Fréttablaðið - 23.03.2019, Page 38

Fréttablaðið - 23.03.2019, Page 38
Hljómtæki í úrvali Fiðlur og gítarmagnarar í úrvali Rafmagnsgítar Rafmagnsbassi Klassískur gítar KassabassiKassagítar Heyrnartól Míkrafónar í úrvali Þráðlaus míkrafónn Gítarinn ehf Stórhöfða 27 • 110 Reykjavík • S. 552 2125 • gitarinn@gitarinn.is • gitarinn.is Sömgkerfi Ukulele Hljómborð í úrvali Kajun tromma ðfæri Inga Harðardóttir er æsku­lýðsfulltrúi Hallgrímskirkju og leiðir fermingarfræðslu kirkjunnar. Hún segir að fræðslan fari fram á miklu umbrota­ skeiði í lífi krakkanna og það sé þýðingarmikið að eiga samtal við fólk þegar þörf er á jákvæðum stuðningi, en mörg fermingar­ börn eru óörugg og finnst eins og þau fái ruglandi skilaboð frá sam­ félaginu. Hún segir að ef miðað sé við það unga fólk sem hún hittir sé framtíðin sannarlega björt. Fermingarfræðslan í Hallgríms­ kirkju hefst að hausti og svo hitt­ ist hópurinn einu sinni í viku yfir veturinn. „Unglingarnir taka líka þátt í messum, fara í helgarferð í Vatnaskóg, mæta í matarboð þar sem boðið er upp á mat eins og María gæti hafa eldað fyrir Jesú og safna fyrir Hjálparstarf kirkjunn­ ar,“ segir Inga. „Fermingin fer svo fram að vori í hátíðlegri messu. Fermingarfræðslan fer fram á tíma þar sem ungar manneskjur standa á fallegum þröskuldi og eru bæði börn og fullorðin á sama tíma,“ segir Inga. „Það er margt sem togast á í þeim á þessum tíma, margt er spennandi og annað er erfitt, en f lest eru þau óörugg. Fermingarfræðslan er tilboð kirkjunnar til unga fólksins um samtal og að vera samferða á þessum tíma. Hún hefur breyst mikið á síðustu árum og áherslan hefur færst frá utanbókarlærdómi yfir í áherslu á samtal, sjálf­ styrkingu og samskiptafærni, allt byggt á kristnum gildum,“ segir Inga. „Fermingarbörnin læra um trú, Guð, bænina, Biblíuna, náungakærleika, sorg, samskipti, táknmyndir, umhverfisvernd og margt f leira.“ Inga segir þetta dýrmætt tæki­ færi til að nesta unga fólkið með þeim gildum sem skipta máli. „Ég held að fermingarfræðslan geti verið mjög þýðingarmikil,“ segir hún. „Því þarna fáum við að eiga samtal við fólk á því tímabili í líf­ inu þar sem það þarf á jákvæðum stuðningi að halda.“ Kröfur og væntingar annarra íþyngjandi „Það er margt sem er að gerast í lífi og þroska unglinga í 8. bekk. Þau eru að takast á við breytta sjálfsmynd og samskipti og vina­ sambönd verða oft viðkvæmari en áður,“ segir Inga. „Við tölum um vonir og drauma þeirra sjálfra og svo tala þau mikið um hvað þeim þykja kröfur og væntingar ann­ arra vera íþyngjandi. Þeim finnst stundum foreldrar, vinahópar og samfélagið allt gefa þeim ruglandi og þversagnakennd skilaboð um útlit, samskipti og fleira. Í upphafi fermingarfræðslunnar tala sum þeirra um að þau viti ekki hvort þau trúi nógu mikið, en það er ekki til neinn mælikvarði á það. Hvert og eitt okkar á í persónu­ legu sambandi við æðri mátt og það er ekki okkar að mæla eða dæma það,“ segir Inga. „Við getum hins vegar talað um það sem þeim finnst f lókið og erfitt, og verið með þeim í þeirra leit að svörum. Fermingin í sjálfu sér er ein leið til að segja já við góðum gildum, já við að vilja tilheyra kirkjunni og já við að Guð geti verið hluti af lífinu. Hjá flestum fjölskyldum er fermingin líka tækifæri til að leyfa unglingnum að vera í aðal­ hlutverki á jákvæðan hátt,“ segir Inga. „Í gegnum undirbúninginn og stóra daginn sjálfan finna fermingarbörnin að þau eru ótrú­ lega mikilvæg, dásamleg eins og þau eru og elskuð af fjölda fólks.