
ery í New York, Zg Gallery í Chicago,
Clocktower Gallery í New York og
Rijswijk Museum í Hollandi. Hún
vinnur með galleríum í Chicago og
New York.
„Ég hef verið lánsöm og hef fengið
mörg spennandi tækifæri, sérstak-
lega varðandi innsetningar. Þá er
ég með allt rýmið undir í þrívíðum
verkum. Þetta er ekki auðveldur
bransi en mér hefur gengið ótrúlega
vel. Ég hef verið heppin.“
Hún segir gott að vera komin
heim. „Hér er svo margt sem togar
í mann og ég var alltaf með hugann
heima, þótt það væri mjög gott að
búa í Chicago og mér liði mjög vel
þar. Þegar ég f lutti aftur til Íslands
hélt ég að ég væri að koma inn í
samfélag sem væri eins og þegar
ég fór en það hefur orðið gríðarleg
breyting. Ný kynslóð er tekin við
og tungumálið hefur þróast. Ég var
lengi að venjast því, sennilega tala
ég einhverja forníslensku.
Nú er ég að fóta mig í myndlist-
inni hér heima. Það er gott að breyta
til og takast á við eitthvað nýtt og
læra eitt og annað í leiðinni.“
Skapar úr óreiðunni
„Nú er ég að fóta mig í myndlistinni hér heima,“ segir Anna. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Þetta verk á sýningunni hefur titilinn Bleksvört lygi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Anna Jóelsdóttir
sýnir sjö málverk í
Tveimur hröfnum.
Segir verkin fara að
stjórna sér.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
1 6 . M A R S 2 0 1 9 L A U G A R D A G U RM E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
6
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:2
5
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
9
2
-7
C
F
0
2
2
9
2
-7
B
B
4
2
2
9
2
-7
A
7
8
2
2
9
2
-7
9
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
2
8
s
_
1
5
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K