Fréttablaðið - 28.03.2019, Side 30

Fréttablaðið - 28.03.2019, Side 30
Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is Lóa, Elín Elísabet og Árni Jón verða á Kattahaffihúsinu milli klukkan 15 og 18 í dag. MYND/ANTON BRINK Þrír af fimm meðlimum Hrossavinafélagsins, þau Lóa Hjálmtýsdóttir, Elín Elísabet Einarsdóttir og Árni Jón Gunn- arsson, verða með penna og pensil á lofti á Kattakaffihúsinu í dag milli klukkan 15 og 18 og ætla að teikna ketti af miklum móð. Þessi viðburður er hluti af Hönnunar- Mars sem stendur sem hæst þessa dagana. „Ég er svo hrifin af Hönnunar- Mars, og alltaf þegar ég hef ekki tekið þátt fyllist ég eftirsjá. Þess vegna var ég mjög glöð að Hrossa- vinafélagið vildi vera með mér í þessu,“ segir Lóa og Elín Elísabet bætir við: „Þessi viðburður var hugsaður fyrst og fremst út frá því að vera sem þægilegastur fyrir okkur. Við vildum henda í eitt- hvað skemmtilegt sem væri samt auðvelt.“ Árni Jón samsinnir. „Sem teiknarar erum við náttúrulega stressuð og þá er best að gera eitt- hvað sem þarfnast einskis undir- búnings,“ segir hann og hlær. Hópurinn fékk inni í Kattakaffi- húsinu á Bergstaðastræti. „Okkur fannst eitthvað fyndið við að Hrossavinafélagið myndi teikna ketti á kattakaffihúsi,“ útskýrir Lóa. Teiknararnir munu teikna ketti fyrir opnum tjöldum og gestum og gangandi er frjálst að koma og fylgjast með framvindunni. „Við teiknum öll með okkar nefi en stílar okkar eru ansi mismun- andi. Myndirnar hengjum við svo upp á vegg jafnóðum og þær eru tilbúnar og fólk getur keypt þær á viðráðanlegu verði. Teikningarnar verða til sölu og rennur allur ágóðinn til Kattholts,“ lýsir Elín Elísa- bet. Húslistamenn á Holtinu Hrossavinafélagið varð til fyrir nokkrum árum en í því eru teiknar- arnir þrír auk Helgu Páleyjar Friðþjófs- dóttur og Ránar Flygenring. „Við reynum að hittast einu sinni í viku til að teikna saman. Starf teiknar- ans er í sjálfu sér dálítið einmana- legt en með þessari leið getum við hitt aðra teiknara, rætt fagið, fengið góð ráð og lært hvert af öðru,“ segir Árni Jón. Hann tekur sem dæmi að þau séu nú öll farin að teikna á iPad Pro en spjald- tölvueignin smitaðist á milli þeirra. Hópurinn hefur hist á fimmtudags- morgnum á Hótel Holti. „Þar eru rosalega þægi- legir leðursófar sem gott er að sökkva sér ofan í. Okkur er voða vel tekið af starfsfólkinu og í raun dekrað við okkur,“ segir Lóa. „Svo kíkir starfs- fólkið reglulega á okkur og gefur okkur súkkulaði með kaffinu.“ Eruð þið þá orðnir húslistamenn Hótel Holts? „Ja. Við sjáum okkur allavega þannig,“ segir Árni Jón glettinn. En hvaðan kemur nafnið, Hrossavinafélagið? „Nafnið er sprottið af sýningu sem Helga Páley hélt og hét Heeeeestur,veggur. Í kringum þá sýningu spruttu hestar upp í kollinn á okkur aftur og aftur. Við dýrkum hesta en finnst rosalega erfitt að teikna þá. Rán á sjálf hesta og á heiðurinn af nafngiftinni,“ segir Elín Elísabet. Þau hvetja fólk til að koma á Kattakaffihúsið í dag. „Þó þetta sé einföld hugmynd ætti fólk að geta haft gaman af því að fylgjast með og síðan er ekki úr vegi að styrkja munaðarlausa ketti í leiðinni. Ef aðrir teiknarar vilja mæta og teikna með okkur er það líka sjálfsagt.“ Hrossavinafélag teiknar kisulórur Teiknararnir í Hrossavinafélaginu munu sitja á Kattakaffi- húsinu á Bergstaðastræti í dag og teikna ketti. Teikning- arnar verða til sölu og rennur ágóðinn til Kattholts. TE IK N IN G /E LÍ N E LÍ SA BE T HEILSÁRSJAKKAR VEGAN (Við styðjum ábyrga framleiðslu) S Í G I L D K Á P U B Ú Ð Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.is skoðið laxdal.is Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Verslunin Belladonna FLOTT FÖT, FYRIR FLOTTAR KONUR NETVERSLUN WWW.BELLADONNA.IS LÍFIÐ ER Á FRETTABLADID.IS Líð á frettabladid.is allar um fólk, menningu, tísku, heilsu og margt eira. Ekki missa af neinu, fylgdu Fréttablaðinu á Facebook 8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 8 . M A R S 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R 2 8 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :4 3 F B 0 5 6 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 A D -E 7 9 8 2 2 A D -E 6 5 C 2 2 A D -E 5 2 0 2 2 A D -E 3 E 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 5 6 s _ 2 7 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.