Fréttablaðið - 16.03.2019, Blaðsíða 124
Lífið í
vikunni
11.03.19-
16.03.19
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jóhanna Helga Viðardóttir johannahelga@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is, Örn
Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage
johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Benedikt Bóas Hinriksson
benediktboas@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
SPRING AIR EXCELLENT
heilsudýna – allar stærðir
Aðeins 58.435 kr.
VERÐDÆMI
Stærð 120 x 200 cm
Fullt verð 89.900 kr.
35%
AFSLÁTTUR
DÝNUDAGAR
NATURE’S SUPREME
heilsudýna – allar stærðir
Aðeins 47.920 kr.
VERÐDÆMI
Stærð 90 x 200 cm
Fullt verð 59.900 kr.
• Svæðaskipt pokagormakerfi
• 320 gormar á m2
• Vandaðar kantstyrkingar
20%
AFSLÁTTUR
DÝNUDAGAR
120 / 140 / 180x200 cm
80 / 90 / 100 / 120 / 140 / 160 / 180 x 200 cm
• Pokagormakerfi
• Hægindalag í yfirdýnu
• Bómullar áklæði
• Sterkur botn
• Steyptur svampur
í köntum
www.dorma.is
V E F V E R S LU N
ALLTAF
OPIN
Dýnudagar
Allar
dýnur*
20-50%
AFSLÁTTUR
20%
AFSLÁTTUR á
dýnudögum
Classic botn,
cover og fætur
Afgreiðslutími Rvk
Mán. til föst. kl. 10–18 (Holtagörðum)
Mán. til föst. kl. 11–18:30 (Smáratorgi)
Laugardaga kl. 11–17
Sunnudaga kl. 13–17 (Smáratorgi)
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
OP
IÐ
Á
SU
NN
UD
ÖG
UM
Í
DO
RM
A
SM
ÁR
AT
OR
GI
* Gildir ekki af dýnum frá Simba.
Íslenska þjóðfylkingin hefur boðað til „þögulla og frið-sa mr a mót mæla“ mil l i klukkan 13-14 á Austurvelli í dag og hvetur fólk til þess að mæta með íslenska fánann
og mótmæla „of beldi sem hælis-
leitendur sýndu samfélaginu og
lögreglunni í vikunni,“ eins og það
er orðað.
Á sama stað og tíma verður
samstöðufundur með flóttafólki og
þar verður mannréttindabaráttu-
konan Sema Erla Serdar framarlega
í f lokki.
Þessum tveimur hópum mót-
mælenda laust síðast saman á
Austurvelli sumarið 2016 þegar
Þjóðfylkingin mótmælti nýjum
útlendingalögum.
„Þeir eru enn reiðir yfir því að
vorum þarna á sínum tíma og svo
boða þeir núna til mótmæla gegn
mótmælunum sem hafa staðið yfir
og standa enn,“ segir Sema Erla við
Fréttablaðið.
Hún segir stöðuna því óneitan-
lega svipaða og 2016. „Þetta er
samstöðufundur með flóttafólki og
öðrum minnihlutahópum og bein-
ist ekkert gegn Þjóðfylkingunni sér-
staklega.“
Allir hafa sama rétt
„Þessi hópur talar mikið um að þau
megi ekki koma sínum málf lutn-
ingi á framfæri sem er náttúrlega
bara þvæla,“ segir Sema um Þjóð-
fylkinguna. „Hér ríkir auðvitað
tjáningarfrelsi og frelsi til að mót-
mæla og aðrir eiga þar sama rétt og
þjóðernissinnar þannig að það er
náttúrlega svolítil hræsni fólgin í
því að kvarta undan slíkri þöggun
en stunda hana svo á sama tíma.“
Óþolandi ógeð
„Það sem er líka óþolandi í þessu er
að það er ógeðslegt að boða til mót-
mæla gegn minnihlutahópum. Eitt
er að mótmæla stefnu stjórnvalda
eða stjórnmálaf lokka en það er
ólíðandi í okkar samfélagi að boða
til mótmæla til höfuðs fólki sem er í
sérstaklega viðkvæmri stöðu.“
Sema segir víða brotið á rétt-
indum flóttafólks og að í raun séu
þau aðeins að fara fram á að mann-
réttindi þeirra séu virt“ segir hún og
hafnar alfarið þeirri hugmynd að
með kröfum sínum sé f lóttafólkið
með frekju.
