Fréttablaðið - 13.04.2019, Blaðsíða 2
Veður
Vaxandi suðaustanátt í dag, 18-25
m/s í kvöld, en hægari fyrir norðan.
Talsverð rigning S- og SA-til, annars
úrkomulítið. Hiti breytist lítið.
SJÁ SÍÐU 50
ÁVALLT SÓL SKÍN
KANARÍ
VERÐ FRÁ 75.900 KR.
NÁNAR Á UU.IS
ÚRVAL ÚTSÝN | HLÍÐASMÁRA 19 | 201 KÓPAVOGI | 585 4000 | UU.IS
Flugdrekar á Barnamenningarhátíð
Bandaríski listamaðurinn Richard Spiller ákvað að gleðja börnin á leikskól -
anum Drafnarsteini við Seljaveg með f lugdrekasýningu í rokinu í gær. Vindur-
inn var þó helst til mikill jafnvel fyrir þetta tilefni. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
S TJ Ó R N M Á L A lþýðu s a mba nd
Íslands telur rök dómsmálaráð-
herra í frumvarpi um breytingar á
lögum um helgidagafrið ekki duga.
Það sé ekki nóg að vísa til frelsis ein-
staklingsins til að sækja afþreyingu
á helgidögum til að réttlæta slíkar
breytingar á samfélaginu.
Verði frumvarpið að lögum verða
felld niður ákvæði sem banna til-
tekna þjónustu og af þreyingu á
helgidögum þjóðkirkjunnar. Einn-
ig er lagt til að upptalning á helgi-
dögum þjóðkirkjunnar verði færð
yfir í þjóðkirkjulög. Kirkjuþing
lagði blessun sína yfir frumvarpið
fyrir jól. Er því möguleiki að pásk-
arnir fram undan verði þeir síðustu
þar sem Vantrú stendur fyrir bingói
á Austurvelli á föstudeginum langa.
Magnús M. Norðdahl, lögfræð-
ingur ASÍ, segir að það þurfi ekki
aðeins að líta til frelsis atvinnurek-
enda heldur frelsis launafólks til að
njóta helgihalds og samveru með
fjölskyldu á helgidögum.
„Frumvarpið er sett fram í nafni
einhvers frelsis, verslunarfrelsis
og frelsis til að hafa búðir opnar.
Allt gott og blessað. En samkvæmt
okkar hefðum og venjum þá tökum
við okkur góð frí þar sem við þurf-
um ekki að sinna Mammon. Fáum
borguð laun fyrir það, erum búin að
semja um það,“ segir Magnús. BSRB
tekur undir með ASÍ í umsögn sinni
um frumvarpið og bætir við að upp-
talning á helgidögum þjóni mikil-
vægum tilgangi þrátt fyrir að kjara-
samningar hafi almennt einnig að
geyma slíka upptalningu.
Frumvarp ráðherra er ekki það
fyrsta sinnar tegundar. Helgi Hrafn
Gunnarsson, þingmaður Pírata,
lagði fram frumvörp árið 2016 og í
janúar 2018 sem felldu löggjöfina
alfarið á brott. Biskupsstofa bað
þá Alþingi um að fella ekki niður
löggjöfina þar sem inntak helgi-
daga sameinaði þjóðina í sið. Það er
skemmst frá því að segja að frum-
vörpin náðu ekki fram að ganga.
Magnús segir það ekki nóg að
vísa til frelsis til að breyta lögun-
um. „Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
frumvarp af þessu tagi er lagt fram,
en þetta er í fyrsta skipti sem það
er bara lagt fram í nafni frelsisins.
Það eru bara hallærisleg rök. Maður
hlýtur að gera þá kröfu til löggjaf-
ans, ef það á að breyta einhverju í
samfélaginu, að það liggi fyrir því
góð rök. En að ef einhverjum ráð-
herra dettur í hug að segja orðið
„frelsi“, þá sé allt í lagi, það er bara
ekki nóg.“ arib@frettabladid.is
Mammon verði ekki
sinnt á helgidögum
Alþýðusamband Íslands leggst gegn frumvarpi dómsmálaráðherra um breyt-
ingar á lögum um helgidagafrið. Kirkjuþing hefur þegar lagt blessun sína yfir
breytingarnar. Lögfræðingur ASÍ segir „frelsi“ ekki duga sem rök í málinu.
