Fréttablaðið - 28.03.2019, Síða 52

Fréttablaðið - 28.03.2019, Síða 52
Verslunin Fischer í Fischer­sundi tekur þátt í Hönnunar­Mars með ilmgjörningum og leikjum sem tengjast lyktarskyninu og býður fólki í kvöld upp á að stíga inn í heilandi, íslenskan skóg með því sem ilmgerðarfólkið í búðinni kallar ilmsturtu. „Við búum til okkar eigin ilm­ vötn úr íslenskum ilmolíum sem við notum einnig í umhverfisvænar snyrtivörur,“ segir Lilja Birgisdóttir sem rekur Fischer ásamt systkinum sínum. Bróðir hennar, Jónsi í Sigur Rós, hannar ilmvötnin en Lilja segir hann vera með einstaklega næmt og gott nef. „Við erum alltaf að vinna með skynjun og í kvöld ætlum við að taka þefskynið fyrir með alls konar leikjum og upplifunum sem ætlað er að vekja fólk til umhugsunar um áhrifamátt þefskynsins sem við tökum oftast sem sjálfsögðum hlut.“ Þau verða með opið hús í Fischer­ sundi milli 18 og 20 í kvöld og þá getur fólk prufað ilmvötnin þeirra og skellt sér í ilmsturtu. „Við notum ilmolíur frá Nordic Angan sem unnar eru úr íslenskum trjám. Þetta er rosalega góð lykt og hugmyndin er að koma með heilandi áhrif skóg­ arins til þín með ilmgufum sem þú færð framan í þig í sturtunni,“ segir Lilja. Hún bætir við að með því að bregða svona á leik ætli þau að skoða tengsl ilms við minningar og tilfinn­ ingar, vekja ilmfinningar, á mjög óvísindalegan hátt. – þþ Ilmfinningarnar vakna Fischer-systkinin framleiða ilmvötn í Fischersundi. MYND/HJÖRDÍS JÓNSDÓTTIR María segist hafa orðið meðvituð um spillingu í gull­ og dem­antaiðnaðinum strax í bernsku þegar hún bjó með foreldrum sínum á gömlu gullgraftarsvæði í Síerra Leóne. „Það er nú þess vegna sem mér finnst þetta svona mikilvægt,“ segir María og bætir við að leit hennar að sanngirnisvottuðu gulli hafi tafið hana frá framleiðslu skart­ gripanna í rúmt ár. „En þetta er það sem ég vil gera og mér finnst þetta mikilvægt og skemmtilegt vegna þess að fjölskylda mín hefur alltaf hrifist af svona verkefnum.“ Foreldrar Maríu, sem eru bæði sjúkraþjálfarar, unnu með holds­ veikum í Síerra Leóne þegar hún var barn og þar kynntist fjölskyldan náið þeirri miklu spillingu og þræl­ dómi sem löngum hefur loðað við námavinnslu í landinu. „Ástandið er ekkert betra núna en fyrir 40 árum og þess vegna ákvað ég strax að fara ekki í demantaiðnaðinn en gulliðnaðurinn er síðan bara ekkert betri.“ Vill vveraa sanngjörn María segir samnefnt fyrirtæki sem hún stofnaði utan um skartgripalín­ una leggja áherslu á eflingu kvenna með hönnun kvenlegra skartgripa sem séu umhverfisvænir og sam­ félagslega ábyrgir með sanngirnis­ vottaða gullinu en það stuðli að auknu framboði af kvikasilfurs­ lausu gulli. Fréttablaðið greindi fyrr í vik­ unni frá ágreiningi um notkun vörumerkisins Vveraa vegna lík­ inda við Vera Design skartgripa­ línuna. „Við völdum nafnið Vveraa vegna sagnarinnar „að vera“ og einnig kvenmannsnafnsins þar sem valdef ling kvenna er, ásamt sam­ félagslegri ábyrgð, á meðal mark­ miða okkar,“ segir María. „Þegar kom í ljós að annað skart­ gripafyrirtæki á Íslandi væri með sama nafn, að hluta, og við höfðum ákveðið að nota, ráðfærðum við okkur gaumgæfilega við Einka­ leyfastofu. Þar vorum við hvattar til að láta það ekki stoppa okkur því þau sáu ekki merki um að við værum að gera neitt ólöglegt,“ segir María. Hún segir að hjá Einkaleyfastofu hafi henni verið tjáð að ekki væri hægt að fá einkaleyfi á „Reykjavík“ eða enska orðinu „design“. Sama gilti um orðið „Vera“ hvort sem um væri að ræða kvenmannsnafnið eða sagnorðið. „Ráðgjafinn taldi þetta því vera í besta lagi og hvatti mig eiginlega til að hafa ekki áhyggjur.“ Þá hafi Leitin að sanngjarna gullinu Grafíski hönnuðurinn María Ericsdóttir Panduro kynnir skartgripalínu sína, Reshape frá Vveruu Reykjavík, á HönnunarMars en skartið er unnið úr sanngirnisvottuðu gulli. Leit Maríu að sanngirnisvottuðu gulli tafði framleiðslu skartgripalínunnar um rúmt ár. hún verið hvött til þess að senda fyrirtækis­ merkið inn til „yfir­ ferðar“ og „nokkr­ um vikum síðar var það samþykkt og ég hugsaði þá að þetta væri ekkert mál.“ María bendir einn­ ig á að þótt í báðum tilfellum sé um s k a r t g r i p a l í nu að ræða þá „eru þetta mjög mis­ munandi vörur, hön nu na rleg a séð. Ég vinn ein­ göngu með sann­ girnisvottað gull, þetta er stafað öðruvísi og merkin eru ólík. Ég sé alveg fyrir mér að Vera Design geti notið góðs af líka og hef engar áhyggjur af því. Ég valdi sögnina „að vera“ vegna þess að mér finnst mjög mikilvægt að vera sanngjörn. Það er pælingin á bak við þetta og ég geri þetta engan veginn til þess að ögra.“ María segist einnig hafa í f ljótu bragði fundið fjórtán önnur vöru­ merki kennd við Vera Design á Instagram. „Þá slakaði ég aðeins á enda ljóst að þetta er ekki svo einstakt að það sé eins og ég sé að skemma fyrir öðrum.“ Vveraa Reykjavík kynnir skart­ gripalínuna í versluninni Akkúrat í Aðalstræti 2 í dag klukkan 18 og áfram yfir HönnunarMars­helgina. thorarinn@frettabladid.is 2 8 . M A R S 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R36 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð LÍFIÐ 2 8 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :4 3 F B 0 5 6 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 A D -E C 8 8 2 2 A D -E B 4 C 2 2 A D -E A 1 0 2 2 A D -E 8 D 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 5 6 s _ 2 7 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.