Fréttablaðið - 13.04.2019, Blaðsíða 98
Ebólufaraldurinn sem braust út í Kivu og Ituri í Austur-Kongó þann 1. ágúst á síðasta ári geis-ar enn. Hann er orðinn sá næstversti í skráðri
mannkynssögu. Alls hafa 1.186
tilfelli verið staðfest og 751 andlát
hefur verið rakið til veirunnar. 675
hinna látnu voru kvenkyns, 341 var
barn.
Líkurnar á að faraldurinn breiðist
enn frekar út bæði innan Austur-
Kongó og til annarra landa eru
taldar miklar. Því hefur Alþjóða-
heilbrigðisstofnunin (WHO) ráðlagt
fólki að ferðast hvorki til né stunda
viðskipti við Austur-Kongó að svo
stöddu.
Faraldurinn er raunar sá næst-
versti. Í þriðja sæti er faraldur sem
geisaði í Úganda um aldamótin og
heimti líf 224. Á toppnum trónir svo
ebólufaraldur sem geisaði í Vestur-
Afríku frá því í desember 2013 og
fram í janúar 2016. Þá smituðust
nærri 29 þúsund og rúm 11 þúsund
létust. Stærstu tveir faraldrarnir
eru af völdum sama afbrigðis ebólu,
eða EBOV og það eru faraldrarnir í
fjórða og fimmta sæti einnig.
Átök og traust
Afar erfiðlega hefur gengið að ráða
niðurlögum faraldursins í Kivu.
Fyrir því eru ýmsar ástæður. Ein
sú helsta er langvarandi átök í
norðurhluta Kivu á milli hersins og
allnokkurra uppreisnarhópa. Eig-
inleg skjálftamiðja faraldursins, ef
svo má komast að orði, er í bænum
Beni. Bærinn hefur komið illa út úr
átökunum og hafa tugir árása verið
gerðar á hann meðan hjálparstarfs-
fólk, læknar og hjúkrunarfræðingar
reyna að aðstoða sjúklinga.
Samkvæmt tilkynningu sem
WHO sendi frá sér í gær hefur
árásum á svæðinu fjölgað. Því
hefur aðgengi að sjúklingum verið
takmarkað að undanförnu og illa
gengur að rannsaka útbreiðslu.
Hins vegar liggur fyrir að útbreiðsla
sjúkdómsins hefur aukist í borginni
Butembo og í nærliggjandi bæjum
að undanförnu.
Önnur helsta ástæðan er tak-
markað traust í garð læknavísinda
og alþjóðlegra heilbrigðisstarfs-
manna. Læknaritið Lancet birti
í síðasta mánuði rannsókn þar
sem 36 prósent af tæplega þúsund
aðspurðum sögðust viss um að sjúk-
dómurinn hafi verið skáldaður til
þess að koma á ringulreið í Austur-
Kongó. Þar af leiðandi hafa margir
verið ragir við að láta bólusetja sig.
„Skortur á trausti og faraldurinn
sjálfur leiða til þess að fólk vill ein-
faldlega hvorki fylgja ráðleggingum
né hlusta á skilaboð yfirvalda sem
reyna að segja íbúum hvað skuli
gera til þess að leysa úr ástandinu,“
hafði BBC eftir Patrick Vinck, aðal-
stjórnanda rannsóknarinnar, fyrir
mánaðamót.
Neyðarástand
Sjálfstæð neyðarnefnd á vegum
WHO tilkynnti eftir fund sinn í
gær að þótt nauðsynlegt sé að vinna
áfram gegn faraldrinum af fullum
krafti sé ekki tilefni til þess að lýsa
yfir alþjóðlegu neyðarástandi.
Tarik Jasarevic, upplýsinga-
fulltrúi WHO, segir í samtali við
Fréttablaðið að þetta hafi verið í
annað skipti sem nefndin fundar
um neyðarást andsy f irlýsing u
en ekki var ákveðið að lýsa yfir
neyðar ástandi síðast. Nú var boðað
til fundarins vegna skyndilegrar
fjölgunar nýsmitaðra eftir að talan
hafði farið lækkandi um nokkurt
skeið. Auknar áhyggjur af öryggi á
svæðinu voru einnig ástæðan fyrir
því að boðað var til fundarins.
Yfirlýsing um alþjóðlegt neyðar-
ástand er því ekki sjálfsögð þegar
nefndin kemur saman. „Ákvörð-
un sem þessi byggir á því hvort
ástandið sé alvarlegt, óvenjulegt
eða óvænt, stefni nágrannaríkjum
í alvarlega hættu og krefjist tafar-
lausra, alþjóðlegra viðbragða,“ segir
Jasarevic og bætir við:
„Nefndin fundaði síðast þann
17. október árið 2018 og lagði til
að ekki ætti að lýsa yfir neyðar-
ástandi. Hins vegar var alvarlegum
áhyggjum af faraldrinum lýst yfir
og bent á að hættan á útbreiðslu til
grannríkja væri afar mikil.“
Nágrannaríkin hafa, að sögn
Jasarevics, komið á miklu eftirliti
vegna þessarar hættu. Þannig fá
þau upplýsingar um hvar ný tilfelli
koma upp.
„En þótt smithættan innan
landsins og hættan á útbreiðslu til
nágrannalanda sé afar mikil eru lík-
urnar á útbreiðslu í hnattrænu sam-
hengi litlar,“ segir Jasarevic. Hann
bætir því við að ekkert tilfelli hafi
enn komið upp þar sem erlendur
heilbrigðisstarfsmaður snýr heim
og ebólutilfelli kemur upp í heima-
landinu í kjölfarið.