„Þetta er auðvitað fáránlegur
málflutningur og vart svaraverður.
Það er auðvitað engin frekja að tala
fyrir almennum mannréttindum
og gegn félagslegri einangrun og
skertri heilbrigðisþjónustu. Þetta
er bara ákall um að réttindi fólks á
f lótta séu virt á við réttindi annars
fólks og þessar kröfur eru mjög hóg-
værar og eðlilegar.“
Getum gert meira
„Þetta fólk er í gríðarlega viðkvæmri
stöðu og hefur upplifað hluti sem
ekkert okkar getur ímyndað sér og
glímir við alls konar líkamlega og
andlega kvilla,“ segir Sema.
„Móttökur okkar hafa áhrif á
þessa einstaklinga og við getum
og eigum bara að gera miklu betur
fyrir þessa fáu sem koma hingað í
leit að skjóli og vernd. Stjórnvöld
skortir bara allan vilja til þess.
Við viljum að allir eigi sama
rétt og búi við mannréttindi og
mannúð. Þetta snýst bara um að
mæta, sýna samstöðu og senda skýr
skilaboð um að við sem samfélag
samþykkjum ekki hatur, öfgar og
fordóma. Það er tilgangurinn með
þessu. Hatrið mun aldrei sigra.
Öfgarnar munu aldrei fá að hafa
yfirhöndina. Jörðin er okkar allra
og við eigum öll sama rétt á að lifa á
henni.“ thorarinn@frettabladid.is
Ógeðslegt að mótmæla
minnihlutahópum
Íslenska þjóðfylkingin hefur boðað til mótmæla gegn mótmæl-
um flóttafólks á Austurvelli í dag. Þar ætlar Sema Erla Serdar
líka að vera ásamt öðrum og hafna „öfgum, hatri og fordómum“.
„Engin manneskja er ólögleg.“ Boðskapur mótmælendanna í tjaldinu á Austurvelli er skýr og Sema Erla er í hópi
þeirra sem taka undir þetta og mun standa við þessi orð á fundi á Austurvelli í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Er eitthvað varið í Bláa lónið?
Bandaríski blaðamaðurinn A.C.
Fowler velti fyrir sér í hressilegu
innslagi á YouTube hvort eitthvað
sé raunverulega varið í Bláa lónið.
Hann er nokkuð hrifinn en finnst
heldur dýrt að komast í það.
Gömul óléttufrétt mest lesin
Helga Arnar-
dóttir þurfti
að eyða
heilum
morgni í
vikunni
við að
svara spurn-
ingum og
hamingjuóskum
um meinta óléttu hennar eftir að
tæknibilun á Vísi þeytti frétt frá
2013 um að hún væri barnshaf-
andi á lista mestu lesnu fréttanna
á vefmiðlinum.
Grínast með háskólatossa
Netgrínarar
fóru hamför-
um í kjölfar
frétta um að
rúmlega 50
manns, úr
efri lögum
bandarísks
samfélags,
hafi verið
ákærð fyrir að
hafa mútað
sig í gegnum
inntökupróf í háskólum þar í landi.
Leikkonan Felicity Huffman er
þeirra á meðal.
Hatari heillar fulltrúa Sviss
Luca Hanni, fulltrúi Sviss í Eurovisi-
on, er nokkuð hrifinn af framlagi
Hatara og segist hlakka til að hitta
Íslendingana og sjá þá á sviði þar
sem þeir muni rústa samkeppn-
inni.
1 6 . M A R S 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R56 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
6
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:2
5
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
9
2
-9
F
8
0
2
2
9
2
-9
E
4
4
2
2
9
2
-9
D
0
8
2
2
9
2
-9
B
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
2
8
s
_
1
5
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K