Fréttablaðið - 23.03.2019, Page 18

Fréttablaðið - 23.03.2019, Page 18
Nýjast Tindastóll - Þór Þ. 112-105 Stigahæstir: Philip Alawoya 27, Pétur Rúnar Birgisson 24/10 stoðsendingar, Danero Thomas 19/12 fráköst, Dino Butorac 18, Brynjar Þór Björnsson 11 - Nikolas Tomsick 39, Halldór Garðar Hermannsson 18, Kinu Rochford 16, Jaka Brodnik 15, Ragnar Örn Bragason 11. Tindastóll leiðir einvígi liðanna 1-0 en vinna þarf þrjá leiki til að komast áfram. Keflavík - KR 76-77 Stigahæstir: Mindaugas Kacinas 25/11 frá- köst, Hörður Axel Vilhjálmsson 21, Michael Craion 17/16 fráköst, Gunnar Ólafsson 7, Ágúst Orrason 3 - Julian Boyd 33/11 fráköst, Kristófer Acox 18, Mike DiNunno 11, Finnur Atli Magnússon 9, Jón Arnór Stefánsson 6 KR leiðir einvígi liðanna 1-0 en vinna þarf þrjá leiki til að komast áfram. Domino’s-deild karla Átta liða úrslit Undankeppni EM 2020 A-riðill England - Tékkland 5-0 1-0 Raheem Sterling (24.), 2-0 Harry Kane, víti (45+2), 3-0 Sterling (62.), 4-0 Sterling (68.), 5-0 Tomas Kalas, sjálfsm. (84.). Búlgaría - Svartfjallal. 1-1 0-1 Stefan Mugosa (50.), 1-1 Todor Nedelev, víti (80.). Staðan: England 3, Búlgaría 1, Svartfjalla- land 1, Kósóvó 0, Tékkland 0. B-riðill Portúgal - Úkraína 0-0 Lúxemborg - Litháen 2-1 0-1 Fedor Cernych (14.), 1-1 Leandro Bar- reiro (45.), 2-1 Gerson Rodrigues (55.) Staðan: Lúxemborg 3, Portúgal 1, Úkraína 1, Serbía 0, Litháen 0. H-riðill Andorra - Ísland 0-2 0-1 Birkir Bjarnason (22.), 0-2 Viðar Örn Kjartansson (80.) Albanía - Tyrkland 0-2 0-1 Burak Yilmaz (21.), 0-2 Hakan Cal- hanoglu (55.). Moldóva - Frakkland 1-4 0-1 Antoine Griezmann (24.), 0-2 Raphael Varane (27.), 0-3 Olivier Giroud (36.), 0-4 Kylian Mbappé (87.), 1-4 Vladimir Ambros Staðan: Frakkland 3, Ísland 3, Tyrkland 3, Albanía 0, Andorra 0, Moldóva 0. Birkir Bjarnason Birkir var dug- legur inni á miðjunni og sinnti hlut- verki sínu vel. Ógnaði með hlaupum inn á vítateiginn og braut ísinn fyrir Ísland með snyrtilegu skallamarki eftir að hafa hótað því stuttu áður. Fór í annað hlutverk þegar Aron Einar fór af velli um miðbik síðari hálfleiks og leysti það af vel. Skilaði hlutverki sínu sem miðju- maður með stakri prýði allan leikinn. ✿ Maður leiksins Ísland Frammistaða Íslands (4-4-2) Hannes Þór Hallórsson 6 Birkir Már Sævarsson 8 Kári Árnason 6 Ragnar Sigurðsson 7 Ari Freyr Skúlason 7 Jóhann Berg Guðmundsson 6 (83. Arnór Ingvi Traustason -) Aron Einar Gunnarsson 6 (63. Rúnar Már Sigurjónsson 6) *Birkir Bjarnason 8 Arnór Sigurðsson 6 Gylfi Þór Sigurðsson 7 Alfreð Finnbogason 6 (70. Viðar Örn Kjartansson 7) ✿ Undankeppni EM Andorra 0 2- Aðalfundur Fylkis Miðvikudaginn 10. apríl 2019 kl. 19:30 er boðað til aðalfundar Íþróttafélagsins Fylkis í samkomusal Fylkishallar. Dagskrá: Hefðbundin aðalfundastörf samkvæmt lögum félagsins Önnur mál. Aðalstjórn Fylkis SÓLARFILMUR! Lausnir fyrir heimili og fyrirtæki Sundaborg 3 104 Reykjavík 777 2700 xprent@xprent.is Selfyssingurinn Viðar Örn var fljótur að láta til sín taka eftir að hafa komið inn á í Andorra. MYND/HAFLIÐI BREIÐFJÖRÐ HANDBOLTI Ísland mætti Póllandi í fyrstu umferð á fjögurra liða æfingamóti í Gdansk í gær. Loka- tölur í leiknum urðu 21-19 Póllandi í vil eftir jafnan og spennandi leik. Staðan í hálfleik var jöfn 11-11 og var leikurinn jafn til loka leiksins. Þegar skammt var eftir af leiknum var jafnt 18-18 en Pólverjar voru sterkari aðilinn á lokakafla leiksins og unnu tveggja marka sigur. Ísland mætir Argentínu á morgun laugardag og loks Slóvakíu á sunnu- daginn. Leikirnir eru liður í undir- búningi fyrir umspilsleiki Íslands gegn Spáni í byrjun sumars fyrir HM sem fram fer í Japan í lok þessa árs. – hó Flottur leikur þrátt fyrir tap FÓTBOLTI Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu vann fyrsta leik sinn í undankeppni EM 2-0 gegn Andorra ytra í gær. Með því lauk 432 daga bið A-landsliðsins eftir sigri í sextánda leiknum síðan Ísland vann Indónes- íu í æfingarleik. Liðið slapp með því við að bæta 39 ára gamalt met þegar karlalandsliðið lék sautján leiki í röð án sigurs. Þetta var sjötta viðureign Íslands og Andorra og hefur Ísland unnið alla leikina. Um leið