Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.03.2019, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 28.03.2019, Qupperneq 4
ÁRA5ÁBYRGÐ FIAT ATVINNUBÍLAR FIAT DUCATO Verð frá 4.024.194 án vsk. 4.990.000 m/vsk. FIAT TALENTO L2H1 Verð frá 3.298.387 án vsk. 4.090.000 m/vsk. FIAT DOBLO Verð frá 2.225.806 án vsk. 2.760.000 m/vsk. FIAT FIORINO Verð frá 1.854.032 án vsk. 2.299.000 m/vsk. ÁRA5ÁBYRGÐUMBOÐSAÐILI FIAT • ÞVERHOLTI 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433 • WWW.FIATPROFESSIONAL.IS WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16 SPÁNN Norðurkóresk andspyrnu- hreyfing lýsti því yfir í gær að hún hefði staðið að áhlaupi á sendiráð ríkisins á Spáni í febrúar. Samtökin, Frjálst Joseon, eru sögð hafa haft á brott með sér tölvur, síma og harða diska. Joseon var nafn konungsríkis á Kóreuskaga frá 1392 til 1897. Dómari á Spáni af létti þagnar- skyldu um rannsókn málsins á þriðjudag. Árásarmennirnir eru sagðir hafa hlekkjað og barið sendi- ráðsstarfsmenn. Markmiðið er að steypa Kim-fjölskyldunni. Á You- Tube má sjá liðsmenn brjóta mynd- ir af einræðisherrunum. „Niður með Kim-f jölskylduna. Rísum upp fyrir þjóðina. Lengi lifi frjálst Joseon!“ sagði í myndbandinu. – þea Árás á sendiráð beint gegn Kim ÍRAN Hassan Rouhani, forseti Írans, ferðaðist í gær um norðurhluta landsins til þess að skoða mikið tjón sem flóð hafa valdið þar. Minnst 26 hafa farist. Rouhani kallaði ham- farirnar fordæmalausar í landinu og lofaði fólki bótum. Þá eru tugir þúsunda á vergangi og þúsundir gista í neyðarskýlum. Golestan-fylki varð verst úti í hamförunum. – þea Lofar bótum vegna flóða Kim Jong-un. Hassan Rouhani. BRETLAND Theresa May, forsætis- ráðherra Bretlands, lofar þing- mönnum Íhaldsflokksins að segja af sér styðji þeir samkomulag hennar um útgöngu úr ESB. „Ég er reiðubúin að yfirgefa þetta starf fyrr en ég áætlaði til að gera það sem er rétt fyrir landið okkar og fyrir f lokkinn okkar,“ kveður BBC May hafa sagt við þingmenn Íhaldsflokksins. Hún hafi sagst vita að þingmenn flokksins vildu ekki að hún leiddi næsta stig Brexit-við- ræðnanna. Á fundi með 300 þingmönnum Íhaldsflokksins sagði May að sam- þykkja þyrfti samninginn til að standa við Brexit. „Ég bið alla sem hér eru um að styðja þennan samning svo við getum uppfyllt sögulega skyldu okkar – að standa við ákvörðun bresku þjóðarinnar og yfirgefa Evrópusambandið á liðlegan og skipulegan hátt,“ biðlaði forsætis- ráðherrann til fundarmanna. Boris Johnson, fyrrverandi utan- ríkisráðherra og stuðningsmaður útgöngunnar, segist nú munu styðja samning May. Hann er sagður lík- legur til að sækjast eftir því að verða leiðtogi Íhaldsflokksins og sagður hafa yfirgefið salinn brosandi. Jeremy Corbyn, formaður Verka- mannaflokksins, tjáði sig á Twitter um útspil May og sagði það „sýna í eitt skipti fyrir öll að óreiðukenndar samningaviðræður um Brexit hafa snúist um f lokksstjórn en ekki grundvallaratriði og hagsmuni almennings,“ eins og hann orðaði það. – gar May lofar að hætta samþykki þingmenn Brexit-samning hennar Forsætisráðherra Bretlands á leið úr þinginu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP 31 7 14 21 Sun 28 1. apríl 8 15 22 Mán 29 2 9 16 23 Þri 30 3 10 17 24 Mið 1. maí 28 4 11 18 25 Fim 29 5 12 19 26 Fös 30 6 13 20 27 Lau ✿ Verkfallsdagar VR og Eflingar n Verkfallsdagarn Verkfalli aflýst Frá og með 1. maí er boðað til ótímabundins verkfalls þar til samningum hefur verið náð. Bílstjórar hjá Almenningsvögnum Kynnis- ferða leggja niður störf á virkum dögum frá 1. apríl til 1. maí frá 7-9 og 16-18. K