“ Grunnregla Jesú á alltaf við Inga segir að sér finnist lífs­ afstaðan sem Jesús boðaði eiga Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.is Ábyrgðarmaður: Kristín Þorsteinsdóttir Sölumaður auglýsinga: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, fullt erindi við fólk á öllum aldri. „Ég held að ef maður leggur áherslu á kærleika, sannleika, trú og von í lífinu geri það alla að sterkari ein­ staklingum,“ segir hún. „Boðorðin eru góður grunnur í samskiptum en ennþá betra er að Jesús ein­ faldaði þetta niður í eina grunn­ reglu – elskaðu náungann eins og sjálfa/n þig! Gullna reglan stendur líka alltaf fyrir sínu – að koma fram við aðra eins og maður vill láta koma fram við sig,“ segir Inga. „Samskipti Jesú við samferðafólk sitt eru síðan góð fyrirmynd í að koma fram af virðingu við allar manneskjur, sama hverrar þjóðar, hvers kyns eða hvar í þjóðfélagsstiganum þær standa.“ Skiptir mestu að vera góð manneskja „Í fermingarfræðslunni okkar leggjum við áherslu á að trúna eigi hver og einn í sínu brjósti og það sé hvers og eins að rækta hana, en að gott sé að gera það í samfélagi við aðra í kirkjunni. Við tölum líka um að það sé eðlilegt að ganga gegnum tímabil þar sem trúin skiptir mismiklu máli,“ segir Inga. „Við kennum þeim líka að trúin tengir okkur í tvær áttir, annars vegar við Guð og hins vegar við annað fólk og segjum þeim að trúin sé engin töfralausn sem leysi vandamál eða erfiðleika, en að hún geti verið mikilvægt haldreipi á erfiðum tímabilum.“ Inga segir að þó að fyrirtæki og fjölmiðlar séu mjög upptekin af fermingargjöfunum verði hún ekki vör við að fermingarbörnin velti þeim mikið fyrir sér og segir þau hófstillt í væntingum. „Mér finnst ég hins vegar stundum heyra á þeim að þau séu hrædd um að fá miklu minni peninga en aðrir og koma þannig illa út í samanburði, en það gefur okkur tækifæri til að ræða gildi gjafanna, hvort peningar og dót geri okkur hamingjusöm og hversu miklu máli veraldlegar eigur skipta,“ segir Inga. „Þau komast yfirleitt að þeirri niðurstöðu að það sé auðvitað gaman að eiga smá pening og að grunnöryggi þurfi að vera til staðar, en það skipti mestu máli að vera góð manneskja, lifa góðu lífi og koma vel fram við hvert annað.“ Framtíðin er björt „Þegar fermingarbörnin eru spurð finnst þeim ferðalagið í Vatnaskóg yfirleitt standa upp úr og síðan finnst f lestum bara mjög gaman að mæta í tímana,“ segir Inga, sem er ekki í vafa um hvað henni finnst skemmtilegast við að sinna fermingarfræðslunni. „Það er að fá að eiga öll þessi frábæru samtöl við hugsandi og hugmyndaríka krakka sem spyrja gagnrýnna spurninga og koma með ný sjónar­ horn á málefnin. Miðað við það unga fólk sem ég fæ að hitta í fermingarfræðslunni og unglinga­ starfinu get ég ekki annað sagt en að framtíðin sé björt!“ Að lokum vill Inga óska öllum fermingarbörnum til hamingju með áfangann: „Til hamingju með ykkur sjálf, elsku fermingarbörn!“ Inga segir að það sem henni finnst skemmtilegast við fermingar- fræðsluna sé að fá að spjalla við hugsandi og hugmynda- ríka krakka sem spyrja gagnrýnna spurninga og koma með ný sjónarhorn á málefnin. MYND/ANTON BRINK Á æskulýðsdeginum í Hallgrímskirkju voru fermingarbörn í stóru hlutverki og héldu meðal annars kökusölu til styrktar Hjálparstarfi kirkjunnar. Framhald af forsíðu ➛ Hvert og eitt okkar á í persónu- legu sambandi við æðri mátt og það er ekki okkar að mæla eða dæma það. Oddur Freyr Þorsteinsson oddurfreyr@frettabladid.is 2 KYNNINGARBLAÐ 2 3 . M A R S 2 0 1 9 L AU G A R DAG U RFERMINGARGJAFIR 2 3 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :4 6 F B 1 2 8 s _ P 0 9 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 8 6 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 A 1 -4 E 2 C 2 2 A 1 -4 C F 0 2 2 A 1 -4 B B 4 2 2 A 1 -4 A 7 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 1 2 8 s _ 2 2 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.