Fréttablaðið - 23.03.2019, Page 16

Fréttablaðið - 23.03.2019, Page 16
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Einar Þór Sverrisson FORSTJÓRI: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir ÚTGEFANDI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is RITSTJÓRAR: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Gunnar Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is Mín skoðun Sif Sigmarsdóttir Þeir sem tefla djarft, geta uppskorið ríkulega en líka lent illa í því. Sam- félagið þarf á slíku fólki að halda. Sjóður Odds Ólafssonar Til úthlutunar eru styrkir til: (a) Rannsókna á fötlun og fræðslu um hana, og (b) Rannsóknarverkefna á sviði öndunarfærasjúk- dóma og fræðslu um þá. Styrkfjárhæð nemur 500 þúsund krónum á hvert verkefni sem valið verður. Umsóknarfrestur er til og með 14. apríl 2019. Umsóknir sendist á netfangið oddssjodur@sibs.is. Saga tilheyrir ekki aðeins fortíðinni. Saga verður til í samtímanum er við sviptum hulunni af gleymd-um atburðum svo opinberast áður óþekktur sann- leikur. Og um leið og sagan varpar ljósi á liðna atburði setur hún samtímann í samhengi. Blaðamaður dagblaðsins The Times fletti ofan af einum síðasta skandal Breska heimsveldisins á dögunum þegar hann rakst á gögn sem merkt voru „trúnaðarmál“ í Þjóðskjalasafni Breta. Arthur Hope var landstjóri á yfirráðasvæði Breta á Indlandi laust fyrir sjálfstæði Indlands árið 1947. Arthur hafði getið sér gott orð sem hermaður í fyrri heimsstyrjöldinni og síðar þingmaður. En Arthur var ekki allur þar sem hann var séður. Arthur var gefinn fyrir veðreiðar. Að veðja á réttan hest fór honum hins vegar illa úr hendi. Árið 1944 varð ráðamönnum í Lundúnum ljóst að skuldir Arthurs voru ógn við orðstír kóngsins og gætu grafið undan valdi embættismanna á Breska Indlandi. Arthur hafði misnotað aðstöðu sína og þvingað inn- fædda til að lána sér fé. Auk þess lék grunur á að Arthur hefði tryggt mönnum riddaratign í skiptum fyrir lán. En ekki nóg með það. Arthuri hafði verið treyst fyrir fjármunum sem koma átti til Rauða krossins á Ind- landi. Hvern einasta eyri, nánar tiltekið 40.000 pund (en á þessum tíma var meðalhúsnæðisverð í Bretlandi 610 pund), setti Arthur upp í eigin skuldir. „Bölvaður þrjótur,“ skrifaði dómsmálaráðherra Breta í bréfi sem tilheyrir leynigögnunum í þjóðskjalasafn- inu. Ráðamenn ræddu hvernig taka ætti á málinu. Úti- lokað var að sækja Arthur til saka; slíkt beindi athygli heimsbyggðarinnar að „misferli fulltrúa kóngsins“. Til tals kom að láta föður Arthurs endurgreiða féð sem Arthur stal en einhverjum þótti „ósanngjarnt að láta syndir sonarins bitna á föðurnum“. Niðurstaða náðist. Ráðherrar, Buckinghamhöll, MI6; allir voru á einu máli. Forsætisráðherrann Clement Attlee heimilaði að hylmt yrði yfir málið og breskt skattfé notað til að endurgreiða Rauða krossinum á Indlandi. Mat á hagsmunum Færri komust að en vildu á málþingi Lagastofnunar Háskóla Íslands um dóm Mannréttindadómstóls Evrópu sem féll í síðustu viku og kvað á um að ólöglega hefði verið staðið að skipan dómara við Landsrétt. Einn framsögumanna, Ingibjörg Þorsteinsdóttir, héraðs- dómari og formaður Dómarafélags Íslands, sagði stjórnvöld verða að spyrja sig að því hvort sú ákvörðun sem tekin verður í tengslum við Landsréttarmálið verði til þess fallin að styrkja sjálfstæði réttarins og auka trú fólks á dómstólum landsins. Í kjölfar dóms Mannréttindadómstólsins fullyrtu stjórnvöld að honum yrði áfrýjað. Í ræðu á Alþingi í vikunni dró Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, nokkuð í land og sagði að áður en endanleg ákvörðun yrði tekin þyrfti að liggja fyrir „ítarlegt mat á þeim hagsmunum“ sem eru undir. Ósjálfráð viðbrögð Það voru nánast ósjálfráð viðbrögð breskra stjórn- valda að breiða yfir misgjörðir manns úr þeirra eigin röðum; að sólunda skattfé almennings til að tryggja orðstír kóngs og heimsveldis; að varðveita eigið tilkall til valda. Þessi sömu ósjálfráðu viðbrögð sjást nú hjá þeim sem berjast hatrammlega í ræðu og riti gegn dómi Mannréttindadómstólsins. Fáum dylst hvar hagsmunir almennings