Fréttablaðið - 23.03.2019, Síða 110
Tilboðsblöð og nánari upplýsingar má finna á reykjavik.is/lodir
Möguleg útfærsla bygginga/tölvumynd Arkís
Reykjanesbraut
Atvinnulóðir á eftirsóttum stað
Lóðir til sölu
Reykjavíkurborg óskar eftir kauptilboðum í byggingarétt á tveimur
atvinnulóðum við Bústaðaveg 151.
Við Bústaðaveg 151B er heimilt að byggja 3.815 m2 atvinnuhúsnæði
auk bílakjallara.
Við Bústaðaveg 151C er heimilt að byggja 3.673 m2 atvinnuhúsnæði
auk bílakjallara.
Skilafrestur tilboða til þjónustuvers Reykjavíkurborgar
að Borgartúni 12-14, er til kl. 14:00 þann 10. apríl 2019.
B
C
FA
R
03
19
-0
5
Í sumar eru 100 ár liðin frá dauða Jóhanns Sigurjónssonar skálds sem var einn af fjöl-mörgum skáldum og rithöf-undum sem dóu úr berklum
eða tæringu. Félag áhugamanna um
sögu læknisfræðinnar efnir af þessu
tilefni, í samvinnu við Íslensku- og
menningardeild Háskóla Íslands, til
málþings um berkla og menningu í
dag á milli klukkan 10 – 13 í Þjóð-
minjasafninu.
„Að vera skáld með berkla þótti
mjög fínt þannig að þetta var svo-
lítið sjúkdómur fína og gáfaða fólks-
ins, sérstaklega gáfaða fólksins, á 19.
öldinni,“ segir Óttar Guðmunds-
son geðlæknir sem ætlar, ásamt
Jóhönnu V. Þórhallsdóttur söng-
konu, að fjalla um berkla í óper-
unum La bohème, eftir Puccini, og
La traviata, eftir Verdi.
„Við kynnum þessar tvær óperur
og verðum með tóndæmi en báðar
söguhetjurnar deyja í óperulokin
hóstandi í berklum. Þannig að þetta
er rosalega dramatískt.
Að öllu gamni slepptu leggur
Óttar þó áherslu á að berklar voru
alvarlegur og bannvænn sjúk-
dómur. „Dánartíðnin var 250 á 100
þúsund íbúa á ári sem þýðir að 800
manns myndu deyja úr sjúkdómn-
um á hverju ári á okkar tímum, sem
væri fjórðungur allra dauðsfalla,“
segir Óttar.
Berklar voru sjúkdómur fína og gáfaða fólksins
Berklar hafa
löngum verið
sveipaðir róman-
tískum ljóma.
Þessi skelfilega
en heillandi þver-
sögn sjúkdómsins
verður rædd á mál-
þingi í dag.
Raunverulegur ógnvaldur
„Þetta var að stórum hluta ungt
fólk í blóma lífsins og meðferðin
var frumstæð og groddaleg og
hafði í för með sér mikið inngrip í líf
sjúklingsins. Faraldurinn gekk yfir
Ísland 25-30 árum síðar en annars
staðar í Evrópu og menn höfðu þá
áttað sig á smithættunni og vissu
hvaða baktería olli sjúkdómnum.“
Berklarnir eða Hvíti dauðinn hafi
þannig verið raunverulegur ógn-
valdur sem allir óttuðust en engin
örugg meðferð var til fyrr en um
miðja öldina.
Óttar segir að þegar berklarnir
bárust hingað hafi einnig verið
búið að setja samasemmerki milli
sjúkdómsins og slæmra félagslegra
aðstæðna. „Sem þýddi að sjúkdóm-
urinn var ekki litinn eins róman-
tískum augum hérlendis og meðal
annarra Evrópuþjóða á 19. öldinni.
Ég man nú ekki hver það var
sem sagði á 19. öldinni að það væri
enginn skáld sem væri þyngri
en 50 kíló en það fylgdi þessu að
vera tágrannur, náfölur, með rauð
glansandi augu og rauðar glansandi
kinnar.“
Skáldlegur dauði
„Mörg ágæt skáld fengu sjúkdóm-
inn,“ segir Óttar og nefnir sem dæmi
Jóhann Sigurjónsson, Jóhann Jóns-
son, Stefán frá Hvítadal, Guðmund
skólaskáld Guðmundsson, Jóhann
Gunnar Sigurðsson og Rögnvald
Ólafsson sem nam byggingar-
list en þurfti að hverfa frá námi í
Kaupmannahöfn vegna berkla-
veiki. Hann teiknaði meðal annars
berklahælið á Vífilsstöðum, þar sem
hann lést árið 1917.
„Við tölum náttúrlega um öll þessi
íslensku skáld sem dóu úr berklum
en þetta er rosalega mikið af skáld-
um og rithöfundum sem fengu
berkla bæði hér og annars staðar,“
segir Óttar og bætir við að fólk hafi
síður viljað trúa því að félagsleg
staða þeirra hefði haft eitthvað með
það að gera.
„Fólk trúði því náttúrlega ekki
og taldi heldur að þetta væri svona
sjúkdómur sem legðist á gáfaða
og hæfileikaríka fólkið. Þannig
að það var þá frekar til merkis um
að maður væri mjög gott skáld ef
maður væri deyjandi úr berklum.“
Á málþinginu verður einnig rætt
um sögu berkla og berklahæla á
Íslandi og áhrif þeirra á menn-
ingarsöguna enda höfðu berklar
gífurleg áhrif á íslenskt samfélag á
síðustu öld. Þeir lögðu að velli fjöl-
margt ungt fólk og sú fjölskylda var
vandfundin sem ekki átti um sárt að
binda eftir sjúkdóminn.
Málþingið verður sem fyrr segir í
Þjóðminjasafninu í dag og stendur
frá klukkan 10-13.
thorarinn@frettabladid.is
Dagskráin
10:00-10:40 Berklar og af-
leiðingar þeirra á Íslandi
Helgi Sigurðsson, yfirlæknir
og prófessor í krabbameins-
lækningum
10:40-11:10 Sögur af berklum
og Kristneshælið
María Pálsdóttir, leikkona
11:10-11:30 Berklar í óperum
Óttar Guðmundsson, geðlæknir,
Jóhanna V. Þórhallsdóttir, tón-
listarkona
11:30-11:50
Kaffihlé
11:50-12:20 Jóhann Sigurjóns-
son. Draumurinn um að drepa
dauðann
Dagný Kristjánsdóttir, prófessor
í íslenskum nútímabókmenntum
12:20-12:50 Berklar og
deyjandi skáld
Sveinn Yngvi Egilsson, prófessor
í íslenskum bókmenntum síðari
alda
12:50-13:00 Umræður
Fundarstjóri: Torfi Tulinius, pró-
fessor
Óttar Guðmundsson og Jóhanna Þórhallsdóttir ætla að fjalla um berkla í
óperum á málþinginu í Þjóðminjasafninu í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
2 3 . M A R S 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R46 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING
2
3
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:4
6
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
A
0
-F
0
5
C
2
2
A
0
-E
F
2
0
2
2
A
0
-E
D
E
4
2
2
A
0
-E
C
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
2
8
s
_
2
2
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K