Fréttablaðið - 23.03.2019, Side 29
EFNAHAGSREIKNINGUR (í þús.kr.): 31/12/2018 31/12/2017
Eignarhlutir í félögum og sjóðum 59.516.697 57.480.860
Skuldabréf 98.067.722 91.607.031
Innlán og bankainnstæður 714.153 583.733
Kröfur 959.398 995.049
Aðrar eignir og rekstrarfjármunir 186.113 182.369
Samtals 159.444.083 150.849.042
Skuldir -36.669 -27.770
Séreignarsjóður, Söfnunarleið I og II 2.657.487 2.494.871
Samtals alls 162.064.901 153.316.143
YFIRLIT UM BREYTINGAR Á HREINNI EIGN TIL GREIÐSLU LÍFEYRIS:
Iðgjöld 5.003.574 4.448.976
Lífeyrir og endurhæfingarsjóður -4.717.270 -4.317.925
Fjárfestingartekjur 8.844.575 10.568.191
Rekstrarkostnaður -382.121 -346.536
Hækkun á hreinni eign á tímabilinu 8.748.758 10.352.706
Hrein eign frá fyrra ári 153.316.143 142.963.437
Samtals 162.064.901 153.316.143
LÍFEYRISSKULDBINDINGAR: 31/12/2018 31/12/2017
Eignir umfram áfallnar skuldbindingar -2.719.579 -864.846
Í hlutfalli af áföllnum skuldbindingum -1,7% -0,6%
Eignir umfram heildarskuldbindingar -2.798.716 -1.696.323
Í hlutfalli af heildarskuldbindingum -1,3% -0,8%
Sjóðurinn hefur aldrei skert áunnin réttindi sjóðfélaga.
KENNITÖLUR: 31/12/2018 31/12/2017
Nafnávöxtun 5,5% 7,2%
Hrein raunávöxtun 2,2% 5,3%
Hrein raunávöxtun 5 ára meðaltal 4,1% 4,9%
Hrein raunávöxtun 10 ára meðaltal 4,4% 2,8%
Hrein raunávöxtun 20 ára meðaltal 4,2% 4,4%
Fjöldi virkra sjóðfélaga 6.564 6.532
Fjöldi sjóðfélaga 141.518 139.350
Fjöldi lífeyrisþega 15.576 14.700
Rekstrarkostnaður í % af eignum 0,2% 0,2%
Eignir í íslenskum krónum 71,7% 73,4%
Eignir í erlendum gjaldmiðlum 28,3% 26,6%
Yfirlit um afkomu 2018
ÁRSFUNDUR
2019
Ársfundur sjóðsins verður haldinn á
Grand hótel Reykjavík, Sigtúni 38,
8. apríl 2019 og hefst kl. 16.30.
Í stjórn sjóðsins eru:
Guðmundur Árnason, formaður
Hrafn Magnússon, varaformaður
Aðalbjörg Lúthersdóttir
Einar Sveinbjörnsson
Reynir Þorsteinsson
Svana Helen Björnsdóttir
Þórunn Hulda Sveinbjörnsdóttir
Framkvæmdastjóri er:
Sigurbjörn Sigurbjörnsson
ÁVÖXTUN SÉREIGNARDEILDAR 2018:
Nafnávöxtun Söfnunarleiðar I sem er innlánsreikningur ásamt stuttum
tryggum skuldabréfum var 4,9% eða 1,6% hrein raunávöxtun.
Nafnávöxtun Söfnunarleiðar II sem inniheldur ýmis verðbréf nam 6,2% eða
2,8% hreinni raunávöxtun. Er þetta sú ávöxtun sem rétthafar njóta.
Heildareignir séreignardeildarinnar eru 2.657 milljónir króna í árslok 2018.
SJÓÐFÉLAGAR:
Sjóðurinn er ætlaður öllum launþegum og sjálfstætt starfandi mönnum sem
eiga ekki kjarasamningsbundna aðild að öðrum lífeyrissjóðum. Hann getur
því verið góður kostur fyrir ýmsa aðila sem þurfa að velja sér lífeyrissjóð.
Sjóðurinn byggir á samtryggingu og séreign.
Borgartún 29 · 105 Reykjavík · Sími 510 7400 · www.sl.is
Ljósmyndari Fréttablaðsins leit við í gleði vina og aðstandenda fólks með Downs-heilkenni í vikunni.
staklega börn. Það var eitt skipti
sem sjö ára vinur bróður hans kom
heim til okkar að leika og spurði
mig bara beint út hvort hann væri
fatlaður.
Ég útskýrði eftir bestu getu hvað
það þýddi að vera með Downs heil-
kenni, sem hann meðtók og svo
höfum við ekkert rætt það frekar.
Hann er algjör bræðari og hreyfir
bæði við börnum og fullorðnum.