Erfiðar aðstæður
„Þetta eru svo gott sem erfiðustu
aðstæður sem hægt er að ímynda
sér: Átökin, íbúar sem eru á sífelldri
hreyfingu, veikburða heilbrigðis-
kerfi, stríðshrjáð þjóð sem er vön
að reiða sig á óformlegt heilbrigðis-
kerfi. En sú staðreynd að tekist
hefur að ná stjórn á faraldrinum á
ákveðnum stöðum þýðir að þrátt
fyrir þessar erfiðu aðstæður er hægt
að koma í veg fyrir frekari smit,“
segir Jasarevic.
Hann segir að síðustu árásir á
heilbrigðisstarfsfólk eða ebólu-
meðferðarstöðvar hafi verið gerðar
þann 9. mars síðastliðinn.
„Til þess að binda enda á ebólu-
faraldurinn þurfum við að ná góðu
jafnvægi til þess að hámarka þá
aðstoð sem við getum boðið, gera
það á hlutlausan hátt, og vernda
bæði sjúklinga og starfsfólk fyrir
vopnuðum hópum,“ segir Jasarevic
og bætir við að slík vandamál komi
upp á öllum stríðshrjáðum svæðum
heims.
Samskipti
Um þá staðreynd að fjölmargir trúi
því ekki að ebóla sé til, og vilji því
ekki láta bólusetja sig, segir Jasar-
evic að heilbrigðisstarfsfólk í Aust-
ur-Kongó sé í daglegum samskipt-
um við íbúa. „Meirihluti styður og
sættir sig við vinnu okkar.“
Hann segir að tekist hafi að
útrýma sjúkdómnum í ýmsum sam-
félögum sem hafa tekið vel í starf
WHO og annarra. „Þessi samskipti
fela í sér að við kynnum okkur trú
fólksins, tökum við spurningum
og ráðleggingum um hvernig við
eigum að berjast við faraldurinn
og sækjum jafnframt íbúafundi.
Ebóluteymin leggja áherslu á sam-
skipti við þá sem gagnrýna starf
okkar einna mest. Saman getum
við hins vegar leyst úr vandanum.“
Þá segir Jasarevic að um níutíu
prósent þeirra sem geta fengið bólu-
setningu samþykki það. „Og meira
en nítuíu prósent bólusettra sam-
þykkja frekari heimsóknir á þriðja
og 21. degi eftir bólusetningu.
Hafa lært mikið
Jasarevic segir að bæði WHO og
heilbrigðisstarfsfólk um allan heim
hafi lært mikið af ebólufaraldrinum
í Vestur-Afríku, þeim versta í mann-
kynssögunni. „Við höfum náð mikl-
um árangri síðan í að tryggja að sá
lærdómur komi að gagni.“
Þannig nefnir hann að WHO
hafi árið 2016 komið á fót sérstöku
verkefni um neyðarástand í heil-
brigðismálum. „Þetta voru miklar
breytingar fyrir WHO og þannig
jukum við getu okkar. Eitt af því
sem við lærðum í Vestur-Afríku
var að faraldurinn hreyfist hraðar
en þeir peningar sem úthlutað er
til að berjast við sjúkdóminn. Þess
vegna komum við á fót sjóði fyrir
fyrrnefnt verkefni svo hægt sé að
tryggja að fjármagn sé til staðar
strax í upphafi,“ segir Jasarevic og
bendir á að þannig hafi WHO strax
verið reiðubúin þegar faraldurinn
braust út.
Upplýsingaf u lltr úinn bætir
því við að lokum að WHO hafi
komið upp öðru verkefni til þess
að aðstoða stofnanir og ríki við að
byggja upp innviði til þess að takast
á við faraldra. „Nýlega höfum við
einnig sett upp kerfi með Alþjóða-
bankanum svo við getum fylgst
með því hversu vel hvaða svæði
eru í stakk búin til að takast á við
faraldra og aðra heilbrigðisvá.“
ÞÓTT SMITHÆTTAN
INNAN LANDSINS OG
HÆTTAN Á ÚTBREIÐSLU
TIL NÁGRANNALANDA
SÉ AFAR MIKIL ERU LÍK-
URNAR Á ÚTBREIÐSLU Í
HNATTRÆNU SAMHENGI
LITLAR.
Erfiðustu mögulegu aðstæður
Ebólufaraldurinn í Austur-Kongó er sá næstversti í sögunni. Upplýsingafulltrúi WHO segir í samtali við Frétta-
blaðið að takmörkuð trú á heilbrigðisstarfsfólki og átök á svæðinu torveldi vinnu. 751 hefur látist og 1.186 sýkst.
Heilbrigðisstarfsmenn í hlífðarfötum sjást hér inni á ebólumeðferðarstöð í borginni Butembo í Kivu-fylki í Austur-Kongó. NORDICPHOTOS/AFP
Særðum uppreisnarmanni kastað upp á trukkpall skömmu eftir árás á meðferðarstöð í Butembo. NORDICPHOTOS/AFP
Þórgnýr Einar
Albertsson
thorgnyr@frettabladid.is
1 3 . A P R Í L 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R38 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
3
-0
4
-2
0
1
9
1
1
:2
4
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
C
F
-6
6
C
C
2
2
C
F
-6
5
9
0
2
2
C
F
-6
4
5
4
2
2
C
F
-6
3
1
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
2
8
s
_
1
2
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K