liggja í Landsómsmálinu. Til að „styrkja sjálfstæði réttarins og auka trú fólks á dómstólum landsins“ þarf einfaldlega að hlíta dómnum og stöðva í eitt skipti fyrir öll pólitísk afskipti stjórnmálamanna af skipunum dómara, böl sem Íslendingar hafa þurft að búa við allt of lengi. Um hagsmuni hverra talar forsætisráðherra? Við- brögð stjórnvalda við dómi Mannréttindadómstólsins munu marka trúverðugleika íslenskra dómstóla um ókomna tíð. Munu þau standast prófið – eða verða það ósjálfráð viðbrögð ráðamanna að breiða yfir misgjörð- ir manns úr þeirra eigin röðum, að sólunda skattfé almennings til að tryggja orðstír Sjálfstæðisflokksins og að varðveita eigið tilkall til valda? Böl Íslendinga Endataflið virðist loksins hafið hjá WOW air en slitnað hefur upp úr viðræðum við bandaríska fjárfestingarsjóðinn Indigo Partners. Horft í baksýnisspegilinn má segja að flest hafi bent til þess að sú yrði raunin í nokkurn tíma. Á fimmtudagskvöld var tilkynnt að WOW air og Icelandair hefðu hafið viðræður aftur. Fyrirséð var að sú tilkynning myndi valda miklum sviptingum á hlutabréfaverði Icelandair. Bréf félagsins í Kauphöllinni hækkuðu skarpt í gær, en bréf annarra félaga lækkuðu, enda fregnir af rekstrarvandræðum WOW air ofan í verkfallsástand áhyggjuefni fyrir markaðinn í heild. Við erum farin að þekkja þessa hringrás, enda hefur WOW róið lífróður um margra mánaða skeið, og markaðurinn sveiflast með. Það sem er hins vegar nýtt í þetta skiptið, er að í tilkynningu Icelandair til Kauphallarinnar frá því á fimmtudag fylgdu skilaboð frá stjórnvöldum. Þar kom fram að stjórnvöld fylgist grannt með framvindunni og bindi vonir við að við- ræður félaganna muni skila farsælli niðurstöðu. Varla þýðir þetta annað en að endaleikurinn sé raunverulega hafinn. Í vikunni var sagt frá því hér í blaðinu að WOW Air hefði farið fram á að ríkið myndi ábyrgjast tilteknar skuldir félagsins. Fjármálaráðherra hefur ítrekað sagt að slíkt komi ekki til greina. Ríkið ábyrgist ekki skuldir einkaaðila. Félögin tvö gefa sér ekki langan tíma til verksins en stefnt er á að viðræðunum verði lokið á mánudaginn. Úrslitin ráðast því líklega um helgina, klukkan tifar. En hverjir eru kostirnir ef litið er blákalt á málið? Væntanlega eru engar líkur á því að Icelandair taki yfir kennitölu og rekstur WOW í núverandi mynd án aðkomu ríkisins, til dæmis í formi fyrrgreindrar ábyrgðar. Áhættan væri einfaldlega alltof mikil og tíminn til að ganga úr skugga um helstu áhættuþætti of skammur. Án aðkomu ríkisins er því væntanlega eina færa leiðin til skamms tíma að Icelandair kaupi lífvænlegar eignir úr búi WOW, sem síðan verði sett í skiptameð- ferð. Þar er væntanlega með nokkurri einföldun um að ræða flugvélasamninga félagsins og vörumerkið. Annað verði látið lönd og leið. Sú leið kann þó að reynast torfær sömuleiðis enda samningsstaða leigu- sala Airbus-vélanna sterkari en áður vegna vandræða keppinautarins Boeing. Þótt saga WOW sé sennilega að fá sorglegan endi, er ekki þar með sagt að stjórnendur og þá sérstaklega stofnandinn sjálfur eigi að læðast með veggjum. Skúli Mogensen hefur lagt allt undir í ævintýrið og átt stóran þátt í íslenska ferðamannavorinu. Ávinningurinn af því er varanlegur þótt mögulega muni hægjast eilítið á um stund. Þeir sem tefla djarft, geta uppskorið ríkulega en líka lent illa í því. Samfélagið þarf á slíku fólki að halda. Við munum fylgjast með um helgina með öndina í hálsinum. Hið jákvæða er að nú loks virðist von til þess að botn fáist í málið, og því gæti óvissuþáttunum í íslensku efnahagslífi fækkað um einn. Neyðarlending 2 3 . M A R S 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R16 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN 2 3 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :4 6 F B 1 2 8 s _ P 1 2 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 1 1 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 A 0 -D 2 B C 2 2 A 0 -D 1 8 0 2 2 A 0 -D 0 4 4 2 2 A 0 -C F 0 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 1 2 8 s _ 2 2 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.