Hann er ofsalega glaður, alltaf stutt
í brosið og klappar eins og enginn
sé morgundagurinn. Svo elskar
hann að vera innan um fólk og
hlusta á tónlist. Algjör stuðpinni.“
Gott að vera í litlu bæjarfélagi
Hún segist ekki hafa orðið vör við
alvarlega fordóma eða vanþekk-
ingu. „Það hafa þó margir nefnt að
þetta séu svo glaðir einstaklingar.
Alltaf brosandi og svo kátir. Miðað
við það sem ég hef kynnt mér er
það ekki alveg rétt. Einstaklingar
með Downs eru jafn mismunandi
og ég og þú, geta líka orðið reiðir,
pirraðir og leiðir.
Ég fæ reyndar mjög oft að heyra
um Emil Daða: Er hann alltaf
svona glaður? Er hann alltaf svona
góður? Það er því ekkert skrýtið að
fólk haldi að þessi gleði og kátína
tengist heilkenninu,“ segir Sandra
Björg sem segir fólk mjög duglegt
að spyrja hvernig Emil hafi það.
„Fyrstu 4 mánuðir lífs hans voru
erfiðir. Hann fór í stóra aðgerð þar
sem hálfur ristillinn var fjarlægður
og þurfti hann að vera með stóma
í 6 mánuði. Í nóvember var kerfið
tengt aftur og allt gengur mjög vel.
Fyrir utan þessa aðgerð er Emil
bara smábarn sem þarf á sömu
umönnun að halda og önnur börn.
Mér finnst ég annars ekki hafa
orðið vör við óöryggi hjá fólki.
Hann er svo ungur ennþá. Hann
er búinn að vera heima hjá mér
síðasta árið og því lítið reynt á aðra
en mig og nánustu fjölskyldu mína,
sem hefur verið mér ómetanlegur
stuðningur.
Emil byrjar í leikskóla í sumar
og þá má ef laust búast við ein-
hverjum viðbrögðum frá bæði
börnum og foreldrum. Ég held að
það vinni með okkur að við erum
búsett í litlu bæjarfélagi,“ segir
Sandra Björg.
Hann lifi góðu lífi
Hún fær einnig stuðning með því
að vera í góðu sambandi við for-
eldra og börn sem eru fædd 2017
og 2018. „Við höfum hist nokkrum
sinnum og höldum Facebook-síðu
þar sem við ræðum ýmis málefni
og veitum stuðning. Downs félag-
ið heldur einnig ýmsa viðburði þar
sem fjölskyldur og aðstandendur
safnast saman.“
Sandra Björg segir að miðað við
það sem hún sé búin að kynna sér
þá ætti Emil að geta gert allt það
sem hann langar til þegar hann
vex úr grasi. „Ég óska þess svo
innilega að hann geti lifað góðu
og fordómalausu lífi. Verði heilsu-
hraustur, geti fundið sér vinnu við
hæfi og átt sitt eigið heimili.
Það væri líka afskaplega fallegt
ef hann myndi eignast góða vin-
konu,“ segir hún en minnir á að
auðvitað séu ýmis baráttumál.
Skortur á atvinnu og húsnæði
„Það sem hefur verið ofarlega á
baugi síðasta árið er skortur á
atvinnu og húsnæði fyrir einstakl-
inga með Downs. Því þarf að fylgja
eftir. Einnig er mikilvægt að halda
áfram að sporna við fordómum og
stuðla að fræðslu.
Ég er ein af þeim sem skömmuðu
handritshöfunda Ófærðar fyrir
ónærgætna textasmíð.
Mörg um fannst ég og þær
mæður sem tjáðu sig vera alltof
viðkvæmar og gagnrýnin ósann-
gjörn. Ég geri mér alveg grein fyrir
því að þetta er bara sjónvarps-
þáttur og persónan átti að vera
algjör óþokki. Því miður er bara
fólk þarna úti sem gefur skít í allt
og alla og finnst fyndið að tileinka
sér svona frasa. Að þessi setning
geti mögulega orðið að einhverju
sem fleygt er fram í gríni, því tek ég
ekki létt,“ segir Sandra Björg sem
hingað til hefur ekki verið mikið
fyrir það að f lagga skoðunum
sínum opinberlega.
„En þennan dag gat ég ekki
setið á mér, ég fann hversu mikið
þetta skipti mig máli. Ég er búin
að f inna mitt hjartans mál. Ég
var valin í þetta hlutverk, að vera
mamma hans Emils Daða. Eins gott
að klúðra því ekki,“ segir hún og
segir það að hafa eignast Emil hafa
kennt sér ótrúlega margt. „Fyrst
og fremst þolinmæði. Við lifum í
núinu, tökum einn dag í einu þar
sem við njótum lífsins og fögnum
litlu sigrunum.“
H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 29L A U G A R D A G U R 2 3 . M A R S 2 0 1 9
2
3
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:4
6
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
A
0
-F
5
4
C
2
2
A
0
-F
4
1
0
2
2
A
0
-F
2
D
4
2
2
A
0
-F
1
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
2
8
s
_
2
2
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K