Fréttablaðið - 23.03.2019, Side 26
Hatari kom, sá og sigraði í undankeppni Söng vakeppni evrópskra sjónvar psstöðva með laginu Hatrið
mun sigra. Ögrandi og öðruvísi
framkoma bæði utan sviðs og innan
var fljót að vekja athygli utan land
steinanna.
Eftir að í ljós kom að Eurovis
ion í maí næstkomandi færi fram
í Ísrael fór af stað undirskrifta
söfnun um að sniðganga keppnina
í mótmælaskyni við framkomu
Ísraelsmanna við Palestínu
menn. Sú varð ekki raunin en
margir tónlistarmenn sem
hafa tengst Eurovision, þar á
meðal Páll Óskar Hjálmtýs
son og Daði Freyr Péturs
son, neituðu að taka þátt.
Meðlimir Hatara gáfu
það út að þeir myndu nota
dagskrárvaldið til að gagn
rýna stefnu Ísraelsmanna.
Hljómsveitin hefur fengið
á sig þó nokkra gagnrýni,
bæði frá þeim sem telja
Hatara ekki vera að gera
Palestínumönnum neinn
greiða sem og þeim sem
telja skilaboðin anga af
gyðingahatri. Eru margir á
þeirri skoðun að stjórnmál eigi
ekki heima í Eurovision frekar
en á Ólympíuleikunum, enda
sé það bannað í reglum keppn
innar.
Fréttablaðið fékk til liðs
við sig Viktor Orra Valgarðs
son, stjórnmálafræðing og
áhugamann um Eurovision,
og f innska Eurovisionsér
fræðinginn Thomas Lundin til
að fara yfir þau skipti sem Euro
vision fór frá því að vera fjörug
fjölskylduskemmtun yfir í háalvar
lega pólitík.
Þegar Eurovision
varð háalvarlegt
Austurríki 2014
Sigurlag Conchitu Wurst árið
2014, „Rise like a phoenix“,
var ekki pólitískt í þröng
um skilningi en textinn,
karakterinn og framkom
an höfðu samt nokkuð
augljósa vísun í réttinda
baráttu hinsegin fólks.
Viktor segir að margir
hafi talið að laginu væri
beint sérstaklega gegn
rússneskum stjórn
völdum. „Eurovision er
náttúrulega að stórum
hluta hátíð hinsegin fólks
og rússnesk stjórnvöld
eru ömurlega íhaldssöm og
stjórn þeirra er harðstjórn
sem brýtur kerfisbundið á
mannréttindum hinsegin
fólks,“ segir Viktor. Það megi
því velta fyrir sér að þar sem
samskipti Evrópulanda við
Ísrael séu betri en við Rússa þá
verði þeir frekar fyrir barðinu
á gagnrýni. „Conchita staðfesti
þá túlkun svo að minnsta kosti
rækilega á blaðamannafundi eftir
sigurinn, þar sem hún beindi orðum
sínum til Pútíns og sagði „við erum
óstöðvandi“. Vonum að hún hafi
rétt fyrir sér.“
Georgía 2009
Það hefur komið fyrir að lögum sé
vísað úr keppni fyrir pólitísk skot
á gestgjafann. „Árið 2009, þegar
lokakeppnin fór fram í Moskvu,
valdi Georgía lagið „We don’t
wanna put in“, sem var augljóst
skot á Pútín Rússlandsforseta,“
segir Thomas.
Viktor bætir við: „Georgíska
sjónvarpið hafði áður tilkynnt að
þau myndu sniðganga keppnina í
ljósi mannréttindabrota Rússa og
brota gegn alþjóðalögum, sneru
þeirri ákvörðun síðan við og sendu
lag en þá þótti stjórnendum
textinn of pólitískur. Georgísk
stjórnvöld þvertóku fyrir það og
neituðu að breyta laginu og því
fór sem fór.“
Thomas segir að þarna hafi
Georgía gengið of langt. Hann
útilokar hins vegar að Hatara verði
vísað úr keppni. „Georgía gekk of
langt og laginu var vísað úr leik. En
það mun ekki koma fyrir ykkur, ég
lofa því!“
Finnland 2006 og Ísland 2019
Thomas er mjög hrifinn af framlagi Íslands í ár
og líkir því við sigurlag Finna árið 2006. „Ísland
er ekki að ganga of langt. Alls ekki. Við áttum
þessa sömu umræðu í Finnlandi vorið 2006
eftir að Lordi vann finnsku keppnina. Margir
héldu að okkur yrði vísað úr keppninni
eða við lentum í neðsta sæti! En við vitum
öll hvernig það endaði, með fyrsta sigri
Finna í Eurovision. Í dag elska allir Lordi,“
segir Thomas.
Viktor segir að Lordi hafi ekki verið
skot á trúarsannfæringu fólks. „Ég
held að flestir hafi upplifað satanísku
vísanirnar sem sprell, enda var öll svið
setningin og textasmíðin frekar kómísk
og skemmtileg,“ segir Viktor. Finnar
hafi frekar verið að skjóta á tepruskap
og siðavendni. „Páll Óskar var sennilega
brautryðjandinn í þeirri viðleitni árið
1997!“
Ísrael 2009
Framlag Ísraels árið 2009 snerti
á málefnum Ísraels og Palestínu.
