Fréttablaðið - 28.03.2019, Page 20

Fréttablaðið - 28.03.2019, Page 20
Espressó-kaffivél Fullt verð: 179.900 kr. Tækifærisverð: TE 654319RW 144.900 kr. Glæsileg vél sem útbýr tvo bolla í einu af ýmsum kaffidrykkjum. Býr einnig til helstu drykki með einum hnappi. Hraðvirk upphitun. Snertiskjár með myndum. Kaffikvörn úr keramík. Þrýstingur: 15 bör. Flóar mjólk sjálfvirkt. Uppþvottavél, Serie 4 Fullt verð: 114.900 kr. Tækifærisverð: SMU 46CI01S 89.900 kr. 13 manna. Sex kerfi. Þrjú sérkerfi, þar á meðal tímastytting og kraftþurrkun. Hljóð: 46 dB. „aquaStop“-flæðivörn. A Lokadagar Tækifærisdaga. Tilboð gilda út mars 2019. Tæki færi Sem formaður Íþrótta- félagsins Fylkis lagði ég til að félagið yrði fyrst til þess að innleiða rafíþróttir í al- mennt íþróttastarf félagsins. benni.is Notalegir Opel Corsa Innifalið í notuðum Opel Corsa: Bensín í heilt ár Þjónusta í heilt ár Kílómetrastaðan staðfest Árs-ábyrgð á vél og driúnaði Ástandsskoðaðir af þjónustumiðstöð Opel Þátttaka barna og ungmenna í íþróttastarfi getur haft mjög jákvæð áhrif á félagsfærni barna, ekki síst til framtíðar litið. Rannsóknir hafa sýnt fram á þessi jákvæðu tengsl, en nauðsynlegt er að börn fái þjálfun í félagsfærni enda getur slík færni hjálpað þeim á öllum stigum lífsins, bæði í leik og starfi. Í starfi mínu sem borgarfull­ trúi og formaður Íþróttafélagsins Fylkis fæ ég mjög gjarnan fregnir af börnum sem einangra sig félags­ lega, eru heima í tölvunni og geta jafnvel ekki slitið sig frá henni. Ástæða er til að ætla að við eigum eftir að fá tíðari fregnir af slíkum tilfellum, enda f leygir tækninni fram á ógnarhraða og tölvutæknin orðin órjúfanlegur hluti af lífi fólks nú til dags. Byltingarkennd og hröð tækniþróun er jákvæð Byltingarkennd og hröð tækni­ þróun þarf ekki endilega að vera neikvæð. Hún getur verið mjög jákvæð og einfaldað okkur lífið til muna. Í dag þykir t.d. ekkert til­ tökumál að hringja myndsímtal í börnin og barnabörnin sem búsett eru utan landsteinanna, jafnvel í annarri heimsálfu, í gegnum Skype eða FaceTime. Þá þykir okkur ekk­ ert tiltökumál að vinna hvar sem er í heiminum, það eina sem þarf til er tölva. En auðvitað á tæknin líka sínar myrku hliðar og er ein birtingar­ myndin sú að börn og ungmenni, jafnvel fullorðnir, fara ekki út úr húsi, eiga nánast ekki í neinum mannlegum samskiptum sem leiðir til einangrunar. Þetta hefur – eins og gefur að skilja – alls konar fylgi­ kvilla í för með sér, s.s. vanlíðan, kvíða, þunglyndi og offitu svo fátt eitt sé nefnt. En hvað er til ráða? Nýtum tæknina til góðs Sjálfur hef ég haft miklar áhyggjur af þessari þróun og velt vöngum yfir henni ásamt félögum mínum í íþróttahreyf ingunni. Reykja­ víkurborg og íþróttafélögin öll geta nefnilega lagt sitt af mörkum til að snúa þessari þróun við og nýta tæknina til góðs. Í haust hafði ég spurnir af svo­ kölluðum rafíþróttum, sem ganga Tillaga um innleiðingu rafíþrótta í starf íþróttafélaga út á að börn og unglingar mæli sér mót og æfi sig saman sem lið og ein­ staklingar í alls kyns tölvuleikjum. Rafíþróttir eru þannig eins og hefð­ bundnar íþróttir í þeim skilningi að iðkendur hittast á æfingum og keppa svo sín á milli á mótum, sams konar mótum og íþróttamót­ um. Þetta eitt og sér fær ungmenni til þess að fara út úr húsi, hitta aðra einstaklinga og mynda nauðsynleg félagsleg tengsl. Rafíþróttir sem almennar íþróttagreinar Eftir að hafa heyrt um rafíþróttir ákvað ég að mæla mér mót við menn sem þekkja þetta erlendis frá og sótti í kjölfarið ráðstefnu sem haldin var hérlendis um málið. Sem formaður Íþróttafélagsins Fylkis lagði ég til að félagið yrði fyrst til þess að innleiða raf íþróttir í almennt íþróttastarf félagsins. Þannig myndum við skilgreina íþróttina sem almenna íþrótta­ grein innan félagsins, líkt og gert er með aðrar íþróttir. Nú er unnið hörðum höndum að stefnumótun sem felur í sér innleiðingu raf­ íþrótta innan Fylkis. Þátttaka foreldra verið mikil Þetta hefur verið gert víða á Norðurlöndunum, til að mynda í Danmörku, og gefið góða raun. Í Danmörku njóta starfræktar raf­ íþróttadeildir mikilla vinsælda meðal iðkenda. Raunar hafa þær vaxið mjög hratt á umliðnum árum enda njóta tölvuleikir sívax­ andi vinsælda. Þarlendis hefur þátttaka foreldra jafnframt verið mikil, s.s. eins og gerist og gengur í hefðbundnu sjálf boðastarfi innan íþróttahreyfingarinnar. Sjálfur hef ég vakið máls á raf­ íþróttum í Menningar­, Íþrótta­ og tómstundaráði Reykjavíkur­ borgar hvar ég á sæti. Þar hef ég viðrað þá hugmynd að innleiða rafíþróttir í starf allra íþrótta­ félaganna í Reykjavík, ekki síst með það að leiðarljósi að koma í veg fyrir félagslega einangrun og auka félagsfærni barna og ungl­ inga. Þessar hugmyndir hafa hlotið jákvæðar undirtektir í ráðinu enda allra hagur að snúa aðsteðjandi vandamálum í lausnir, þ.e. að snúa vörn í sókn. Nú hef ég ákveðið að leggja fram tillögu á næsta borgarstjórnar­ fundi þess efnis að íþróttafélögin í Reykjavík fái aðstoð við að inn­ leiða rafíþróttir hafi þau áhuga á því. Þannig gætu íþróttafélögin í Reykjavík óskað eftir samstarfi við borgina og borgin aðstoðað við að byggja upp deildir innan íþrótta­ félaganna í Reykjavík. Nýtum tæknina til góðs. Björn Gíslason borgarfulltrúi Sjálfstæðis- flokksins 2 8 . M A R S 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R20 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 8 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :4 3 F B 0 5 6 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 A D -F B 5 8 2 2 A D -F A 1 C 2 2 A D -F 8 E 0 2 2 A D -F 7 A 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 5 6 s _ 2 7 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.