vann íslenska liðið fyrsta sigur sinn undir stjórn hins sænska Eriks Hamrén og vann fyrsta leikinn í undankeppni stór- móts fjórða skiptið í röð. Mikið hafði verið ritað og rætt um aðstæðurnar í Andorra fyrir leik. Leikurinn fór fram á gervigrasi og lýsti Hamrén á blaðamannafundi yfir áhyggjum af því að leikir á þessu stigi færu fram á gervigrasi. Fyrir vikið var talið óvíst hvort leikmenn Íslands sem hafa verið að glíma við meiðsli myndu byrja í gær en Hamrén tefldi fram sterku byrjunarliði. Arnór Sigurðsson var kominn inn í byrjunarliðið en ann- ars var liðið líkt og það hefur verið undanfarin ár. Freyr Alexandersson, aðstoðar- þjálfari íslenska landsliðsins, lýsti því yfir að Andorra myndi reyna að hægja á leiknum, pirra íslenska liðið Leystu verkefnið fagmannlega Karlalandsliðið vann fyrsta leik sinn í undan- keppni EM 2-0 gegn Andorra ytra í gær. Hamrén tefldi fram sterku liði sem tókst á við verkefnið af mikilli fagmennsku og vann sannfærandi sigur. og komast inn í hausinn á þeim frá fyrstu mínútu og mátti sjá það strax í upphafi. Allar aðgerðir Andorra tóku langan tíma og voru þeir sífellt að suða í dómaranum allan fyrri hálfleikinn. Ísland skapaði sér fín færi strax í byrjun og fékk Alfreð Finnbogason frábært færi í upphafi leiks en skaut yfir af stuttu færi. Ísland hélt áfram að sækja og komst yfir á 22. mínútu þegar Birkir Bjarnason skallaði í netið af stuttu færi eftir hornspyrnu þar sem Ragnar Sigurðsson fleytti boltanum á Birki. Við það var Ísland komið með markið sem þurfti til að róa taug- arnar. Íslenska liðið stýrði leiknum áfram og komst Gylfi Þór Sigurðs- son nálægt því að bæta við marki um miðbik seinni hálf leiksins en Josep Gomes, markvörður Andorra, varði frá Gylfa. Var staðan því 1-0 fyrir Ísland þegar liðin gengu til búningsklef- anna í hálfleik. Ljóst var að Ísland var með mun betra lið og með for- skotið en vantaði annað mark til að drepa baráttuandann hjá leik- mönnum Andorra. Á meðan for- skotið er aðeins eitt mark er mögu- leiki á jöfnunarmarki alltaf til staðar. Ísland hélt áfram að stý ra leiknum í seinni hálfleik og virtist Andorra hafa lítinn áhuga á að ná jöfnunarmarki í upphafi síðari hálf- leiks. Aron Einar og Alfreð sem hafa verið að glíma við meiðsli komu af velli um miðbik seinni hálfleiks enda Ísland að stýra leiknum frá A til Ö þó að hann hafi ekki verið mikið fyrir augað. Viðar Örn Kjartansson, sem kom seint til móts við landsliðshópinn eftir að Björn Bergmann Sigurðar- son þurfti að draga sig út vegna meiðsla, kom inn fyrir Alfreð og var f ljótur að stimpla sig inn. Þegar Birkir Már kom með fyrirgjöf inn á nærstöng var Viðar Örn mættur og skoraði með bylmingsskoti á nærstöng. Óverjandi fyrir Gomes í marki Andorra og Viðar f ljótur að minna á sig með þriðja marki sínu fyrir A-landsliðið í tuttugasta landsleiknum sem gerði út um leik- inn. Leikurinn fer ekki í sögubækurn- ar fyrir skemmtanagildi en íslenska liðið leysti verkefnið af mikilli fagmennsku. Þeir létu leikmenn Andorra ekki komast upp með að leysa leikinn upp og mark Birkis í upphafi reyndist gullsígildi. Nú tekur við annað verkefni á hinum endanum þegar Ísland mætir ríkjandi heimsmeisturum Frakklands. Það var skylda að taka stigin þrjú í Andorra en nú skiptir liðið um ham og þarf að verjast og berjast fyrir stigum eins og lífi sínu á mánudaginn gegn einu besta liði heims. kristinnpall@frettabladid.is Birkir Már Sævarsson lék í gær sinn 89. landsleik. Með því komst hann upp að hlið Hermanns Hreiðars- sonar í annað sæti yfir flesta landsleiki. Aðeins Rúnar Kristinsson (104) hefur leikið fleiri leiki fyrir karlalandsliðið. 2 3 . M A R S 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R18 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT 2 3 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :4 6 F B 1 2 8 s _ P 1 1 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 9 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 A 0 -E 1 8 C 2 2 A 0 -E 0 5 0 2 2 A 0 -D F 1 4 2 2 A 0 -D D D 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 1 2 8 s _ 2 2 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.