Bingó Vantrúar á Austurvelli á föstudaginn langa myndi heyra sögunni til
yrði frumvarp dómsmálaráðherra að lögum á Alþingi. FRÉTTABLAÐIÐ/EGILL
Maður hlýtur að
gera þá kröfu til
löggjafans, ef það á að
breyta einhverju í samfélag-
inu, að það liggi fyrir því
góð rök. En að ef einhverjum
ráðherra dettur í hug að
segja orðið „frelsi“, þá sé allt
í lagi, það er bara ekki nóg.
Magnús M.
Norðdahl,
lögfræðingur ASÍ
Fleiri myndir af flugdrekunum er að finna á +Plús-
síðu Fréttablaðsins. Fréttablaðið +Plús er í Frétta-
blaðs-appinu og PDF-útgáfu á Fréttablaðið.is.+PLÚS
VIÐSKIPTI Höskuldur H. Ólafsson,
bankastjóri Arion banka, hefur sagt
starfi sínu lausu og mun hann láta
af störfum um næstu mánaðamót í
samráði við stjórn bankans. Hösk-
uldur hefur starfað hjá bankanum
í níu ár.
„Óhætt er að segja að verkefnin
hafi verið fjölbreytt á þessum árum.
Fyrstu árin fólst verkefnið fyrst og
fremst í að takast á við skulda-
vanda viðskiptavina bankans, bæði
fyrirtækja og heimila,“ er haft eftir
honum í fréttatilkynningu.
Segir hann jafnframt að þegar
hann hafi tekið við hafi hlutfall
vandræðalána hjá bankanum verið
vel yfir 50 prósentum, en að það sé
í dag með því besta sem gerist hjá
fjármálafyrirtækjum í löndunum í
kringum Ísland.
Brynjólfur Bjarnason, stjórnar-
formaður Arion banka, þakkar
Höskuldi fyrir þátt hans í þróun og
uppbyggingu Arion banka á síðustu
árum.
„Hans forysta og staðfesta hafa
reynst bankanum vel í gegnum
ýmsar áskoranir á þeim árum sem
hann hefur verið við stjórnvölinn.
Við í stjórn bankans virðum hans
ákvörðun um að nú sé góður tíma-
punktur til að láta af störfum,“ er
haft eftir Brynjólfi í tilkynning-
unni. – jt
Höskuldur
hættir hjá Arion
Höskuldur Ólafsson hættir hjá Ar-
ion banka. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR
Ágúst Þór
Árna son,
aðjunkt við
Há skól ann á
Ak ur eyri, lést
á heim ili sínu
á miðvikudag
eftir skamma
baráttu við
krabbamein.
Ágúst fædd ist í Reykja vík 26.
maí 1954. Hann nam heim speki,
lög fræði og stjórn mála fræði í
Berlín við Die Freie Uni ver istat.
Hann var fram kvæmda stjóri
Mann rétt inda skrif stofu Íslands
frá 1994-1998. Ágúst var kosinn
af Alþingi í stjórnlaganefnd árið
2010 og tók virkan þátt í umræðu
um breytingar á stjórnarskrá.
Hann eignaðist þrjú börn:
Guðmund Árna, Brynj ar og
Elísa betu og barna börn in eru
sjö. Sam býl is kona hans var Mar-
grét Elísa bet Ólafs dótt ir.
Ágúst Þór
Árnason látinn
1 3 . A P R Í L 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
3
-0
4
-2
0
1
9
1
1
:2
4
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
C
F
-5
C
E
C
2
2
C
F
-5
B
B
0
2
2
C
F
-5
A
7
4
2
2
C
F
-5
9
3
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
2
8
s
_
1
2
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K