Lagið „There must be another
way“ var flutt af söngkonunum
Noa, sem er ísraelskur gyðingur,
og Miru Awad, sem er arabískur
Ísraeli. Viktor rifjar upp að lagið
var ákall til friðsælli og mannúð
legri sambúðar gyðinga og araba
á svæðinu. „Sumir gagnrýndu
lagið fyrir að breiða yfir ömurlegt
ástandið í Palestínu en mér fannst
það fallegt, því þetta var ákveðin
viðleitni og með því að kalla á rétt
læti bentu þær um leið á órétt
lætið sem ríkir á þessum slóðum.“
Lagið komst upp úr undankeppn
inni og lenti í sjöunda sæti.
Portúgal 2017
Salvador Sobral, sem sigraði
fyrir hönd Portúgals árið 2017, olli
nokkru fjaðrafoki fyrir að nota
dagskrárvaldið til að gagnrýna
aðgerðir Evrópulanda gagnvart
hælisleitendum.
„Slæm framkoma Evrópulanda
gagnvart flóttamönnum og hælis
leitendum hefur þó verið veruleik
inn síðan fyrir 2017 og ekki margir
aðrir þátttakendur sem hafa
minnst á það á þeim tíma. Ég varð
reyndar ekki var við að það hefði
mikil áhrif á gengi hans, ég held að
fólk hafi aðallega hrifist af laginu
sjálfu, flutningnum og listrænni,
óvenjulegri týpu flytjandans,“
segir Viktor.
Það olli reyndar meira fjaðra
foki þegar Sobral skaut á aðra
keppendur fyrir innihaldsrýra
tónlist. „Það kom illa við þá sem
fylgjast með Eurovision að tala
illa um popptónlist, miklu frekar
en mannréttindabrot. Það var líka
kannski ekki gott dæmi um göf
ugan sigurvegara að skjóta svona
á aðra keppendur einmitt á því
andartaki sem hann var að taka
við verðlaunum.“
Úkraína 2016
Thomas og Viktor eru á báðum
áttum um hvort pólitísk skilaboð
almennt hjálpi til við að sigra
í Eurovision. „Ég hefði senni
lega svarað því neitandi fyrir
keppnina árið 2016, þegar Jamala
frá Úkraínu vann með lagi um
nauðungarflutninga Rússa á Krím
töturum sem þau héldu fram að
væri bara vísun í sögulega atburði
en auðvitað talaði það mjög inn í
átökin milli Úkraínu og Rússlands
á Krímskaga. Og þó það sé erfitt
að fullyrða um slíka hluti virtist
mér alveg augljóst að lagið græddi
verulega á því að fólk veitti því at
kvæði til að styðja þann málstað,“
segir Viktor.
Thomas vill ekki segja að póli
tísk skilaboð hjálpi beinlínis til við
að vinna keppnina. „En nú, þegar
flest lönd þurfa að komast upp úr
undankeppninni þá hjálpar það
svo sannarlega til að vera öðru
vísi. Lagið vinnur kannski ekki, en
skilaboð geta komið þjóðum inn í
lokakeppnina og fengið helling af
stigum.“
Viktor er viss um að lag Úkraínu
hafi sigrað á þeim forsendum.
„Þó lagið hafi verið ágætt og vel
sungið þá fannst mér persónulega
allavega erfitt að sjá að það hefði
eitthvað í rússneska eða ástralska
lagið að gera frá tónlistarlegu
sjónarhorni.“
Thomas bætir við: „Oftast er
sigurvegarinn eitthvert atriði sem
öllum líkar við og allir skilja. Það
fær atkvæði frá öllum – ungum og
gömlum, gagnkynhneigðum og
hinsegin fólki, körlum og konum,
austur og vestur, norður og suður.
En er samt öðruvísi á einhvern
hátt, þannig að fólk muni eftir því
þegar kemur að því að kjósa.“
Margir kannast við
finnska söngvarann og
Eurovisionsérfræð
inginn Thomas Lundin
úr upphitunarþáttum
sænska sjónvarpsins
fyrir söngvakeppnirnar
2004 til 2007. Þar fór
hann yfir framlögin
ásamt Eiríki Haukssyni
og fleirum.
Viktor Orri er ekki bara
stjórnmálafræðingur,
heldur er hann mikill
áhugamaður um Euro
vision. Hér má sjá hann
í gervi lettneska kepp
andans frá árinu 2000.
Þess má geta að það lag
fékk 10 stig frá Íslandi.
Viktor Orri Valgarðs-
son og finnski Euro-
vision-sérfræðingur-
inn Thomas Lundin
spá í pólitískt kapp
sem hleypur í þátt-
takendur í keppninni.
Ari
Brynjólfsson
arib@frettabladid.is
2 3 . M A R S 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R26 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
3
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:4
6
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
A
1
-1
7
D
C
2
2
A
1
-1
6
A
0
2
2
A
1
-1
5
6
4
2
2
A
1
-1
4
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
1
2
8
s
_
2
2
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K