JARAMÁL „Það er enn langt í land,“ segir Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar, þrátt fyrir nýjan tón sem sleginn var hjá ríkissáttasemjara í gærkvöldi. Verk- föllum sem hefjast áttu á miðnætti í gærkvöldi og standa í tvo daga var aflýst. Viðar segir að ef boðaðar verk- fallsaðgerðir skili auknum samn- ingsvilja og nýjum umræðugrund- velli, sé eðlilegt að aðgerðum sé slegið á frest til að ræða saman. Næstu aðgerðir VR og Ef lingar hefjast að óbreyttu í næstu viku, og byrja á mánudag er strætóbílstjórar hjá Almenningsvögnum Kynnis- ferða leggja niður störf á háanna- tímum á morgnana og síðdegis. Þær aðgerðir munu að óbreyttu standa alla virka daga í apríl. „Það hefur myndast grundvöllur fyrir gerð kjarasamnings og við munum láta á það reyna á næstu dögum,“ segir Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. „Já ég skynja það þannig,“ segir Halldór inntur eftir því hvort hann finni aukinn samningsvilja hjá öllum félögunum. Aðspurður um samráð við bak- land samningsaðila segir Halldór að unnið verði við borð ríkissáttasemj- Samningsvilji en langt í land Samingaviðræður við borð ríkissáttasemjara. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK  Verkföllum sem standa áttu í dag og á morgun er aflýst. Leiðtogar eru í senn bjartsýnir á árangur og hófstilltir. Aðkoma stjórnvalda hefur verið dýrmæt segir formaður VR. Kjarasamningar gætu verið viðspyrnan sem samfélagið þarf segir framkvæmdastjóri SA. ara á næstu dögum. „Við munum byrja á að útfæra þetta á vettvangi ríkissáttasemjara.“ Halldór segir vinnu síðustu vikna munu nýtast í ferlinu næstu daga. „Aðalatriðið er að létta þeirri óvissu sem legið hefur eins og mara yfir samfélaginu öllu; sama hvort við lítum til loðnubrests eða tví- sýnnar stöðu f lugfélaga, stöðu hjá heimilum og stjórnendum fyrir- tækja,“ segir Halldór. Fundum hjá ríkissáttasemjara var frestað tvívegis í upphafi vikunnar vegna óvissu um flugfélagið WOW. „Það má alveg hrósa stjórnvöld- um fyrir þann vilja sem þau hafa sýnt til að liðka fyrir samningum,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, for- maður VR. Rætt hafi verið bæði formlega og óformlega við stjórn- völd meðan á viðræðunum hefur staðið. Þeirra aðkoma kunni enn að ráða úrslitum en margt f leira þurfi að smella saman. Verkfallsaðgerðir Ef lingar og VR hafa haft töluverð áhrif á þau fyrirtæki sem þær hafa náð til en samkvæmt útreikningum Sam- taka ferðaþjónustunnar hefur hver dagur í verkfalli kostað umrædd fyrirtæki um 250 milljónir. Efling og VR höfðu boðað herta verkfallsvörslu vegna verkfalla sem nú hefur verið af lýst, bæði til að bregðast við við verkfallsbrotum og til að auka áhrif aðgerðanna. Þrátt fyrir að verkföllum í dag og á morg- un hafi verið af lýst, standa aðrar boðaðar aðgerðir þangað til annað kemur í ljós. Viðar segir aðgerða- áætlun félaganna þaulskipulagða og árangursríka. „Það er ekki bara hert verkfalls- varsla sem hefur áhrif heldur einn- ig sú stigvaxandi pressa sem er í aðgerðunum. Við byrjuðum í verk- falli í einn dag. Verkföllin sem áttu að hefjast í dag áttu að standa í tvo daga. Boðað verkfall á þriðjudag er í þrjá daga,“ segir Viðar Þorsteinsson. adalheidur@frettabladid.is 2 8 . M A R S 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 8 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :4 3 F B 0 5 6 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 A D -D D B 8 2 2 A D -D C 7 C 2 2 A D -D B 4 0 2 2 A D -D A 0 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 5 6 s _ 2 7 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.